Innlent | Morgunblaðið | 28.4.2026 | 11:15 Enn deilt um mál sem klauf sveitarstjórnina Eyþór Kári Ingólfsson oddviti N-lista, Hallgrímur Páll Leifsson oddviti L-lista og Knútur Emil Jónasson oddviti Á-lista settust niður á Laugum og ræddu kosningarnar fram undan og áherslur framboðanna. Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Samantekt 11:15 Frétt: Enn deilt um mál sem klauf sveitarstjórnina 08:40 Frétt: Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast 08:30 X26: Skýr skil í Þingeyjarsveit 08:28 Strandabyggð: spjall við oddvitana þrjá Þrír listar bjóða fram í Þingeyjarsveit þar sem tekist er á um virkjunarmál, innviði, skólastarf, atvinnuuppbyggingu og framtíð stærsta sveitarfélags landsins að flatarmáli. Þingeyjarsveit er um margt einstakt sveitarfélag. Það þekur um 12% landsins, nær inn á Vatnajökul í suðri og byggðin dreifist um Fnjóskadal, Ljósavatnsskarð, Köldukinn, Bárðardal, Laxárdal, Aðaldal, Reykjadal og Mývatnssveit. Íbúar eru um 1.500 talsins. Fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí eru þrír listar í framboði. Knútur Emil Jónasson leiðir Á-lista ábyrgðar, Eyþór Kári Ingólfsson fer fyrir N-listanum og Hallgrímur Páll Leifsson leiðir L-lista framfara. Klofningur setur svip Í síðustu kosningum fékk E-listi Íbúalistans fimm fulltrúa en K-listinn fjóra. E-listinn klofnaði hins vegar í herðar niður snemma á kjörtímabilinu og Knútur og Eyþór, sem áður eru samherjar, leiða nú hvor sinn listann. Eyþór segir að trúnaðarbrestur hafi orðið þegar mál voru sett á dagskrá sveitarstjórnar þrátt fyrir að meirihlutinn hafi ekki verið sammála um þau. „Þarna tel ég að trúnaðarbresturinn og traustið hafi farið út um gluggann,“ segir hann. Knútur segir átökin hafa haft áhrif á starfsemi sveitarfélagsins. „Pólitíkin má ekki leyfa sér að hripa niður í starfsemi sveitarfélagsins,“ segir hann og leggur áherslu á vinnufrið starfsfólks. Deilt um Einbúavirkjun Stærsta ágreiningsmálið, sem klauf sveitarstjórnina árið 2024, er Einbúavirkjun, 9,8 megavatta virkjun í Skjálfandafljóti, um sjö kílómetrum ofan við Goðafoss. Knútur er andvígur virkjuninni og telur ávinninginn of lítinn miðað við þau umhverfisáhrif sem framkvæmdin getur leitt af sér. „Þarna væri lítill ávinningur fyrir býsna mikla óvissu,“ segir hann og nefnir áhrif á aurframburð, lífríki og ferðaþjónustu við Goðafoss. Eyþór vill hins vegar setja virkjunina inn á aðalskipulag og segir hana til bóta fyrir samfélagið. Hallgrímur tekur svipaða afstöðu. „Ég sé ekki nógu víðtæk rök gegn Einbúavirkjun, af hverju hún ætti ekki að fara inn á aðalskipulag,“ segir hann. Þrír skólar og 600 kílómetrar Skólamálin eru stórt mál í sveitarfélagi sem rekur þrjá grunnskóla og þrjá leikskóla. Skólaakstur er um 600 kílómetrar á dag. Hallgrímur vill auka samstarf milli skóla, einkum á unglingastigi. „Unglingar þurfa á meiri félagsþroska og meiri umgengni við jafnaldra sína að halda,“ segir hann og nefnir samkennslu einn til tvo daga í viku sem mögulega lausn í þeim efnum. Eyþór segist vilja efla félagslegt samstarf skólanna en varar við því að ræða skólasameiningar nema í víðtæku samráði. Knútur tekur undir að ekki sé svigrúm til frekari sameininga. Almennt sé viðurkennt að akstur barna megi ekki fara yfir þrjú korter aðra leiðina og reynt hafi verið að miða við það í ákvarðanatöku á vettvangi sveitarfélagsins. Innviðaskuld og sundlaug Knútur segir sveitarfélagið eiga yfir 20.000 fermetra af byggingum og glíma við viðhaldsþörf í húsnæði og veitukerfum. Sérstaklega bendir hann á Mývatnssveit í því tilliti, þar sem hitaveitulagnir eru sagðar bila reglulega. Eyþór vill endurbyggja sundlaug í Mývatnssveit og telur að það megi gera fyrir um 300 milljónir króna með samfélagsátaki. Hallgrímur telur kostnaðinn frekar nálægt 500 milljónum og segir önnur verkefni brýnni, meðal annars líkamsræktaraðstöðu í Reykjahlíð og endurnýjun veitna. Knútur segist ekki vera á móti sundlaug, en fjárhagsstaðan leyfi ekki slíka framkvæmd á þessum tímapunkti. „Það er ekki bara að byggja sundlaug, það er rekstrarkostnaður á henni,“ segir hann. Ferðaþjónusta og orkusvæði Atvinnumálin snúast meðal annars um stækkun Jarðbaðanna í Mývatnssveit, frekari nýtingu auðlinda við Þeistareykjavirkjun og uppbyggingu ferðaþjónustu. Hallgrímur leggur áherslu á beint flug til Akureyrar til að efla vetrarferðaþjónustu. „Þegar fyrstu flugin koma frá Hollandi og Sviss á veturna, þá vaknar samfélagið til lífsins,“ segir hann. Eyþór segir mikilvægt að fjölga fólki í dölunum til að tryggja rekstur skólanna og Knútur gagnrýnir stjórnvöld fyrir skamman fyrirvara á skattabreytingum gagnvart ferðaþjónustu en þar vísar hann meðal annars til fyrirætlana ríkisvaldsins um að færa aðgangseyri að baðlónum landsins úr 11% þrepi virðisaukaskatts í 24%. Skýr afstaða til ESB Í lokin koma fram skýr skil í afstöðu til Evrópusambandsins. Eyþór er á móti aðildarviðræðum. „Við myndum falla í þann flokk sem borgar meira en hann fær og þá þarf ekkert að ræða þetta meira,“ segir hann. Hallgrímur tekur undir það og segist ekki vilja fara í „aðlögunarvegferð“. Knútur er á annarri línu og segist vilja skoða aðild, meðal annars með tilliti til vaxta og húsnæðismarkaðarins. Hann segist munu segja já í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna, sem fyrirhugað er að halda í lok ágúst næstkomandi. Klofningur Í síðustu kosningum hlaut E-listi Íbúahreyfingarinnar hreinan meirihluta og 5 fulltrúa af 9 í sveitarstjórn. K-listi hlaut 4 fulltrúa. Á miðju kjörtímabili klofnaði E-listinn og nú bjóða fulltrúar fylkinganna tveggja fram undir nöfnum N-lista og Á-lista Ábyrgðar. Nýtt framboð L-lista stillir sér upp á milli stríðandi fylkinga. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang 11:15 Enn deilt um mál sem klauf sveitarstjórnina Þrír listar bjóða fram í Þingeyjarsveit þar sem tekist er á um virkjunarmál, innviði, skólastarf, atvinnuuppbyggingu og framtíð stærsta sveitarfélags landsins að flatarmáli. Þingeyjarsveit er um margt einstakt sveitarfélag Meira 08:40 Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Fundur um umferðarmál á höfuðborgarsvæðinu undir yfirskriftinni Greiðari leið – hugmyndir óskast verður hann haldinn á Hilton Nordica við Suðurlandsbraut í dag. Fundurinn hefst kl. 9.00 og stendur til kl. 10.45. Meira 08:30 X26: Skýr skil í Þingeyjarsveit 08:28 Strandabyggð: spjall við oddvitana þrjá Í gær, 18:30 Höfnin er lífæð bæjarfélagsins Höfnin í Bolungarvík, húsnæðisuppbygging og ábyrg fjármálastjórn eru helstu málefnin sem ber á góma í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í samtali Morgunblaðsins við oddvita framboðanna tveggja sem bjóða fram í bænum Meira Í gær, 17:20 „Einkennilegt framlag í kosningabaráttuna“ „Garðbæingar athugið að atkvæði á aðra en sjálfstæðismenn í bæjarstjórnarkosningunum er stuðningur við Alþýðubandalagið.“ Meira Í gær, 16:30 X26: „Skuldir eru ekki alltaf af hinu slæma“ Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí, en þá verður efnt til kosninga í 62 sveitarfélögum landsins af öllum stærðum og gerðum. Meira Í gær, 16:08 „Ef það eru byggð hús, þá kemur fólk og býr í þeim“ Í gær, 14:15 „Óásættanlegt að fólk þurfi að óttast að vera utandyra“ „Góð loftgæði eru hagsmunamál okkar allra en sérstaklega barna, aldraðra og fólks sem glímir við sjúkdóma. Það er óásættanlegt að fólk þurfi að óttast að vera utandyra eða senda börn í skólann vegna loftmengunar.“ Meira í fyrradag Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Oddviti Miðflokksins í Kópavogi segir gagnrýni dómsmálaráðherra á hugmyndir flokksins er varða heimgreiðslur til foreldra til að brúa bilið frá fæðingarorlofi til leikskóla ekki koma sér á óvart, enda hafi ráðherra áður sett sig upp á móti tillögum Miðflokksins hvað varði forræði foreldra yfir eigin fæðingarorlofi. Meira í fyrradag Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Bjarki Þorsteinsson, fyrirhugað sveitarstjóraefni beggja framboða til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar, hefur afþakkað boð um að gegna embættinu fyrir hönd Í-listans vegna framgöngu fulltrúa listans gegn oddvita A-listans. Meira í fyrradag Segir hugmyndir um heimgreiðslur vera snákaolíu Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra gagnrýnir harðlega hugmyndir Miðflokksins um auknar heimgreiðslur til foreldra til að brúa bilið frá fæðingarorlofi til leikskóla og talar um snákaolíu í því samhengi. Meira í fyrradag Samfylkingin á flugi og meirihlutinn fallinn Samfylkingin fengi flesta bæjarfulltrúa kjörna á Akureyri í komandi sveitarstjórnarkosningum ef niðurstöður nýrrar könnunar raungerast. Meira 26.4. Viðsnúningur eftir sársaukafullar aðgerðir Algjör viðsnúningur hefur orðið á rekstri Árborgar en rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins var jákvæð um tæpan einn og hálfan milljarð árið 2025 en áætlanir höfðu gert ráð fyrir 67 milljóna niðurstöðu. Meira 25.4. Sýna meira Nýjast á mbl.is » Siglingin tók sjö tíma Önnur lið brjáluð út í Manchester City Enn deilt um mál sem klauf sveitarstjórnina Kimmel svarar Trump: Augljóst grín um aldursmun Bandaríkin stjórni ekki gjörðum annarra ríkja Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Blikastaðaland – forsendur Mosfellinga Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Vindhviður yfir 30 metrar á sekúndu Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Dýrkeypt veikindahlutföll Mest lesið Í gær Í vikunni „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Kristrún vill