Rúmenska þingið samþykkti í dag vantrauststillögu á hendur forsætisráðherranum Ilie Bolojan og að honum yrði vikið úr embætti. Tillagan var samþykkt með afgerandi meirihluta. Sósíaldemókratar, sem yfirgáfu fjögurra flokka ríkisstjórnarsamstarf með flokki Bolojans í apríl, studdu tillöguna ásamt stjórnarandstæðingum yst á hægri væng. Ríkisstjórn Bolojans tók við stjórnartaumunum síðasta sumar. Hann innleiddi töluvert af aðgerðum sem miðuðust að því að snúa hallarekstri í Rúmeníu, sem er sá mesti meðal Evrópusambandsríkja. Hann hefur til að mynda hækkað skatta og í febrúar tilkynnti hann til að mynda að 10% allra opinberra starfsmanna yrði sagt upp fyrir árslok. Það jafngildir um 13.000 manns. Búist er við því að Nicusor Dan, forseti Rúmeníu, ráðist þegar í að útnefna nýjan forsætisráðherra með það að markmiði að sameina stjórnarmeirihlutann á ný.