Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Óttast þrýsting: „Hvað ætla þeir með okkur?“

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 29.4.2026 | 11:49 Óttast þrýsting: „Hvað ætla þeir með okkur?“ Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita Ekki kosningabrella Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Enn deilt um mál sem klauf sveitarstjórnina » Fleiri tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Grindvíkingar ómyrkir í máli Beint: Halda íbúafund með þingmönnum Kristrún boðuð á fund Grindvíkinga Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Ekki mælt með að barnafjölskyldur flytji í bæinn » Fleiri tengdar fréttir Endurreisn Grindavíkur var í algjörum forgrunni í oddvitakappræðum sem fram fóru í myndveri Morgunblaðsins í Hádegismóum í vikunni. Einhugur var meðal oddvita um að hraða enduruppbyggingu sveitarfélagsins og koma samfélaginu aftur í eins eðlilegt horf og mögulegt er, þrátt fyrir að hættan á áframhaldandi náttúruhamförum vofi enn yfir. Í kappræðunum mættust þau Magnús Már Jakobsson, oddviti Miðflokksins, Guðbjörg Eyjólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, og Ásrún Helga Kristinsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins. Frambjóðendur lýstu allir áhyggjum af stöðu þeirra sem seldu fasteignafélaginu Þórkötlu eignir sínar og búa nú við óvissu. Um er að ræða 900 eignir sem ríkið greiðir ekki fasteignagjöld af með tilheyrandi tekjuskerðingu fyrir sveitarfélagið. Núverandi samningar við íbúa um búsetu í húsunum, svokallaðir hollvinasamningar, gilda aðeins til skamms tíma og skapar það að þeirra mati ekki nægjanlegan fyrirsjáanleika. „Ef það næst ekki einhver samningur af viti við ríkið, sem á allar fasteignirnar sem fasteignafélagið Þórkatla keypti, hvernig eigum við þá að koma fólki heim?“ spurði Guðbjörg en hún sagði húsnæðismálin „númer eitt, tvö og þrjú“ hjá næstu bæjarstjórn. Hvað ætla þeir með okkur? Grindavíkurnefnd hefur gefið út þau tilmæli að Þórkatla geri hvorki kaup- né leigusamninga við barnafólk og sagði Ásrún það fara mjög illa í fólk. „Það sem við erum mest ósátt við núna er að við fáum ekki öll jöfn tækifæri.“ Magnús lagði einnig áherslu á að fólk yrði að geta fengið húsin sín aftur ef það vildi snúa heim. „Það verður að eyða þessari óvissu,“ sagði hann og benti á að skammtímasamningar gerðu fólki erfitt fyrir að taka ákvarðanir um framtíð sína. Guðbjörg tók í sama streng og sagði húsnæðismálin vera „númer eitt, tvö og þrjú“ fyrir næstu bæjarstjórn. Eðlilegra væri að auðvelda fólki það að snúa aftur í bæinn, í stað þess að standa í vegi fyrir því. „Við höfum margbent á að nauðsynlegt sé að koma húsunum í notkun svo þau drabbist ekki niður, það hlýtur að vera vinningsatriði fyrir ríkið líka. Þetta er eign okkar allra. Ef ríkið lætur þetta drabbast niður á sinni vakt, hverjum er þá um að kenna, okkur íbúunum? Nei, við höfum fullan vilja til að koma til baka og máta okkur við nýja veruleika.“ Benti hún á að 1.400 manns störfuðu nú í Grindavík. „Við höfum næga atvinnu, okkur vantar bara fólkið.“ Sagði hún verk að vinna fyrir næstu bæjarstjórn að krefjast svara og áætlana frá ríkinu. „Hvað ætla þeir með okkur? Þarna geta þau beitt ákveðnum þrýstingi til að hamla uppbyggingu. Það er það sem við óttumst.“ Ásrún benti á að óvissan snerti því ekki aðeins íbúana heldur einnig rekstur sveitarfélagsins, þar sem tekjustofnar væru óljósir og því erfitt að skipuleggja uppbyggingu til lengri tíma. Oddvitarnir Magnús Már Jakobsson, Guðbjörg Eyjólfsdóttir og Ásrún Helga Kristinsdóttir. mbl.is/María Matthíasdóttir Ekki meiri hætta í Grindavík Magnús sagði Grindvíkinga hafa upplifað skilningsleysi af hálfu stjórnvalda og að ríkið hefði haldið aftur af þeim þegar kæmi að endurreisn og uppbyggingu og jafnvel staðið í vegi fyrir henni að einhverju leyti. Hann nefndi sem dæmi tilmæli um að hefja ekki skólahald og sagði þau ganga gegn hagsmunum barna. „Börnunum heilt yfir líður illa andlega af því að þau eru ekki heima, mjög mörg.“ Þá lýsti Guðbjörg yfir óánægju með vinnubrögð við áhættumat. Sagði hún sjálfstæðismenn leggja áherslu á að Grindvíkingar tækju öryggismálin í sínar hendur með því að virkja sína almannavarnanefnd sem fengi verkfræðinga til aðstoðar. „Við erum alveg fullfær um það,“ sagði hún. Ásrún sagði að þjóðin öll þyrfti í raun að taka höndum saman og vinna að endurreisn Grindavíkur. Samstarfið við ríkið hefði að mörgu leyti verið gott þrátt fyrir skiptar skoðanir á ýmsu. „Okkur greinir í rauninni á um hraða endurreisnar.“ Mikilvægt væri að tryggja öryggi og segir hún margt hafa áunnist þar, en tíminn hefði þó verið illa nýttur. Þá tók hún í sama streng og Guðbjörg og sagði nauðsynlegt að Grindvíkingar kæmu að gerð áhættumats. Frambjóðendur lögðu áherslu á að börn og fjölskyldur þyrftu stöðugleika og að það hefði neikvæð áhrif félagslega að vera fjarri heimahögunum. Allir voru sammála um að hefja ætti skólastarf í Grindavík næsta haust, þrátt fyrir varnaðarorð frá stjórnvöldum. Bæjarstjórn hefur þegar ráðið skólastjóra og undirbúningur er hafinn. Sagði Magnús það jafn líklegt að eitthvað alvarlegt gerðist í Grindavík og í hverju öðru sveitarfélagi á landinu. „Það eru ofboðslega mörg börn að bíða eftir því að komast heim.“ Nánast enginn ágreiningur er á milli framboða í Grindavík og ríkir einhugur um að hraða þurfi uppbyggingu bæjarins. mbl.is/María Matthíasdóttir Hafa skyldum að gegna Guðbjörg sagði að íbúar óttuðust að ríkið myndi beita ákveðnum þrýstingi varðandi húsnæðið til að koma í veg fyrir skólahald, en benti á að sveitarfélagið hefði skyldum að gegna. Það væri búið í öllum húsum í bænum sem Þórkatla ætti ekki. „Þar búa börn og unglingar og við verðum að veita þessu fólki þjónustu. Það er lögum samkvæmt.“ Tók Ásrún undir það. „Það er ekkert samfélag án barna,“ sagði hún. Ljóst er að ekki er mikill pólitískur ágreiningur á milli framboða, enda þau öll sammála um forgangsröðun verkefna, þrátt fyrir ólíka nálgun í einhverjum málum. Þá lýstu þau öll yfir vilja til samstarfs eftir kosningar og töldu lykilatriði í endurreisninni að vinna þétt og vel saman. „Það er mikilvægt að við sameinumst um þessi verkefni og vinnum saman með bjartsýni að leiðarljósi,“ sagði Ásrún. Þá voru þau sammála um að ráða ætti nýjan, faglegan bæjarstjóra að kosningum loknum. Kjósendur í Grindavík standa því frammi fyrir því að velja það framboð sem þeir treysta best til að þrýsta á stjórnvöld til að ná fram markmiðum um hraðari endurreisn eftir þær miklu hamfarir sem dunið hafa yfir bæjarbúa. ESB umræðan ekki tímabær Að lokum var vikið að umræðu um mögulega þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður Íslendinga við Evrópusambandið. Þar voru oddvitarnir sammála um að umræðan væri ekki tímabær og að brýnni verkefni væru fyrir hendi. Öll lýstu þau andstöðu við aðild. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita Ekki kosningabrella Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Enn deilt um mál sem klauf sveitarstjórnina » Fleiri tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Grindvíkingar ómyrkir í máli Beint: Halda íbúafund með þingmönnum Kristrún boðuð á fund Grindvíkinga Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Ekki mælt með að barnafjölskyldur flytji í bæinn » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Óttast þrýsting: „Hvað ætla þeir með okkur?“ Markvarsla ársins hjá Viktori Gísla? Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Verðbólgumælingar „í takt við stóru myndina“ „Erum ansi nærri mörkunum“ Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðgerðin Grimm: 280 handteknir Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Ábati uppbyggingarinnar fer í nýjan listaháskóla Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi Atli og Sunna nýir fréttastjórar Útvegar Kvennaathvarfinu náttföt, nærföt og sokka Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Nýjast á mbl.is » Óttast þrýsting: „Hvað ætla þeir með okkur?“ Markvarsla ársins hjá Viktori Gísla? Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Verðbólgumælinga

Share this article