- What: A fishing vessel caught a large amount of whale meat
- Impact: Highlights the scale of fishing operations and their economic impact
Baldvin Njálsson GK kom inn til löndunar í Hafnarfirði í morgun úr mánaðarlöngum túr. Óhætt er að segja að vel hafi gengið. Aflinn var 1.225 tonn upp úr sjó og þar af 750 tonn af ýsu. Ekki er talið að áður hafi verið landað meira af ýsu úr einni veiðiferð. Tryggvi Eiríksson er skipstjóri á Baldvini Njálssyni GK og segir hann að sér vitanlega hafi aldrei verið landað svona stórum farmi af ýsu. Ýsan fékkst á Tánni og Selvogsbanka og síðan á Eldeyjarbanka. Þeir fengu líka ýsu á Öræfagrunni og Mýrargrunni. Gott skot kom af ufsa á Berufjarðarálshorni. Í afurðum talið er þetta um 613 tonn. Skipstjórinn þakkar þetta frábærri áhöfn og handtökin voru ekki fá til að koma öllum þessum afla í afurðir. Hann segir merkilegt við túrinn hve áhöfnin er samstíga og afköst eitthvað sem þekkist varla annars staðar. Tryggvi hefur verið á Baldvini Njálssyni GK frá því hann kom nýr til landsins í árslok 2021. Miðað við fiskverð nú má áætla að túrinn skili yfir 900 milljónum króna í aflaverðmætum og þó líklega nær einum milljarði króna.