Íranskir fjölmiðlar segja að her landsins hafi skotið tveimur flugskeytum að bandarískri freigátu sem siglt hafi verið um Hormússund. Íransher sagðist fyrr í dag myndu ráðast á öll þau erlendu herskip sem reyndu að sigla um sundið. Sú yfirlýsing var viðbragð við orðum Bandaríkjaforseta um að flutningaskip fengju hervernd á leið í gegnum sundið. Íranska Fars-fréttastofan sagði að flugskeytunum hefði verið skotið að bandarísku freigátunni eftir að skipverjar svöruðu í engu viðvörunum íranska flotans. Að sögn íranska fjölmiðilsins var bandaríska herskipið á ferð nærri írönsku hafnarborginni Jask. Fréttin verður uppfærð.