Innlent | Morgunblaðið | 12.2.2026 | 8:02 50-60 metra rof á Reynisfjöru Kort/mbl.is „Það hefur verið töluvert landbrot, töluvert rof – hátt í 50-60 metrar sums staðar, og það stórsér á fjörunni,“ segir Jóhannes Marteinn Jóhannesson, jarðfræðingur hjá Kötlu jarðvangi, en hann var við mælingar í Reynisfjöru í gær. Sandurinn á suðurströndinni flyst eftir ölduáttum til austurs í vestlægum áttum og til vesturs í austlægum. Suðvestanáttir eru almennt ríkjandi í Reynisfjöru og eins og t.d. má sjá á landakorti er fjaran almennt breiðari að austanverðu. Austlægar áttir hafa þó verið ríkjandi undanfarið og hávaðarok á svæðinu sem gert hefur að verkum að tekið hefur úr fjörunni að austanverðu og efnið a.m.k. að hluta hlaðist upp að vestanverðu við Arnardrang og Dyrhólaey. 200 metra rof Í skýrslu Rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar um strandlínubreytingar á Suðausturlandi kemur fram að allt að 200 metra rof hafi orðið á fjörunni frá Dyrhólaósi að Reynisdröngum á árunum 1903 til 2021. Frá 1904 til 1926 og 1928 virðist ströndin reyndar hafa gengið fram um allt að 110 metra en síðan hafi tímabil rofs tekið við. Jóhannes hefur gert mælingar fyrir Ingibjörgu Jónsdóttur í Háskóla Íslands. Eins og sjá má á kortinu var fjaran lengra úti árið 1980 og í tvö tímabil var hún töluvert hátt uppi; 1996 og 2021. Aðrar mælingar eru nokkurn veginn á sama róli utan þeirrar frá því núna í febrúar þar sem fjaran er langlengst uppi. Segist Jóhannes reyndar þurfa að fara varlega í ályktunum því að mælingarnar á kortinu séu allar dregnar af loftmyndum sem teknar eru yfir sumar nema sú frá því nú í febrúar sem er dregin af gervitunglamynd frá því fyrr í mánuðinum. Strandlengjan geti breyst mikið þar til í sumar þegar næsta loftmynd verður tekin. Um atburðina, þegar ógnarkraftar sjávar taka strandlengjuna og færa efni til og frá, segir Jóhannes að eðlilega fari fínefnið í burtu fyrst og stærri öldur þurfi til að færa stærri steinana. Getur brotnað frekar úr í dag Segir hann fjöruna nú mjög stutta og bratta. Eftir sé greinilega gamall steinhryggur sem honum sýnist geta haldið áfram að brotna úr í dag þegar verður hátt í þriggja metra ölduhæð. „Síðan á morgun og laugardag á að snúast í sunnan- og suðvestanöldu þannig að þetta gæti farið að lagast eitthvað. Það kemur náttúrulega alltaf til baka í suðvestanáttinni en það er bara spurning hversu langan tíma þú færð.“ Lýsir Jóhannes komandi atburðarás þannig að fjaran breikki fyrst aftur en verði mun lægri en áður og það taki mun lengri tíma að hækka hana á ný. Á nokkrum dögum geti fjaran jafnað sig nægilega mikið til að hægt verði að labba niður á hana en það geti tekið mánuði og jafnvel ár að byggja hana aftur upp í sömu hæð. Getur bjargað pallinum Grafið hefur undan útsýnispallinum í Reynisfjöru og brugðu landeigendur á það ráð að reyna að verja pallinn með því að fá verktaka úr Vík til að hlaða upp blágrýti neðan við hann. „Þegar ég var þarna í dag var búið að sturta einu eða tveimur hlössum þarna fyrir framan. Miðað við að það eru ekki að koma stórir stormar eins og er getur þetta alveg bjargað pallinum, þannig að það er ágætis framtak,“ segir Jóhannes. Hvað aðrar framkvæmdir eða björgunaraðgerðir í Reynisfjöru varðar segir Jóhannes það stórmál að ætla að snúa vilja náttúrunnar. „Það hefur aðeins brotnað upp úr malbikinu sem pallurinn er á. Það þyrfti að laga það og kannski byggja aftur upp gönguleiðina frá pallinum og niður á fjöruna en vonandi jafnar fjaran sig nægilega mikið til að það verði auðveldara að ganga þarna niður. Annars er orkustigið þarna það hátt að til að reyna að verja land þarf ansi miklar framkvæmdir,“ segir Jóhannes sem vonast til að þessum atburði sé að verða lokið og segir að sem betur fer séu slíkir atburðir fátíðir. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Dómur staðfestur yfir konu sem myrti son sinn Um 2.600 íbúðarhús án hita eftir árásir Rússa 50-60 metra rof á Reynisfjöru Hver eru samningsmarkmiðin? Er stolt af háloftakynlífinu Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert Sigrún, Ævar, Elín, Kristín og Margrét unnu Starmer krefur Ratcliffe um afsökunarbeiðni Væringar í Vopnafjarðarhreppi Hafa borið kennsl á árásarmanninn Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bæjarstjórinn einn á móti Ekki með eigin flokk að baki sér „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Smitaður af berklum: Sýna starfsfólki engan stuðning Inga tekur fimm með sér úr félagsmálaráðuneytinu Allt að 15 stiga frost Væringar í Vopnafjarðarhreppi Unnið gegn eigin markmiðum 29% fyrirtækja fá starfsfólk seint úr fæðingarorlofi Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum Dómur staðfestur yfir konu sem myrti son sinn Um 2.600 íbúðarhús án hita eftir árásir Rússa 50-60 metra rof á Reynisfjöru Hver eru samningsmarkmiðin? Er stolt af háloftakynlífinu Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Veruleg fjölgun í íslenskum málum hjá Eurojust Kyndir undir kreppu á Kúbu Unnið gegn eigin markmiðum Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bæjarstjórinn einn á móti Ekki með eigin flokk að baki sér „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Smitaður af berklum: Sýna starfsfólki engan stuðning Inga tekur fimm með sér úr félagsmálaráðuneytinu Allt að 15 stiga frost Væringar í Vopnafjarðarhreppi Unnið gegn eigin markmiðum 29% fyrirtækja fá starfsfólk seint úr fæðingarorlofi Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum