Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 4 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Flóttafólk Að minnsta kosti 17 flóttamenn taldir af undan strönd Líbíu Markús Þ. Þórhallsson Að minnsta kosti sautján flóttamenn eru taldir af og níu er saknað eftir að báti þeirra hvolfdi á Miðjarðarhafi undan ströndum Líbíu. Hópur flóttafólks kemur til spænsku eyjunnar Lanzarote 21. apríl. Myndin tengist fréttinni ekki beint. EPA / Adriel Perdomo Líbíski Rauði hálfmáninn greinir frá þessu og segir sjálfboðaliða hafa bjargað sjö úr hafinu við borgina Tobruk, skammt frá landamærunum að Egyptalandi. Sjóher Líbíu og strandgæsla tóku einnig þátt í björgunaraðgerðunum. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump segir herkví um Íran geta varað í marga mánuði til viðbótar Olíuverð hækkaði eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði herkví Bandaríkjanna um Íran geta staðið í nokkra mánuði. Verðið hefur ekki verið hærra um fjögurra ára skeið. Hann segir ætlunina að kæfa íranskan efnahag. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Ísraelsher stöðvar för 80 báta Markús Þ. Þórhallsson Ísraelsher hefur stöðvað för um áttatíu báta á leið til Gaza með um eitt þúsund aðgerðarsinna innanborðs. Einn af bátum flotans að leggja af stað til Gaza. EPA / ORIETTA SCARDINO Herinn greinir frá þessu í færslu á X og samtökin Global Sumud staðfesta að herskip hafi stöðvað flotann. Áhafnir þeirra hafi sagst vera ísraelskar, beint vopnum að bátsverjum og skipað þeim að leggjast á fjóra fætur. Flotinn lagði upp frá Evrópu fyrr í apríl með það markmið að rjúfa hafnbann Ísraelsríkis og koma hjálpargögnum til Gaza. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Baldur fer til Eyja Hugrún Hannesdóttir Diego Breiðafjarðarferjunni Baldri verður siglt til Vestmannaeyja í fyrramálið og mun sigla milli lands og Eyja meðan ástandið í Landeyjahöfn varir. Þetta kemur fram í tilkynningu Vegagerðarinnar. Samkomulag hafi náðst um þetta og reiknað með að Baldur hefji siglingar á föstudag. Á meðan falla ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð niður. Vegagerðin segir að vegna veðurs og sjólags sé ekki útlit fyrir að hægt verði að hefja dýpkun Landeyjahafnar fyrr en á föstudag. Horfurnar til dýpkunar séu ágætar næstu daga á eftir. Aðsend / Leifur Harðarson Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ofbeldi Margir í óheilbrigðu sambandi án þess að átta sig á því Indíana Rós Ægisdóttir, verkefnastýra Jafnréttisskóla Reykjavíkurborgar, segir marga vera í óheilbrigðu sambandi án þess að gera sér grein fyrir því. Mikilvægt sé að fullorðnir séu fyrirmyndir fyrir ungmenni. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Bílstjórar BSO kveðja miðbæinn með trega Rúmlega sjötíu ára sögu BSO á Akureyri lýkur í vikunni þegar bílstjórar flytja úr gömlu leigubílastöðinni við Strandgötu. Starfsfólk sér eftir húsinu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Lokaðir hópar þar sem strákar eru að skiptast á nektarmyndum af kærustunum sínum“ Meira er um ofbeldi í nánum samböndum en áður var talið og ungmenni treysta sér síður til þess að segja frá. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Eigendur gististaða geti ekki firrt sig ábyrgð ef vændi viðgengst þar árum saman Sterkur grunur er um að fólk sem leitað hefur til ASÍ vegna misneytingar í vinnu sé líka þolendur vændismansals. Formaður fyrirtækja í hótelrekstri segir eigendur ekki geta firrt sig ábyrgð ef vændi viðgengst á gististöðum árum saman. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Tindastóll hélt sér á lífi Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Basile var öflugur með Tindastóli í kvöld að venju. Mummi Lú Tindastóll vann Stjörnuna í kvöld í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta, 103-88. Þar með minnkuðu Skagfirðingar muninn í einvíginu í 2-1 í unnum leikjum en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit. Minnst einn leikur bætist því við rimmu liðanna en þau mætast næst í Ásgarði í Garðabæ á sunnudagskvöld. Vinni Stjarnan þá er einvíginu lokið, en takist Tindastóli að vinna annan leikinn í röð yrði oddaleikurinn á Sauðárkróki 6. maí. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Breiðablik með fullt hús og Stjarnan vann Val Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Líf Joostdóttir van Bemmel skoraði fyrir Blika í kvöld. RÚV / Mummi Lú Breiðablik hefur titilvörn sína vel í Bestu deild kvenna í fótbolta. Blikar unnu í kvöld 2-0 sigur á Fram í 2. umferð deildarinnar og hafa fullt hús stiga eða sex talsins. Líf Joostdóttir van Bemmel kom Breiðabliki yfir á 57. mínútu og Barbára Sól Gísladóttir bætti öðru marki við tíu mínútum síðar. Stjarnan sótti svo sín fyrstu stig á leiktíðinni með 2-0 sigri á Val. Birna Jóhannsdóttir skoraði fyrra mark Garðbæinga á 61. mínútu og Jana Sól Valdimarsdóttir innsiglaði svo sigurinn á 90. mínútu. Valur vann Grindavík/Njarðvík í 1. umferð og því hafa bæði Stjarnan og Valur sín þrjú stigin hvort lið í deildinni. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Allt í járnum í einvígi Atlético og Arsenal Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Liðsmenn Arsenal fagna marki sínu í kvöld. EPA / KIKO HUESCA Atlético Madríd og Arsenal skildu jöfn 1-1 í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Leikið var á heimavelli Atlético á Spáni. Arsenal komst yfir á 44. mínútu með marki Viktors Gyökeres úr vítaspyrnu. Atlético fékk svo víti eftir um tíu mínútna leik í seinni hálfleik og Julian Alvárez skoraði úr því og jafnaði í 1-1. Þar við sat og því er allt í járnum fyrir síðari leik liðanna sem spilaður verður á heimavelli Arsenal í London í næstu viku. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Á von á að lækkun skili sér fljótt til bensíndælunnar „Þetta mun skila sér strax eftir 1. maí,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra um tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. Breytingin gildir til 31. ágúst sem þingmönnum minnihlutans þykir of skammur tími. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Hlaup Íslandsmetin féllu í skemmtilegu götumíluhlaupi Íslandsmet karla og kvenna féllu í götumíluhlaupi í gærkvöld þegar Vecct götumíluhlaupið var haldið. Aðstæður voru að öllu leyti góðar fyrir undan veðrið. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hveragerðisbær 80 ára afmæli Hveragerðis fagnað með forsetahjónunum „Ylurinn ræður ríkjum í Hveragerði,“ segir Halla Tómasdóttir, forseti Íslands. Forsetahjónin heimsóttu Hveragerði í dag í tilefni af 80 ára afmæli bæjarins. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddvitaumræður á Seltjarnarnesi Oddvitar framboða á Seltjarnarnesi mætast í oddvitaumræðum á RÚV fyrir sveitarstjórnarkosningar. Þrír listar eru í framboði. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dans Kátir krakkar tóku kisuna og slönguna á Alþjóðlega dansdeginum Dansinn dunaði dátt við taktfasta tóna í Hörpunni fyrr í dag, þar sem haldið var upp á Alþjóðlega dansdaginn. Börn á öllum aldri og fjölskyldur þeirra fjölmenntu í sannkallaðri dansveislu þar sem þátttakendur fengu kennslu í Dansi ársins. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Stöðugildum fækkað um 40 á Landspítala til að mæta halla Fjárheimildir Landspítalans mæta ekki rekstraráætlun hans og þar munar um fimm milljörðum. Stærsti liðurinn er vegna kjarasamningsbundinna launahækkana, að sögn forstjórans. Stöðugildum verður fækkað um 40 til að mæta hallanum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Segja fátt nýtt í húsnæðispakka stjórnvalda Formenn stjórnarandstöðuflokka á Alþingi segja útspil ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum ekki duga til að taka á þeim vanda sem ríki á fasteignamarkaði. Tillögurnar beri keim af komandi kosningum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddvitaumræður á Ísafirði Oddvitar framboða á Ísafirði mætast í oddvitaumræðum á RÚV fyrir sveitarstjórnarkosningar. Fimm listar bjóða fram. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Rannsaka hnífaárás í Lundúnum sem hryðjuverk Lundúnalögreglan rannsakar hnífaárás, þar sem tveir menn voru stungnir, sem hryðjuverk. Mennirnir voru fluttir á sjúkrahús en eru ekki í lífshættu. Þeir eru gyðingar. Ofbeldi gegn gyðingum hefur aukist í Bretlandi síðasta áratug. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hópur ungmenna réðst á dreng í Hamraborg Drengur var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku eftir að hópur ungmenna veittist að honum í Hamraborg í Kópavogi í dag. Starfsfólk heilsugæslu hlúði að honum þar til sjúkrabíll kom á staðinn. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsókn boðar Reykjavík á grænu ljósi Frambjóðendur Framsóknar í Reykjavík kynntu stefnumál flokksins fyrir borgarstjórnarkosningar í dag. Oddviti flokksins, Einar Þorsteinsson, segir mikilvægt að mæta þörfum borgarbúa frekar en að reyna að breyta því hvernig fólk lifir lífi sínu. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hvern ætli þessi framhaldsskólanemi kjósi? Framhaldsskólanemar undir 18 ára aldri kjósa sinn fulltrúa í sveitarstjórn í dag. Við fylgdum eftir 17 ára nemenda við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ sem tók í fyrsta sinn þátt í skuggakosningum. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntagagnrýni Myrkravald: Skilur lítið eftir og ekki nógu góð „Eva Björg er það hæfileikamikil, og kannski er ég grimm, en mér finnst bara að hún eigi að gera betur,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir gagnrýnandi um Myrkravald sem Eva Björg skrifaði með Jérôme Loubry. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Framlengja gæsluvarðhald í Dettifossmáli Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl með Dettifossi. Fjórmenningarnir eru á þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri og eru frá Íslandi. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Hernaðaraðgerðir í Íran kostað 25 milljarða Bandaríkjadala Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna gegn Íran hafa kostað ríkið um 25 milljarða hingað til. Þetta herma heimildir fréttastofu Reuters. Embættismaður úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna kom fyrir þingnefnd í dag og sagði að mestur hafi kostnaðurinn verið vegna vopnabúnaðar. Ekki fékkst upp gefið hvort þessi kostnaður fæli í sér