ÍBV tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum Olísdeildar kvenna í handbolta eftir sigur á Haukum í æsispennandi tvíframlengdum leik í Vestmannaeyjum í kvöld, 36-31. ÍBV var marki yfir í hálfleik, 15-14, og þegar 60 mínútur voru liðnar var jafnt, 27-27, og við tók framlenging. Þar hélt slagurinn áfram og að lokinn framlengingu var enn jafnt, nú 30-30, og aftur var framlengt. Í síðari framlengingunni náði ÍBV svo að slíta sig frá. ÍBV skoraði 6 mörk gegn 1 frá Haukum og vann með 36 mörkum gegn 31 og vann einvígið 3-2 og fer í úrslitin. Tölfræði leiksins má finna hér. ÍBV mætir Val í úrslitum og er fyrsti leikur liðanna á Hlíðarenda á laugardag. Birna Berg Haraldsdóttir og ÍBV leika til úrslita í Olísdeild kvennaRÚV / Mummi Lú