Betur fór en á horfðist í Sindratorfærunni á Hellu um helgina. Einn keppendanna, Gunnar Guðjónsson, hvolfdi bíl sínum ofan í hyl og var á kafi í vatni í 19 sekúndur en öryggisbúnaður kom í veg fyrir að ekki fór verr. Atvikið varð í lokabraut keppninnar. Það var tímaþraut og áttu keppendur að snúa við enda brautarinnar og bruna niður ána. Þegar kom að Gunnari bilaði bíllinn hins vegar og út í ána þaut hann og á hvolf. „Þá átta ég mig á því að þetta er að fara að gerast“ „Bíllinn festist í botni til þess að byrja með. Ég var ekki tilbúinn að hætta þannig að ég reyndi að bremsa og hélt að það væri að hafast en þá brotnar pinni í höfuðdælum. Þá verð ég bremsulaus og flýg út í vatnið,“ segir Gunnar sem áttaði sig á því stundarkorni áður í hvað stefndi. „Þegar ég keyri fram hjá hliðinu, síðustu stikunni, þá átta ég mig á því að þetta er að fara að gerast,“ sagði Gunnar í viðtali í íþróttafréttum RÚV. Gunnar Guðjónsson sem velti torfærubíl sínum á hvolf út í Hróarslæk í Sindratorfærunni á Hellu um helgina, segir öryggisbúnað bílsins hafa virkað fullkomlega. Hann var 19 sekúndur á kafi í vatni en er hvergi banginn og ætlar að keppa í næstu keppni. Hjálmurinn fylltist ekki strax af vatni Gunnar var 19 sekúndur undir vatni í ísköldu straumvatninu en segist hafa haldið ró sinni. „Þá var bara að losa beltið og það gekk rosa vel. Og svo var að opna hliðarnetið, það er svona smella til hliðar, og svo bara að vippa sér út. Það var ekkert mál. Hjálmurinn gaf mér smá tíma. Hann fylltist ekki alveg strax af vatni þannig að ég fékk smá tímapunkt þar.“ Gunnar hélt ró sinni eftir að hann var kominn ofan í vatnið og það fyrsta sem flaug í gegnum huga hans var að losa beltið. „Losa, losa, opna og út. Ég fór svo hægt á toppinn að ég vissi alveg hvernig ég sneri þannig að ég var ekkert áttavilltur þegar ég var ofan í vatninu. Það hjálpaði. -Hvað hugsaðirðu svo þegar þú varst kominn á þurrt land? -Að veifa öllum að ég væri í lagi. Það var aðalatriðið að allir vissu að ég væri í lagi.“ „Í góðu lagi þó þú lendir í vatni“ Þetta er önnur torfærukeppni Gunnars og sú fyrsta á eigin bíl. Hann keppti í einni keppni á lánsbíl í fyrra. Það gekk á ýmsu hjá honum því í fyrstu braut átti hann svakalegt stökk sem endaði með harkalegri lendingu. „Það var bara klúður, ekkert annað. Ég vissi ekkert, var ekki búinn að prófa bílinn svo ég vissi ekki hvernig hann myndi hegða sér. -Fékkstu ekkert högg þar? -Ekki neitt. Öryggisbúnaðurinn er náttúrulega svo svakalegur í þessu að hann heldur manni alveg. Þú ert bara alveg fastur. Ég er rétt marinn en það er ekki eftir þetta. Það er eftir Jónsa félaga minn síðan hann var að spenna mig af því að hann herðir mig svo fast niður.“ Það fór betur en á horfðist um helgina en Gunnar er ekki vafa um að hann mæti aftur til keppni og treysti áfram á strangar öryggiskröfur akstursíþrótta. „Já, ég er algerlega á því. Handaólar og net eru bara í góðu lagi þó þú lendir í vatni. Það skiptir engu máli ef menn kunna á það.“ Gunnar Guðjónsson sem velti torfærubíl sínum á hvolf út í Hróarslæk í Sindratorfærunni á Hellu um helgina, segir öryggisbúnað bílsins hafa virkað fullkomlega. Hann var 19 sekúndur á kafi í vatni en er hvergi banginn og ætlar að keppa í næstu keppni.