Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 30 mínútumÍÞRÓTTIR Körfubolti Haukakonur í úrslitarimmuna um titilinn Hans Steinar Bjarnason Haukar leika til úrslita um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta annað árið í röð. Haukar sem eru ríkjandi Íslandsmeistarar unnu Keflavík í kvöld, 98-72, og einvígi liðanna 3-1. Haukar voru 24 stigum yfir í hálfleik, 46-22, og sigurinn var aldrei í hættu. Haukakonur urðu Íslandsmeistarar 2025 og leika nú aftur til úrslita um titilinn. Mummi Lú Haukar leika til úrslita um titilinn við annað hvort Grindavík eða Njarðvík sem mætast í oddaleik á þriðjudag. Staðan í einvígi þeirra er jöfn, 2-2. Fyrir 25 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Fólk flykktist í Glæsibæ á Ókeypis myndasögudeginum Það var örtröð í versluninni Nexus í Glæsibæ í dag, en þar fengust bækur og myndasögublöð gefins, í tilefni Ókeypis myndasögudagsins. Fyrir 43 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti KR skoraði fjögur gegn Val og er enn með fullt hús á toppnum KR vann 4-1 sigur á Val í stórleik fimmtu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta á Hlíðarenda í kvöld. KR hefur unnið alla fimm leiki sína í deildinni og trónir á toppi deildarinnar. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf „Vondir gaurar að gera góða hluti“ Fimmhundraðasta og fyrsta hersveit keisarans ásamt hetjum í geislasverðafélaginu mættu á bókasafn Hafnarfjarðar í dag. Í byrjun maí ár hvert stendur mikið til hjá aðdáendum Stjörnustríðs. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Hljóp sjötíu kílómetra fyrir Krabbameinsfélag Austurlands Ungur Borgfirðingur hljóp í dag sjötíu kílómetra leið frá Egilsstöðum til Borgarfjarðar eystri til að vekja athygli á Krabbameinsfélagi Austurlands. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Orkuskiptin megi ekki vera á kostnað fátækari þjóða Umhverfisverndarsinnar og frumbyggjar Suður-Ameríku krefjast þess að vestrænar þjóðir komi til móts við lönd sem reiða sig á útflutning jarðefnaeldsneytis við fyrirhuguð orkuskipti og hætti að arðræna þau. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Finnland Efnahagsvandi í Finnlandi - almenningur svartsýnn Atvinnuleysi í Finnlandi er eitt það mesta í Evrópu og verðbólgan á uppleið. Almenningur hefur áhyggjur af stöðunni til framtíðar. Ríkisstjórnin boðar frekari niðurskurð. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Lóðabrask og verðbólga rýra atvinnumöguleika pípara Formaður Félags pípulagningarmeisara lýsir yfir áhyggjum af atvinnumöguleikum pípara vegna kólnunar á byggingamarkaði. „Það er farið að bera á uppsögnum,“ segir hann. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Arsenal aftur með 6 stiga forystu á toppnum Arsenal náði í dag sex stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta að nýju. Í fallbaráttunni tapaði West Ham sem sem þýðir að Tottenham fær tækifæri á að komast úr fallsæti á morgun. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögregla með viðbúnað vegna afmælis Hells Angels Hells Angels halda í kvöld upp á afmæli sitt á Íslandi. Lögregla er með mikinn viðbúnað og leitar á fólki sem mætir á staðinn. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Fyrsti sigur KA kom í Akureyrarslagnum Hans Steinar Bjarnason KA vann sinn fyrsta sigur í sumar í Bestu deild karla í fótbolta, 1-0 gegn Þór Akureyri. Þetta var fyrsti Akureyrarslagurinn í efstu deild fótbolta í 24 ár. Í dag var leikið á glænýjum heimavelli Þórs sem var tekinn í notkun í síðustu umferð deildarinnar. Spennustigið var hátt og það stefndi í markalaust jafntefli en KA fékk vítaspyrnu þegar tæpar fimm mínútur voru eftir. Brotið var á Hallgrími Mar Steingrímssyni sem tók vítið sjálfur og skoraði. Þetta reyndist sigurmarkið. Þór er í sjöunda sæti með 6 stig og KA í níunda með 4 stig. Hallgrímur Mar Steingrímsson tryggði KA fyrsta sigurinn í deildinni. Mummi Lú Tveir leikir eru á dagskrá deildarinnar í dag, KR og Valur mætast kl. 19:15. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Fyrsta útförin í Flatey í nærri 70 ár Fyrsta útförin í hartnær 70 ár fór fram í Flatey á Skjálfanda um liðna helgi. Þrátt fyrir að byggð hafi lagst af í eyjunni fyrir um 60 árum bera fyrrum íbúar hennar sterkar taugar til heimahaganna. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær 700 hlupu í Eyjum þrátt fyrir tvísýnar samgöngur Margir heltust úr lestinni í Puffin Run-utanvegahlaupinu áður en það hófst vegna vandræða í samgöngum milli lands og Eyja. Skipuleggjandi segir aðstæður sambærilegar því sem gerðist í Covid en erfiðari. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Naumur sex marka sigur Valskvenna Hans Steinar Bjarnason Það hljómar kannski ekki eins og naumur sigur að vinna handboltaleik með sex marka mun en sú var þó raunin í dag þegar Valur og ÍBV mættust í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta. Elísa Elíasdóttir skoraði 11 mörk fyrir Val eins og Lovísa Thompson. RÚV / Mummi Lú Sandra Erlingsdóttir skoraði 14 mörk fyrir ÍBV sem var yfir í hálfleik 18-20 og náði svo sex marka mun í seinni hálfleik sem Valskonur unnu upp. Staðan var jöfn 32-32 þegar sex mínútur voru eftir en þá stungu Valskonur af og skoruðu sjö mörk gegn einu marki ÍBV. Lokatölur urðu 39-33 fyrir Val sem er þar með 1-0 yfir í einvíginu. Vinna þarf þrjá leiki til að hampa titlinum og er næsti leikur í Vestmannaeyjum á þriðjudag. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Strangari öryggiskröfur til marks um breytta heimsmynd Í samningi íslenska nýsköpunarfyrirtækisins Kara Connect við ESB um stafrænt velferðartorg er tekið fyrir að nýta þjónustur í Bandaríkjunum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Þvættaði fé af gáleysi og faldi það í skóm Karlmaður hlaut skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að þvætta fé. Peningana fékk hann hjá óþekktum mönnum og reyndi að senda þá falda í skóm í pósti frá Albaníu. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Lyon í úrslitaleik meistaradeildarinnar og getur mætt Glódísi Lyon komst í dag í úrslitaleik Meistaradeildar kvenna í fótbolta og mætir þar annaðhvort Barcelona eða Bayern München, liði Glódísar Perlu Viggósdóttur. Lyon sló ríkjandi Evrópumeistara Arsenal naumlega úr leik í undanúrslitum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður Heiðursverðlaun garðyrkjunnar fóru til Espiflatar Garðyrkjubændurnir á Espilöt í Reykholti í Biskupstungum í Bláskógabyggð eru stolt og ánægð þessa dagana því þau fengu heiðursverðlaun garðyrkjunnar. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Miðar vel en vinna áfram að dýpkun næstu daga Andri Yrkill Valsson Búast má við að dýpkun Landeyjahafnar taki nokkra daga til viðbótar. Hún hefur verið lokuð í næstum þrjá mánuði vegna sandburðar. Vinna hófst af krafti í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni gekk vel að dýpka hafnarmynnið í morgun og er útlitið gott næstu daga. Herjólfur og Baldur sigla báðir til og frá Þorlákshöfn næstu daga. Herjólfur hefur síðustu vikur þurft að sigla til og frá Þorlákshöfn. RÚV / Magnús Alti Magnússon Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Sjálfstæðisflokkur orðinn þriðji stærstur í gamla víginu Samfylkingin mælist stærst í fjórum kjördæmum af sex í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. Sjálfstæðisflokkurinn mælist aðeins þriðji stærstur í Suðvesturkjördæmi þar sem hann hefur löngum trónað á toppnum. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Skák Óvænt úrslit á fyrsta degi Íslandsmótsins í skák Óvænt úrslit urðu á fyrsta keppnisdegi Íslandsmótsins í skák sem hófst í Garðabæ í gær. Stigahæstu menn mótsins, Vignir Vatnar og Hannes Stefánssynir, hófu mótið á sigri í sínum viðureignum. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndagagnrýni Sound of Falling: Draugar fortíðar, nútíðar og framtíðar Kvikmyndin Sound of Falling á allt það lof skilið sem hún hefur fengið á erlendum kvikmyndahátíðum að mati Kolbeins Rastrick, gagnrýnanda Lestarinnar á Rás 1. Verkið sé einstakt og vel til þess fallið að rýna í lengi á eftir. 2. maí 2026 kl. 12:10INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál „Þetta er óþægileg staða“ Að mati Steinunnar Þórðardóttur, formanns Læknafélags Íslands, er mjög alvarlegt ef gripið er til þess ráðs að reka fólk sem starfar í beinni sjúklingaþjónustu. Stöðugildum á Landspítalanum verður fækkað vegna rekstrarhalla. 2. maí 2026 kl. 11:20INNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur „Stefnir í metár hjá okkur eftir nokkur mögur sumur“ Formaður Strandveiðisjómanna vonast eftir metári þrátt fyrir að fyrsta úthlutun á kvóta frá innviðaráðuneytinu sé lægri en árið áður. Hann biðlar til smábátasjómanna að bíða rólegir eftir frekari úthlutun. 2. maí 2026 kl. 10:55INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Umfangsmeiri viðbrögð nauðsynleg á Kristnesi og brýnt að taka ákvörðun Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar leggst gegn því að starfsemi Kristnesspítala verði lögð af en ákveða þurfi framtíðina sem fyrst. 2. maí 2026 kl. 9:47INNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Viðbúin gróðureldum á höfuðborgarsvæðinu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er viðbúið gróðureldum vegna þurrka. Nokkrir minni háttar gróðureldar kviknuðu í gær. 2. maí 2026 kl. 8:07INNLENDAR FRÉTTIR Veður Þurrt og bjart austantil Nokkuð hvasst verður á landinu með stöku éljum í dag. 2. maí 2026 kl. 8:00MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist „Ég hef alltaf verið smá smeykur við að syngja sjálfur“ Ymur nefnist ný plata Friðriks Margrétar-Guðmundssonar. Platan hefur verið í næstum áratug í smíðum. Friðrik spilar tónlistina og syngur allt sjálfur. Eitt lagið á plötunni er sungið inn í gegnum hljóðnema á iPod-heyrnartólum. 2. maí 2026 kl. 7:30ERLENDAR FRÉTTIR Bretland Starmer segir að banna megi samkomur í sumum tilfellum Forsætisráðherra Bretlands lítur svo á að banna megi samkomur hliðhollar Palestínu þar sem hvatt er til uppreisnar um allan heim. Hann er gagnrýndur fyrir að hafa ekki gert nóg til að vernda samfélag gyðinga. 2. maí 2026 kl. 7:15INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Ég lifði þetta af“ Kona sem leiddist út í vændi og varð þolandi mansals vill að talað sé um konur í þeirri stöðu af virðingu, að fólk hætti að nota um þær gildishlaðin orð og átti sig á að þarna eru konur í neyð. 2. maí 2026 kl. 7:01ÍÞRÓTTIR Mótorsport Í