200 mílur | Morgunblaðið | 30.4.2026 | 8:36 Landa síður afla í Vestmannaeyjum Flutningar Tíðar bilanir í Herjólfi og ferðir sem felldar eru niður vegna veðurs valda því að sjávarútvegsfyrirtæki landa oftar á meginlandinu. Morgunblaðið/Óskar Pétur Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Óáreiðanleiki í flutningum til og frá Vestmannaeyjum hefur haft umtalsverð áhrif á starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja, að sögn Sigurgeirs Brynjars Kristgeirssonar framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar, sem oftast er nefndur Binni. Hann segir útgerðir hafa í auknum mæli þurft að landa afla sínum á meginlandinu vegna erfiðleika við að koma fiski á milli lands og Eyja. Ástæðan er meðal annars tíðar bilanir í ferjunni Herjólfi og reglulegar niðurfellingar ferða vegna veðurs. „Þetta er bara staðreynd,“ segir Binni í samtali við Morgunblaðið. „Við höfum landað meira uppi á landi af þeim ástæðum að við höfum hvorki komið fiski til eða frá Eyjum.“ Hann segir vandann hafa bein áhrif á daglegan rekstur fyrirtækisins og geri alla skipulagningu erfiðari. Frétt af mbl.is Herjólfur bilaður og höfnin lokuð „Þetta er líka algjört ófremdarástand, að þurfa að vera með skipið á hálfu afli,“ segir hann um bilanir í Herjólfi sem hafa valdið því að skipið þarf að fara hægar yfir. „Ég skil það vel sem gamall sjóari að þú getur ekki verið með skip á hálfu afli í vondu veðri að sigla inn í höfn. Þú þarft allt afl vélarinnar til taks ef á þarf að halda.“ Flutningakerfið slæmt í vetur Flutningavandinn snýst þó ekki aðeins um útflutning heldur einnig aðföng. Vinnslustöðin kaupir til að mynda fisk til vinnslu í Eyjum, en að sögn Binna hefur það orðið æ snúnara. „Á köflum getum við hreinlega ekki keypt fisk uppi á landi vegna þess að við erum ekki viss um að við munum geta flutt hann til Eyja,“ segir hann. „Þannig að þetta er allt miklu erfiðara og flóknara og auðvitað kostnaðarsamara líka.“ Frétt af mbl.is Ríkisstjórnin bregst við stöðu samgangna til Eyja Að mati Binna eru bilanir ekki eina vandamálið. „Flutningakerfið allt til og frá Eyjum hefur einfaldlega ekki verið í lagi í vetur,“ segir hann og bendir á að það hafi færst í vöxt að skip veigri sér við að hafa viðkomu í Vestmannaeyjum þegar veðurspár eru óhagstæðar. „Menn hafa jafnvel aflýst ferðum hingað til Eyja þegar það spáir illa en svo hafa þeir siglt fram hjá Eyjum og þá er komin blíða.“ Hann nefnir jafnframt að flutningafyrirtækin hafi einnig glímt við bilanir, rétt eins og Herjólfur. Mikilvæg stórskipahöfn Töluverðar vonir eru bundnar við byggingu stórskipakants en framkvæmdir við hann eru þegar hafnar. Að núverandi kanti komast aðeins lítil flutningaskip sem eru 150-170 metrar en að stórskipakantinum gætu lagst skip sem eru allt að 300 metra löng, bæði stór vöruflutningaskip og stærri skemmtiferðaskip. Enn eru einhver ár í að hann verði tilbúinn. Frétt af mbl.is Töf á viðkomu í Vestmannaeyjum „Þá verður siglingin inn í stórskipahöfnina einfaldari og öruggari og allt verður fljótafgreitt,“ segir Binni. „Það má alveg virða það við flutningafyrirtækin að þau eru að reka skip sem eru of lítil, og í raun ekki eins hagkvæm og stóru skipin, til þess að koma þeim til Eyja.“ Hann sér fyrir sér að þegar stórskipahöfn verði tilbúin muni flutningafyrirtækin fjárfesta í stærri og hagkvæmari skipum sem kæmust þá inn í stórskipahöfnina til að sækja fisk. „Ekki má heldur gleyma því að miðað við uppbygginguna á Laxey verður eftir nokkur ár farið að flytja út 35 þúsund tonn af ferskum fiski. Það er fiskur sem verður til og er slátrað alla daga ársins,“ segir Binni að lokum og áréttar mikilvægi þess fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum að samgöngur og flutningar haldist áreiðanleg. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Íslenskur skötuselur sá eini með sjálfbærnivottun Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Töf á viðræðum við Færeyjar Lax á kókaíni syndir linnulaust Veltihringrásin nálgast vendipunkt Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Haldið af stað til síldarmælinga Þróun Sundahafnar flækist Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Íslenskur skötuselur sá eini með sjálfbærnivottun Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Tífalt dýrari en lax Haldið af stað til síldarmælinga Lax á kókaíni syndir linnulaust Töf á viðræðum við Færeyjar Veltihringrásin nálgast vendipunkt Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Veltihringrásin nálgast vendipunkt Lax á kókaíni syndir linnulaust Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Sjötugur og gerir út á eikarbát Gísli Jóns er núna Kristrún Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Ankeri opnar nýja skrifstofu í Singapúr Drógu aflvana bát til lands Fleira áhugavert Verðbólgumælingar „í takt við stóru myndina“ Málin fleiri en koma inn á borð lögreglu Aðgerðin Grimm: 280 handteknir Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 29.4.26 625,86 kr/kg Þorskur, slægður 29.4.26 856,57 kr/kg Ýsa, óslægð 29.4.26 472,18 kr/kg Ýsa, slægð 29.4.26 377,59 kr/kg Ufsi, óslægður 29.4.26 251,04 kr/kg Ufsi, slægður 29.4.26 287,79 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 29.4.26 443,27 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 26.4.26 45,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 29.4.26 Konráð EA 90 Grásleppunet Grásleppa 349 kg Þorskur 152 kg Samtals 501 kg 29.4.26 Konráð EA 90 Grásleppunet Grásleppa 233 kg Þorskur 37 kg Samtals 270 kg 29.4.26 Glettingur NS 100 Grásleppunet Þorskur 153 kg Skarkoli 33 kg Samtals 186 kg 29.4.26 Guðborg NS 336 Grásleppunet Grásleppa 2.317 kg Skarkoli 114 kg Þorskur 102 kg Samtals 2.533 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Íslenskur skötuselur sá eini með sjálfbærnivottun Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Töf á viðræðum við Færeyjar Lax á kókaíni syndir linnulaust Veltihringrásin nálgast vendipunkt Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Haldið af stað til síldarmælinga Þróun Sundahafnar flækist Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Íslenskur skötuselur sá eini með sjálfbærnivottun Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Tífalt dýrari en lax Haldið af stað til síldarmælinga Lax á kókaíni syndir linnulaust Töf á viðræðum við Færeyjar Veltihringrásin nálgast vendipunkt Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Veltihringrásin nálgast vendipunkt Lax á kókaíni syndir linnulaust Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Sjötugur og gerir út á eikarbát Gísli Jóns er núna Kristrún Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Ankeri opnar nýja skrifstofu í Singapúr Drógu aflvana bát til lands Fleira áhugavert Áhrif olíuverðhækkana koma þungt fram Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Klám er undirstöðuvandamálið „Börnunum heilt yfir líður illa“ Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 29.4.26 625,86 kr/kg Þorskur, slægður 29.4.26 856,57 kr/kg Ýsa, óslægð 29.4.26 472,18 kr/kg Ýsa, slægð 29.4.26 377,59 kr/kg Ufsi, óslægður 29.4.26 251,04 kr/kg Ufsi, slægður 29.4.26 287,79 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 29.4.26 443,27 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 26.4.26 45,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 29.4.26 Konráð EA 90 Grásleppunet Grásleppa 349 kg Þorskur 152 kg Samtals 501 kg 29.4.26 Konráð EA 90 Grásleppunet Grásleppa 233 kg Þorskur 37 kg Samtals 270 kg 29.4.26 Glettingur NS 100 Grásleppunet Þorskur 153 kg Skarkoli 33 kg Samtals 186 kg 29.4.26 Guðborg NS 336 Grásleppunet Grásleppa 2.317 kg Skarkoli 114 kg Þorskur 102 kg Samtals 2.533 kg Skoða allar landanir »