Félags- og húsnæðismálaráðherra, fjármálaráðherra og borgarstjóri kynntu í hádeginu í dag áform um íbúðauppbyggingu á ríkislóðum og í ríkiseignum í Reykjavík. Stefnt er að því að reisa 1.200-1.400 nýjar íbúðir á næstu árum á þessum lóðum ríkisins og í húsnæði í eigu ríkisins sem breytt verður í íbúðir. Íbúðirnar verða á eftirfarandi stöðum og áætlaður fjöldi þeirra er: Borgartún : 220 íbúðir Grensásvegur : 90 íbúðir Efri hluta Laugavegar : 100 íbúðir Laugarnesvegur : 300 íbúðir Seljavegur : 90 íbúðir Á landi austan Korpúlfsstaða, á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar : Á bilinu 400-600 íbúðir Verkefnin eru sögð mislangt á veg komið. Stjórnvöld segja að íbúðum á þessum reitum geti fjölgað enn frekar eftir því sem líður á skipulagsferlið. Nálgast má glærukynningu af fundinum hér þar sem sjá má yfirlitsmynd af hverju og einu verkefni. Úr kynningu ráðherra og borgarstjóra. Af þessum íbúðum verður 20-30% hagkvæmar íbúðir, þ.e. almennar íbúðir og íbúðir sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána, aðrar leiguíbúðir (til dæmis stúdentaíbúðir, leiguíbúðir Félagsbústaða og íbúðir fyrir eldra fólk) og búseturéttaríbúðir. Einnig voru kynntar aðgerðir í öðrum húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar. Hluti aðgerðanna snýr að því að bæta réttarstöðu leigjenda. Janframt verður komið á viðbótarframlögum í almenna íbúðakerfinu vegna atvinnuhúsnæðis sem verður umbreytt í íbúðir. Framlögin munu nema allt að 5% af stofnkostnaði almennra íbúða (leiguíbúðir sem eru fyrir tekju- og eignalægra fólk) og koma til viðbótar við hefðbundin stofnframlög ríkis og sveitarfélaga.