- What: A survey indicates that parents believe the mental health of children from Grindavík has worsened since the town's evacuation in November 2023.
- Impact: Children from Grindavík may require psychological support due to the disruption caused by the evacuation.
Innlent | mbl | 11.2.2026 | 16:16 Foreldrar telja andlega heilsu barna verri en áður 60% foreldra telja að börn sín hafi þurft sálrænan stuðning í kjölfar þess að Grindavíkurbær var rýmdur í nóvember 2023. mbl.is/Eggert Jóhannesson Þriðjungur foreldra barna úr Grindavík telja andlega heilsu barnanna verri en áður. 60% foreldra telja að börn sín hafi þurft sálrænan stuðning í kjölfar þess að Grindavíkurbær var rýmdur í nóvember 2023. Þetta kemur fram í könnun Maskínu sem var gerð á meðal Grindvíkinga á tímabilinu 4. desember 2025 til 25. janúar 2026. Rúmlega 1.400 manns svöruðu könnuninni auk þess sem foreldrar veittu upplýsingar um 1.171 barn. Samkvæmt svörum foreldra hafa 87% barna sem bjuggu áður í Grindavík eignast nýja vini og aðlagast vel í skóla. 70% barna stunda íþróttir eða tómstundastarf sem er svipað hlutfall og fyrir rýmingu bæjarins. Rúmlega 80% aðspurðra lýstu sterku tengslaneti í Grindavík en einungis 37% töldu sig vera með sterkt tengslanet í dag. Þátttaka fullorðinna í félagslífi hefur dregist saman og 59% telja andlega heilsu sína verri en fyrir rýmingu. Rúmlega 50% telja líkamlega heilsu sína einnig verri. Minnihluti vill flytja aftur Niðurstöður könnunarinnar leiða einnig í ljós að eldri borgarar meta andlega heilsu sína betri en yngri aldurshópar. Fólk á aldrinum 50–59 ára upplifir mest álag á andlega líðan. Rúm 10% svarenda könnunarinnar höfðu snúið aftur til Grindavíkur eftir rýmingu. Meirihlutinn hefur sest annars staðar að, helst í Reykjanesbæ og á höfuðborgarsvæðinu. Meðal þeirra sem búa utan Grindavíkur telja 15% líklegt að þeir flytji aftur til Grindavíkur á árinu. Helstu ástæður eru sterk tenging við bæinn og vilji til að snúa aftur á fyrra heimili. Þeir sem hyggjast ekki flytja aftur til Grindavíkur á árinu nefna óvissu um framvindu náttúruhamfaranna og að börn þeirra séu farin að festa rætur á nýjum stað. Á sama tíma segjast 73% geta hugsað sér að búa áfram þar sem þau eru næstu árin. „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Foreldrar telja andlega heilsu barna verri en áður Hið opinbera á ekki að standa eitt í námsgagnagerð Mikið áfall fyrir leikmanninn unga Engin vitneskja né ásetningur um að fremja hryðjuverk ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Ná nákvæmari vöktun á landinu Þriggja barna faðir en ekki hryðjuverkamaður Nýtt framboð í Grímsnesinu Skimun fyrir ofbeldi gegnir lykilhlutverki Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Foreldrar telja andlega heilsu barna verri en áður Hið opinbera á ekki að standa eitt í námsgagnagerð Mikið áfall fyrir leikmanninn unga Engin vitneskja né ásetningur um að fremja hryðjuverk ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Hagsmunavarsla eflir sendiráðið Allt var stöðvað: „Aldrei séð neitt þessu líkt“ Ríflega tvöfalt fleiri börn á BUGL vegna átröskunar Sindri mættur fyrir dóm Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson