Innlent | mbl | 5.5.2026 | 20:50 Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Farþegar eru komnir á leiðarenda. Samsett mynd/mbl.is/Árni Sæberg Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Icelandair aflýsti flugi til Kaupmannahafnar síðdegis í dag þar sem ekki tókst að manna áhöfn vélarinnar. Ekki tókst að manna flugstjórnarklefann. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, kveðst ekki vilja trúa því að flugmenn hafi gripið til óformlegra aðgerða. „Nei, ég trúi því ekki. Aðstæður eru mjög krefjandi fyrir flugfélögin um allan heim í dag með þetta háa eldsneytisverð, það hefur tvöfaldast á einum mánuði. Nei, við trúum ekki að það sé verið að grípa til einhverra óformlegra aðgerða,“ segir Bogi í samtali við mbl.is. Hann segir enga skynsemi í slíku þar sem það valdi félaginu auknum kostnaði og viðskiptavinum óþægindum. Að sögn Jóns Þórs Þorvaldssonar, formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna, eru engar aðgerðir í gangi af hálfu félagsins. Frétt af mbl.is Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Telur aðgerðir ólíklegar Aðspurður segir Bogi að hann hafi ekki upplýsingar um hvers vegna flugmennirnir gátu ekki mætt til vinnu. Fyrsti samningafundur FÍA og Samtaka atvinnulífsins var hjá ríkissáttasemjara í dag vegna kjaraviðræðna flugvirkja og flugmanna. Að sögn Boga hafa viðræðurnar gengið hægar en vonir stóðu til. Telurðu líkur á að Félag íslenskra flugmanna grípi til formlegra aðgerða? „Nei, ég tel engar líkur á því og trúi því ekki. Við hjá Icelandair erum að bjóða upp á mjög góð starfskjör, ein bestu starfskjör flugmanna á Norðurlöndunum, og það er mikil eftirspurn eftir störfum hjá félaginu. Þannig ég trúi því ekki að það verði einhverjar aðgerðir hjá flugmönnum.“ Komust með flugi SAS Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir farþega sem áttu bókað með Icelandair til Kaupmannahafnar síðdegis hafa komist á áfangastað með flugi SAS sem fór í loftið 40 mínútum á eftir áætluðu flugi Icelandair. Nóg pláss reyndist vera í flugvél SAS. Þeim sem áttu bókað frá Kaupmannahöfn til Íslands í kvöld verður komið á áfangastað á morgun. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vilja byggja 24 námsmannaíbúðir í Hveragerði Þróttarar upp í þriðja sæti Segja árásaraðgerðum gegn Íran lokið Njarðvík í úrslit þriðja árið í röð Fyrsti úrslitaleikur Arsenal í 20 ár Umræðan Enginn einn í lokin Bandamenn á umrótatímum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enn eitt dæmi um gullhúðun Munu leggja til að orðalaginu verði breytt „Vil meina að ég hafi sýnt töluverða viðleitni“ MDE: Ekki brotið á rétti Lárusar Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Tveir fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Vilja byggja 24 námsmannaíbúðir í Hveragerði Þróttarar upp í þriðja sæti Segja árásaraðgerðum gegn Íran lokið Njarðvík í úrslit þriðja árið í röð Fyrsti úrslitaleikur Arsenal í 20 ár Umræðan Enginn einn í lokin Bandamenn á umrótatímum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert MDE: Ekki brotið á rétti Lárusar Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Engin gögn til um samning við ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Tveir fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás