Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Óvænt úrslit á fyrsta degi Íslandsmótsins í skák

Read Full Article →

Íslandsmótið í skák (Skákþing Íslands – landsliðsflokkur) hófst í Miðgarði í Garðabæ í gær. Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson þykir sigurstranglegastur en búist er við að hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), veiti honum harða keppni. Stigahæstu mennirnir Vignir Vatnar og Hannes Stefánssynir unnu skyldusigra í fyrstu umferðinni og sama má segja um Hilmi Frey Heimisson gegn Lenku Ptacnikovu. Óvænt úrslit þegar Bárður Örn Birkisson hafði betur gegn Birni Þorfinnssyni þó ekki sé langt á milli þeirra í styrkleika. Dagur Ragnarsson og Guðmundur Kjartansson sættust á skiptan hlut í baráttuskák þar sem Dagur setti nokkra pressu á Guðmund en þeir eru báðir með stigahæstu mönnum á mótinu. Önnur umferð hfst kl. 15 í dag Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð. Athyglisvert er að Vignir mætir Hannesi Hlífari og Guðmundi í síðustu tveimur umferðunum. Einnig vekur athygli að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu því slíkt hefur ekki gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi áður teflt saman. Hægt að fylgjast með skákunum á netinu Skáksamband Íslands býður upp á beinar útsendingar með 15 mínútna seinkun og samantektir í lok dags. Allar upplýsingar og útsendingar eru aðgengilegar á skak.is , en einnig má fylgjast með mótinu og stöðunni á Chess-Results .

Share this article