Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Samfélagsmiðillinn X ávíttur vegna Grok

  • What: Brazilian authorities are demanding that social media platform X prevent users of its Grok AI model from creating deepfakes of children and adults without consent.
  • Impact: X may face lawsuits and fines if it fails to comply with the demands.
Read Full Article →

Yfirsaksóknari Brasilíu, Persónuverndarstofnun og Neytendavernd Brasilíu hafa gefið samfélagsmiðlinum X fimm daga til að bregðast við kröfum þeirra um að koma í veg fyrir að notendur Grok gervigreindarlíkansins geti búið til djúpfalsað myndefni sem sýnir börn og unglinga á kynferðislegan hátt eða fullorðna einstaklinga sem ekki hafa veitt samþykki sitt. Verði samfélagsmiðillinn ekki við þessum kröfum, þá getur X átt von á málaferlum og sektum. Brasilísk yfirvöld höfðu áður farið fram á að Grok myndi loka fyrir þennan möguleika á forritinu. Samfélagsmiðillinn X eyddi þúsundum mynda og lokaði hundruðum notendareikninga eftir þessa viðvörun brasilískra yfirvalda. Athugun leiddi þó í ljós að Grok-notendur gátu áfram djúpfalsað myndefni og því ákváðu yfirvöld að stíga enn fastar niður gegn samfélagsmiðlinum. Indónesía hefur lokað alfarið á Grok gervigreindarlíkanið. Fleiri ríki eru með það til skoðunar að takmarka Grok eða banna notkun Grok með þessum hætti.

Share this article