Stjórnendateymi CCP hefur náð samkomulagi um kaup á íslenska tölvuleikjafyrirtækinu af suður-kóreska félaginu Pearl Abyss fyrir 120 milljónir dala, eða hátt í 15 milljarða króna. Gera má ráð fyrir að Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri og stofnandi CCP, leiði kaupin. Pearl Abyss keypti CCP, sem gefur m.a. út leikinn Eve Online, árið 2018 í einni stærstu fyrirtækjasölu í sögu íslensks viðskiptalífs . Endanlegt kaupverð nam 225 milljónum dala, eða sem nam tæplega 29 milljörðum króna eða um 43 milljörðum króna á núverandi verðlagi. Sjá einnig Seljendur CCP urðu af 26 milljörðum Kaupverðið hefði mest getað orðið 425 milljónir dala en eins og Viðskiptablaðið fjallaði um árið 2021 var hluti kaupverðsins skilyrtur við afkomu CCP árin 2019 og 2020. Ekki tókst ekki að uppfylla umrædd árangurstengd viðmið í rekstri. Talsmaður Pearl Abyss segir í samtali við kóreska fjölmiðilinn Inven Global að bæði fyrirtækin hafi verið unnið að því að styrkja samkeppnishæfni sína á heimsmarkaði. Fyrirtækin hafi metið það svo að til meðallangs og langs tíma hafi verið heppilegast fyrir báða aðlia að stjórnendateymi íslenska félagsins tæki við eignarhaldinu. Hann tók þó fram að fyrirtækin séu opin fyrir samstarfi í framtíðinni. Í sömu umfjöllun segir að með kaupunum árið 2018 hafi Pearl Abyss horft til þess að ná fram meiri áhættudreifingu í samstæðunni og tryggja sér verðmæt hugverkaréttindi. Rekstrartap CCP á síðastliðnum árum hafi hins vegar reynst byrði á fjárhag suður-kóresku samstæðunnar. Hvað varðar kaupverðið sagði Pearl Abyss í tilkynningu að verðið hafi verið ákveðið á hlutlægan hátt út frá núverandi rekstrarlíkani CCP og markaðsaðstæðum. Pearl Abyss sagði að kaupin á CCP hafi verið skynsamleg ákvörðun á sínum tíma en bætti við að talsverðar breytingar hafi orðið á tölvuleikjaiðnaðinum og stefnumörkun félagsins á síðustu árum.