Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Herjólfur kom ekki í höfn fyrr en um miðja nótt

Read Full Article →

Mikil seinkunn varð á komu Herjólfs til Vestmannaeyja í kvöldferðinni í gær. Klukkan var orðin um hálf þrjú í nótt þegar skipið kom loksins í höfn í Vestmannaeyjum. Þá var ferðin búin að standa yfir í um sjö klukkustundir. Annar rafmótor Herjólfs bilaði fyrir hálfum mánuði. Vegna bilunarinnar og sjóalags gat skipið aðeins siglt á um fimm til sex sjómílna hraða. Herjólfur lagði af stað frá Vestmannaeyjum þegar klukkuna vantaði 20 mínútur í átta í gærkvöld og var ekki komið á endastað fyrr en klukkan hálf þrjú. Fréttin verður uppfærð með viðtali við framkvæmdastóra Herjólfs.

Share this article