Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Fugl flaug á línu og olli rafmagnsleysi Brynjólfur Þór Guðmundsson Rafmagnslaust varð milli Kirkjubæjarkluausturs og Víkur rétt fyrir klukkan eitt. Starfsmenn RARIKs voru fljótir að gera við bilunina og tíu mínútum síðar var rafmagn komið á aftur. Samkvæmt upplýsingum frá RARIK mun fugl hafa flogið á flutningslínu og valdið rafmagnsleysinu. Rafmagnslaust varð á grænmerkta svæðinu. RARIK Fyrir 28 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntagagnrýni Piparmeyjar: Alveg sérlega vel heppnuð saga „Þetta er fjári vel gert,“ segir Þorgeir Tryggvason en gagnrýnendur Kiljunnar eru á sama máli að Piparmeyjar eftir Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur sé bæði áhugaverð og skemmtileg aflestrar. Fyrir 46 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Vill að fangelsi verði lágmarksrefsing vegna vændiskaupa Dómsmálaráðherra hyggst girða fyrir að vændiskaupamálum ljúki án ákæru. Það hyggst hún gera með lagafrumvarpi um að fangelsi verði lágmarksrefsing vegna vændiskaupa. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál „Verðbólgan vonandi búin að toppa“ Tólf mánaða verðbólga hjaðnaði úr 5,4 í 5,2 prósent milli mánaða. Forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbanka Íslands segir að minni verðbólga geti orðið til þess að stýrivextir hækki minna en spáð hefur verið. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Verklok á nýjum hringvegi um Hornafjörð enn ótímasett Enn er bið á að umferð verði hleypt á nýja hringveginn um Hornafjarðarfljót. Framkvæmdir hafa staðið yfir frá 2020 en verkið hófst formlega árið 2017 með samningum við landeigendur. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Fær ekki að fljúga á meðan lágflugið er til rannsóknar Flugmaður Icelandair sem var með í lágflugi yfir Vestmannaeyjum í byrjun apríl fær ekki að fljúga meðan á rannsókn málsins stendur. Samgöngustofa getur svipt flugmenn leyfi verði þeir uppvísir um brot á reglum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Segir húsnæðispakka ekki taka á bráðavanda Formaður Félags fasteignasala segir að húsnæðipakki ríkisstjórnarinnar taki ekki á bráðavandanum á fasteignamarkaði. Lækka þurfi álögur á byggingarmarkaði til að tryggja áframhaldandi uppbyggingu íbúða. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Nágrannar reyndu að hrekja vændiskaupendur burt Grunur er um að vændi hafi þangað til nýlega verið selt í kjallaraíbúð í Túnunum í Reykjavík. Kínversk kona er grunuð um að hafa skipulagt starfsemina en hún var eftirlýst um tíma. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Rangárþing ytra 459 milljóna afgangur hjá Rangárþingi ytra Brynjólfur Þór Guðmundsson Um 459 milljóna króna afgangur var á rekstri Rangárþings ytra í fyrra þegar bæði eru tekin með sveitarsjóður og fyrirtæki í eigu sveitarfélagsins. Ef aðeins er litið til sveitarsjóðs og starfseminnar, sem er að öllu leyti fjármögnuð með skatttekjum, nam afgangurinn 376 milljónum. Ársreikningur verður lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn í dag. Tekjur A og B hluta námu 4.324 milljónum og jukust um tólf prósent milli ára. Útgjöld hljóðuðu upp á 3.713 milljónir, það er tólf prósentum meira en í fyrra. Fánar Rangárþings ytra við hún á hringtorgi. RÚV / Þorgils Jónsson Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Nýir fréttastjórar Sýnar Brynjólfur Þór Guðmundsson Atli Ísleifsson og Sunna Sæmundsdóttir eru orðin fréttastjórar á fréttastofu Sýnar. Árni Sæberg verður varafréttastjóri. Sunna hefur unnið á fréttastofu Sýnar frá 2017 og Atli frá 2014. Þau hafa bæði verið varafréttastjórar frá 2021. Kolbeinn Tumi Daðason, sem var fréttastjóri allra miðla Sýnar, varð ritstjóri fréttastofunnar þegar Erla Björg Gunnarsdóttir hætti í janúar. Atli og Sunna taka við stöðunni sem hann gegndi áður. Fréttastofa Sýnar flytur fréttir á Vísi, Bylgjunni og Sýn. Kolbeinn Tumi Daðason, Árni Sæberg, Sunna Sæmundsdóttir og Atli Ísleifsson á fréttastofu Sýnar. Sýn Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Hafa tekið 21 af lífi og handtekið 4000 síðan stríðið byrjaði Írönsk stjórnvöld hafa tekið að minnsta kosti 21 af lífi síðan stríðið í Mið-Austurlöndum byrjaði 28. febrúar. Rúmlega 4.000 hafa verið handteknir á sama tíma. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Forseti Íslands Forsetahjónin mæta í afmæli Svíakonungs Brynjólfur Þór Guðmundsson Halla Tómasdóttir forseti og Björn Skúlason, maki hennar, halda til Svíþjóðar í dag til að taka þátt í hátíðarhöldum í tilefni af áttræðisafmæli Karls Gústafs Svíakonungs á morgun. Karl Gústaf hefur verið konungur frá 1973 og lengst allra þjóðhöfðingja í sögu landsins. Halla og Björn taka þátt í hátíðarmessu í Slottskyrkan á morgun. Að henni lokinni verður afmælisdagskrá haldið áfram í konungshöllinni. Síðdegis býður borgarráð Stokkhólms til hádegisverðar og afmælishátíðinni lýkur með kvöldverði annað kvöld. Allir þjóðhöfðingjar á Norðurlöndum og fleiri þjóðarleiðtogar og gestir verða við hátíðarhöldin. Halla Tómasdóttir forseti. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Malí Frakkar hvattir til að yfirgefa Malí Ásrún Brynja Ingvarsdóttir Frönsk stjórnvöld hvetja franska ríkisborgara til þess að yfirgefa Afríkuríkið Malí við fyrsta tækifæri. Óstöðugt ástand er í landinu. Aðskilnaðarsinnar Túarega og herskáir íslamistar í Malí náðu um helgina völdum í bænum Kidal norðarlega í landinu, sem gegnir lykilhlutverki í stjórnsýslu norðurhlutans og vilja koma þar upp sjálfstæðu ríki. Umferð í Bamako á Malí, 27. apríl 2026. EPA / HADAMA DIAKITE Þar hafa herskáir íslamistar árum saman haft tögl og hagldir og gert líf íbúa þar nær óbærilegt með sprengjutilræðum, skotárásum og öðrum ódæðum. Frönsk yfirvöld ráða fólki eindregið frá ferðalögum til Malí, sem var frönsk nýlenda til ársins 1960. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Arkitektúr Niðurrif bygginga kemur kannski betur út í Excel-skjali en hver ætli kostnaðurinn sé fyrir samfélagið? Magnea Guðmundsdóttir arkitekt veltir fyrir sér hvort gjöld fyrir niðurrif og förgun séu of lág. Örlög gamla Morgunblaðshússins hafi til að mynda ráðist út frá því hvort hægt væri að leggja bílum í gamalli skrifstofubyggingu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ert þú í framboði? Vertu með í kosningaprófi RÚV RÚV býður almenningi að máta sig við frambjóðendur á landinu öllu í kosningaprófi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Til þess þurfa frambjóðendurnir að svara prófinu fyrst. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál „Það er því miður arðbært að hagnýta fólk“ Sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum segir vinnumansal ekki fara minnkandi. Átakanlegt sé hversu mikil eftirspurn eftir vændi sé á Íslandi. Hún kallar eftir gerð stefnu og aðgerðaráætlunar í mansalsmálum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Verðbólga hjaðnar milli mánaða Verðbólga var 5,2 prósent í apríl, 0,2 prósentustigum minni en mánuðinn á undan. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Snorri um breytingarnar miklu: „Ef einhvern tímann þá er það núna“ Snorri Steinn Guðjónsson ræddi þær miklu breytingar sem hann gerði á landsliðshópnum fyrir æfingaleiki gegn Egyptum. Snorri ræddi stöðu Björgvins Páls Gústavssonar, hvers vegna Egyptar urðu fyrir valinu og hvort að hann hugsi um HM á heimavelli. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Segja borgina koma sér undan því að bæta tjón starfsfólks Formenn Eflingar og Sameykis gagnrýna Reykjavíkurborg fyrir að bæta ekki tjón sem starfsfólk hennar verður fyrir við störf sín. Þau segja starfsfólk látið bera skaðann af skemmdarverkum og þjófnaði skjólstæðinga. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Suður-Kórea Þyngja refsingu fyrrverandi forseta Brynjólfur Þór Guðmundsson Áfrýjunardómstóll þyngdi í dag dóm yfir Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseta Suður-Kóreu. Hann var sakfelldur í ársbyrjun fyrir að hindra framgang réttvísinnar í tengslum við tilraun til valdaráns 2024. Hann hlaut upphaflega fimm ára fangelsisdóm en refsingin var þyngd í sjö ára fangelsi eftir áfrýjun. Yoon hafði þegar verið dæmdur fyrir tilraun til valdaráns og fékk fyrir það lífstíðardóm í fangelsi. Hann sætir líka ákæru fyrir að veita óvinum Suður-Kóreu liðsinni með því að senda dróna hersins til Norður-Kóreu snemma árs 2024. Hann neitar sök. Stuðningsmenn Yoon Suk Yeol með mynd af honum og slagorð. EPA / JEON HEON-KYUN Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skipulagsmál í brennidepli í oddvitaumræðum í Garðabæ Hvað skal hafa forgang við uppbyggingu í Garðabæ? Á að fjölga sérbýlum, minni íbúðum eða menningarhúsum og hvernig passar nýr golfvöllur á Álftanesi inn í framtíðarskipulag bæjarins? Tekist var á um þetta og margt fleira í oddvitaumræðum í gær. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Samfélagsmiðlar Facebook og Instagram brjóta reglur um aðgang barna segir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins Fyrstu niðurstöður rannsóknar Evrópusambandsins benda til þess að Meta, eigandi Facebook og Instagram, geri ekki nóg til að hindra aðgang barna. Rannsóknin er gerð á grundvelli reglugerðar sem er í innleiðingarferli hjá EES-ríkjunum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hvessir norðanlands Hiti gæti farið í þrettán til fjórtán stig á Norðaustur- og Austurlandi í dag. Allhvasst verður norðan til en hægari vindur. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Indland Mætti með lík systur sinnar í bankann til að taka fé út af reikningi hennar Indverskur karlmaður gróf upp lík systur sinnar og bar inn í bankaútibú til að sanna að hún væri látin eftir að starfsfólk bannaði honum að taka fé út af reikningum hennar án þess að framvísa dánarvottorði. Hann fær þó ekki féð nema gegn vottorði. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tölvuleikjaspil reyndist uppspretta hávaða sem talinn var heimilisofbeldi Markús Þ. Þórhallsson Ungur maður sem spilaði tölvuleiki af kappi reyndist uppspretta tilkynningar til lögreglu um hávaða og mögulegt heimilisofbeldi í Mosfellsbæ. Skjáskot úr tölvuleiknum vinsæla, League of Legends. Ekki liggur fyrir hvaða tölvuleikur var uppspretta hávaðans í Mosfellsbæ. Ljósmynd / Skjáskot Frá þ