Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Heiðursborgarinn er á bensínstöðinni

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 5.5.2026 | 23:50 Heiðursborgarinn er á bensínstöðinni Vilhjálmur Roe hér fyrir framan Shellskálann með glerskjöld sem staðfestir sæmdartitilinn. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Sannur heiðursborgari. Þetta segir í umsögn Hveragerðisbæjar, en á 80 ára afmæli sveitarfélagsins í síðustu viku var Vilhjálmur Roe, sem rekur Shellskálann þar í bæ, útnefndur heiðursborgari af bæjarstjórn. Hann er sá fyrsti sem þessa nafnbót fær og á skjali segir að þetta sé þakklætisvottur fyrir óeigingjarnt starf, hlýhug og þjónustulund. Hvergerðingar segja sumir að þeir aki langar leiðir með bensíntankinn á bílnum nánast tóman – svo rauða ljósið í mælaborðinu lifir – bara til þess eins að taka bensín hjá Vilhjálmi. Raunar er Hvergerðingum tamast að tala um Villa á Shell; manninn sem með starfi sínu er fastur punktur í bæjarlífinu. „Ég fann mig strax í Hveragerði,“ segir Vilhjálmur Roe sem flutti í bæinn haustið 1987. Kom þá til aðstoðar þeim Jóninnu Margréti Pétursdóttur, hálfsystur sinni, og Reyni Guðmundssyni manni hennar, sem þá nýlega höfðu tekið við rekstri Shellskálans. Þau hjón fundu fljótt að starfið hentaði þeim ekki svo fljótlega tók Vilhjálmur við keflinu. „Áður en ég kom hingað hafði ég lengi unnið hjá Strætisvögnum Reykjavíkur. Þar fann ég mig í því að liðsinna farþegum; til dæmis þegar fatlað fólk þurfti aðstoð til að komast í vagninn eða mæður með barnavagna. Þjónustulund er mér í raun eðlislæg, sem skilar sér margfalt,“ segir Vilhjálmur sem tók við Shell í Hveragerði 1. janúar 1988. „Hér í Hveragerði tala allir um Shell og vita líka að í skálanum sinnum við ýmsum smálegum viðvikum; skiptum um perur og þurrkublöð á bílnum, mælum olíuna og setjum rúðuvökva á tank. Þetta er sjálfsögð þjónusta sem yfirboðarar vildu að við hættum. Mér fannst það fráleitt; sagðist fyrr mundu láta af störfum en sinna ekki viðskiptavinum okkar í þessu,“ segir Vilhjálmur og heldur áfram: Indriði á Chrysler „Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur, sem bjó lengi hér í Hveragerði, var fastur viðskiptavinur hér. Annálaður bíladellumaður sem ók um á Chrysler New Yorker sem ég þreif stundum,“ segir Vilhjálmur sem nú er kominn á hliðarlínuna í Shellskálanum þar sem synir hans, þeir Vilhjálmur og Pétur, sinna daglegum rekstri. Þeir hafa svo með sér starfsfólk sem afgreiðir bílavörur, gosdrykki, sælgæti, samlokur, harðfisk, krossgátublöð og fleira. „Vinnan gefur mér mikið, en á ýmsu gengur,“ segir Vilhjálmur. „Fyrir nokkru datt ég hér úti á plani svo sprunga kom í höfuðkúpu sem fylgdu truflanir á sjón og heyrn. Þetta leit ekkert vel út og læknir sagði við mig að ég, 82 ára gamall, færi tæpast aftur í vinnu. En það efldi mig og þremur vikum síðar var ég kominn aftur hingað á Shell.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi Frelsisáætlunin sett á ís Fiskur tryggir ekki fæðuöryggi í stríði „Hún er bara Þrista Gló“ Dæmdur til dauða fyrir morð á sjö ára telpu Umræðan Enginn einn í lokin Bandamenn á umrótatímum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Vil meina að ég hafi sýnt töluverða viðleitni“ Allt stefnir í skelfileg úrslit Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Áhættumat ekki gert eftir tilfinningu Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi Frelsisáætlunin sett á ís Fiskur tryggir ekki fæðuöryggi í stríði „Hún er bara Þrista Gló“ Dæmdur til dauða fyrir morð á sjö ára telpu Umræðan Enginn einn í lokin Bandamenn á umrótatímum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Vil meina að ég hafi sýnt töluverða viðleitni“ Spánn tekur við skipinu með hantaveirunni Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Einkunnaverðbólga enn vandamál: Fá ekki rétt mat Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás

Share this article