Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þessi vöktu mesta athygli fyrir klæðaburð á Met Gala

Read Full Article →

Met Gala er árlegur viðburður sem er haldinn í Metropolitan-listasafninu og oft kallað stærsta kvöld tískuheimsins. Segja má að klæðaburður gesta sé aðalaðtriðið. Boð á viðburðinn er eftirsótt en ekki hver sem er kemst á gestalistann. Anna Wintour, ritstjóri tískutímaritsins Vogue, stýrir honum og býður listamönnum, hönnuðum og öðrum frægum einstaklingum hvert ár. Í fyrra söfnuðust 31 milljón dollara fyrir Metropolitian-safnið. Hvert ár er nýtt þema á viðburðinum og sérstakir gestgjafar. Gestgjafarnir í ár voru Beyoncé, Nicole Kidman og Venus Williams. Þemað var búningalist (e. Costume Art) og gestir beðnir að klæða sig eftir einkennisorðunum; tíska er list. Margir gesta lögðu mikið í klæðnaðinn og hér eru nokkrir sem vöktu mesta athygli. Sjón er sögu ríkari.

Share this article