Innlent | mbl | 28.4.2026 | 18:34 Ríkisstjórnin bregst við stöðu samgangna til Eyja Herjólfur hefur ekki getað siglt til Landeyjahafnar lengi, enda höfnin verið lokuð frá því í janúar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Landeyjahöfn Bjóða út dýpkun Landeyjahafnar Landeyjahöfn „eitt mesta verkfræðislys seinni ára“ Þörf á endurbótum á Landeyjahöfn Mannvit tekur út Landeyjahöfn Gerð verði óháð úttekt á Landeyjahöfn » Fleiri tengdar fréttir Herjólfur Gamli Herjólfur rétt ókominn til Eyja frá Færeyjum Herjólfur fer í slipp og sá gamli mun taka við „Mjög alvarleg bilun“ Nýr samningur gerður um Herjólf Telur aðbúnað við Herjólf vítaverðan » Fleiri tengdar fréttir Til að bregðast við þeirri alvarlegu stöðu sem uppi hefur verið í samgöngumálum í Vestmannaeyjum síðustu vikur verður samningur um áætlunarflug milli Eyja og Reykjavíkur framlengdur og flugferðum fjölgað í tvær á dag, frá og með fimmtudeginum 30. apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins . Þá standa vonir til að hægt verði að opna Landeyjahöfn á ný í næstu viku, gangi öldu- og veðurspár eftir. Frétt af mbl.is Siglingin tók sjö tíma Frétt af mbl.is Vilja að brugðist verði við óboðlegu ástandi Erfiðar aðstæður í Landeyjahöfn Undanfarnar vikur hafa aðstæður í Landeyjahöfn verið mjög erfiðar. Höfnin hefur verið lokuð frá því í janúar, of grunnt er í innsiglingu og óvenju óhagstæð veðurskilyrði hafa torveldað dýpkun. Þá kom upp bilun í Herjólfi sem gerir það að verkum að skipið hefur siglt á einungis einni vél. Viðgerð á vélinni er þegar hafin. Frétt af mbl.is Siglir á einni skrúfu Ástandið hefur valdið truflunum á samgöngum, sem haft hefur mikil áhrif á íbúa og atvinnulíf í Eyjum. Kannaður var möguleiki á að fá annað skip erlendis frá til að sinna dýpkuninni, en of langan tíma hefði tekið að fá skipið til landsins og sú leið því ekki talin líkleg til að bæta stöðuna. Nú þegar að óbreyttu hillir undir opnun Landeyjahafnar er staðan eftirfarandi: Tvær flugferðir á dag, alla daga vikunnar Innviðaráðuneytið hefur beitt sér fyrir því í fjórgang að tímabil áætlunarflugs milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur verði framlengt, tvær vikur í hvert sinn, vegna ástandsins. Ákveðið hefur verið að framlengja áætlunarflugið á ný og auka verulega tíðni flugferða. Ein ferð verður farin á morgun, 29. apríl, en frá og með næsta fimmtudegi, 30. apríl, og til 15. maí verður flogið tvisvar á dag, alla daga vikunnar. Frétt af mbl.is Áætlunarflug nauðsynlegt Landeyjahöfn vonandi opnuð í næstu viku Samkvæmt ölduspá er áætlað að dýpkun Landeyjahafnar geti hafist á ný seinni partinn á fimmtudag eða á föstudag. Miðað við spá, og ef ekkert óvænt kemur upp, gerir Vegagerðin nú ráð fyrir að ásættanlegt dýpi fyrir Herjólf verði komið í höfninni þann 7. maí nk. og hún verði þá opnuð fyrir siglingum. Bætt upplýsingagjöf Vegagerðin hefur hafið daglega uppfærslu um stöðuna á dýpkun Landeyjahafnar á vefnum umferdin.is . Eyjamenn og aðrir sem nýta sér samgöngur til og frá Eyjum eru hvattir til að fylgjast með á vefnum. Frétt af mbl.is Herjólfur þurfti aðstoð: Tveimur ferðum aflýst Herjólfur III að verða klár Vonir standa til að Herjólfur III geti verið kominn á haffæri þriðjudaginn 5. maí. Herjólfur III mun þá geta siglt og verið til afleysinga sem varaskip fyrir Herjólf IV, sem hefur siglt á skertum afköstum síðustu vikur. Miklar úrbætur með Jan de Nul Fyrr í vetur skrifaði Vegagerðin undir samning við Jan de Nul, nýjan verktaka sem mun taka við dýpkunaraðgerðum í Landeyjahöfn næsta haust. Gildir sá samningur árin 2026 til 2029. Í útboðinu voru tilboð metin ekki aðeins út frá tilboðsupphæð heldur einnig út frá tæknilegri getu þess skips sem boðið er til verksins. Skip Jan de Nul kom best út í þeim samanburði. Jan de Nul er eitt stærsta verktakafyrirtæki í heiminum á þessu sviði og býr yfir öflugum búnaði sem eykur möguleika á að veita betri þjónustu við dýpkun í Landeyjahöfn en áður hefur þekkst. Þá á fyrirtækið mörg dýpkunarskip sem auðveldar viðbrögð, þurfi að bregðast við vegna óvæntrar alvarlegrar bilunar, eins og gerðist í vetur. Frétt af mbl.is Belgískt fyrirtæki dýpkar næstu árin Tengdar fréttir Landeyjahöfn Bjóða út dýpkun Landeyjahafnar Landeyjahöfn „eitt mesta verkfræðislys seinni ára“ Þörf á endurbótum á Landeyjahöfn Mannvit tekur út Landeyjahöfn Gerð verði óháð úttekt á Landeyjahöfn » Fleiri tengdar fréttir Herjólfur Gamli Herjólfur rétt ókominn til Eyja frá Færeyjum Herjólfur fer í slipp og sá gamli mun taka við „Mjög alvarleg bilun“ Nýr samningur gerður um Herjólf Telur aðbúnað við Herjólf vítaverðan » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » ÍBV - Haukar, staðan er 16:18 Segir „erfiðustu sjö ár lífs síns“ að baki Fjölmiðladrottning og myndlistamaður selja íbúð Kominn með nýtt starf í Noregi Ríkisstjórnin bregst við stöðu samgangna til Eyja Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir að um sögulegan áfanga sé að ræða Ríkisstjórnin bregst við stöðu samgangna til Eyja 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Kristrún vill sjálf dæma Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Mesta magn í sögunni Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » ÍBV - Haukar, staðan er 16:18 Segir „erfiðustu sjö ár lífs síns“ að baki Fjölmiðladrottning og myndlistamaður selja íbúð Kominn með nýtt starf í Noregi Ríkisstjórnin bregst við stöðu samgangna til Eyja Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ábati uppbyggingarinnar fer í nýjan listaháskóla Ekki kosningabrella Dýrkeypt veikindahlutföll Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Kristrún vill sjálf dæma Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Mesta magn í sögunni Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“