Línur virðast vera að skýrast vel á Íslandsmóti kvenna í handbolta, en ÍBV tók á móti Val í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Vestmannaeyjum í kvöld. Valur hafði unnið fyrsta leikinn og þar sem vinna þarf þrjá leiki til að verða meistari gat Valur komið sér í lykilsstöðu með sigri í kvöld. Valur réði ferðinni frá byrjun og komst fjórum mörkum yfir um miðbik fyrri hálfleiks og leiddi svo með tveimur mörkum í hálfleik, 15-13. Sá munur hélst út leikinn og Valur vann 25-23. Valur getur því með sigri um helgina orðið meistari. Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir skoraði sjö mörk fyrir Valskonur í kvöld og þær Ásdís Þóra Ágústsdóttir, Lovísa Thompson og Elísa Elíasdóttir fjögur mörk hver. Hafdís Renötudóttir varði 17 skot í marki Vals og endaði með að verja 39% skota sem komu á Valsmarkið. Hjá ÍBV var Birna Berg Haraldsdóttir markahæst með sjö mörk og Sandra Erlingsdóttir skoraði fimm.