Ólympíufarinn Kristrún Guðnadóttir hefur lagt skíðin á hilluna vegna meiðsla. Kristrún keppti í skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum 2022 og 2026. Kristrún meiddist illa á hné fyrir nokkrum vikum og að læknisráði mun hún ekki geta keppt á afreksstigi áfram. Kristrún keppti í sprettgöngu í Peking 2022 og Mílanó Cortina 2026 auk þess að keppa í 10 km göngu 2026. Auk þess keppti hún á HM 2019, 2023 og 2025. Auk þess er hún fjórtánfaldur Íslandsmeistari. Kristrún á auk þess besta tíma íslenskrar konu í Vasaloppet (Vasagöngunni). Kristrún mun nú snúa sér að því að starfa innan skíðahreyfingarinnar. Meira um feril hennar og framtíðarstarf má lesa í frétt Skíðasambandsins.