Innlent | mbl | 29.4.2026 | 19:24 Mótmæla aukinni skattheimtu harðlega Daði Már Kristófersson kynnti fjármálaáæelun á dögunum. Samtök fyrirtækja á fjármálamarkaði gagnrýna áform um skattahækkanir harðlega. Heiðrún Jónsdóttir er framkvæmdastjóri samtakanna. Samsett mynd/Aðsend/mbl.is/Eggert Setja bókamerki Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, SFF, leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um aukna skattheimtu á fyrirtæki í fjármálageiranum. Þetta kemur fram í umsögn samtakanna um fjármálaáætlun fyrir árin 2027 til 2031. Í greinargerð með fjármálaáætluninni kemur fram að afla eigi viðbótarskatttekna frá fyrirtækjum í fjármálageiranum, sem greiði nú þegar sérstaka skatta af skuldum, launum og hagnaði. Væri nær að vinda ofan af sköttum SFF segja áformin koma verulega á óvart. Fjármálafyrirtæki hér á landi búi nú þegar við íþyngjandi sértækar álögur, hærri eiginfjárkröfur og hærri óvaxtaberandi bindiskyldu en þekkist víða í nágrannaríkjum. Samtökin telja nær að vinda ofan af núverandi álögum en að bæta við nýjum. Ekkert samráð Í umsögninni er sérstaklega gagnrýnt að ekkert samráð hafi verið haft við SFF áður en áformin voru sett fram. Samtökin segja óljóst hvers konar skattahækkanir séu fyrirhugaðar, hvernig þær verði útfærðar, hvort þær verði tímabundnar eða varanlegar og að hverjum þær beinist. Sértækir skattar um allt SFF taka sem dæmi að íslensk fjármálafyrirtæki greiði nú þegar sérstakan skatt af skuldum, sérstakan fjársýsluskatt af hagnaði og fjársýsluskatt af launum. Þá bætist við eftirlitsgjald til Seðlabanka Íslands og gjald vegna reksturs embættis Umboðsmanns skuldara. Að mati samtakanna sýnir þetta að fjármálageirinn búi við mun þyngra skatta- og gjaldaumhverfi en flestar aðrar atvinnugreinar. Áhrif á lánveitingar Samtökin nefna einnig að óvaxtaberandi bindiskylda banka hafi verið hækkuð úr einu prósenti í þrjú prósent á árunum 2023 og 2024. Hún sé ekki skattur að formi til, en hafi sambærileg áhrif þar sem lánastofnanir þurfi að geyma fé vaxtalaust hjá Seðlabankanum. SFF segja þetta nema um átta milljörðum króna á ári í töpuðum vaxtatekjum fyrir lánveitendur. SFF vara við því að slík óvissa geti haft neikvæð áhrif á fjármálamarkað, fjármögnun fjármálafyrirtækja og áhuga erlendra fjárfesta á Íslandi. Ófyrirsjáanlegar breytingar á sköttum geti einnig haft áhrif á lánveitingar og miðlun fjármagns til heimila og fyrirtækja. Almenningur beri byrðarnar einnig Í umsögninni kemur fram að bankar og tryggingafélög hafi greitt um 21 milljarð króna í sértæka skatta og gjöld árið 2025, auk þess sem bankarnir greiddu meira en 30 milljarða króna í hefðbundinn tekjuskatt. SFF benda einnig á að almenningur sé stór eigandi bankakerfisins, bæði beint og í gegnum lífeyrissjóði og ríkissjóð, og muni því að mati samtakanna bera hluta aukinnar skattbyrði. Kalla eftir samtali við stjórnvöld Samtökin segja boðaðar skattahækkanir ganga gegn markmiðum stjórnvalda um einfaldara regluverk, aukna samkeppnishæfni, erlenda fjárfestingu og eflingu atvinnulífs. Þau kalla eftir frekara samtali við stjórnvöld áður en ákvörðun verður tekin um frekari skattlagningu fjármálageirans. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Brast í grát á sviði eftir framhjáhald Stjarnan – Valur, staðan er 0:0 Atlético Madrid – Arsenal, staðan er 0:0 Kristall með þrennu gegn toppliðinu Hildur glansaði í ljósblárri dragt í Bragganum Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áhrif olíuverðhækkana koma þungt fram Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Láta undan suði og vilja fræðslu um klám Vesturlandsvegur skal varinn Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Brast í grát á sviði eftir framhjáhald Stjarnan – Valur, staðan er 0:0 Atlético Madrid – Arsenal, staðan er 0:0 Kristall með þrennu gegn toppliðinu Hildur glansaði í ljósblárri dragt í Bragganum Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Betur má ef duga skal“ Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“