Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 6.5.2026 | 6:00 Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu „Það þurfa allar hendur að koma upp á dekk,“ segir Inga. mbl.is/Karítas Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Einkunnaverðbólga enn vandamál: Fá ekki rétt mat Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Versnar með hverju ári að óbreyttu Skólayfirvöld axli ábyrgð Börn á Íslandi tveimur árum á eftir » Fleiri tengdar fréttir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, segir stöðuna í menntamálum grafalvarlega og að hún ætli sér að snúa þróun undanfarinna ára og áratuga við. Ráðherrann ræddi við blaðamann að loknum ríkisstjórnarfundi í gær um umfjöllun Morgunblaðsins síðustu tvo daga, þar sem ljósi hefur enn og aftur verið varpað á þróun menntakerfisins og þá spá OECD að miðað við hrakandi námsárangur íslenskra barna gæti heildarframleiðni landsins minnkað um 5% á komandi árum. „Það er alveg ljóst að við erum að skrapa botninn hvað þetta varðar og það hefur ekkert verið gert undangengin ár annað en að horfa á hlutina fara niður á við. Það er bara staðreynd. Við erum að horfa upp á stórkostlegt hrun til framtíðar í íslensku samfélagi ef við tökum hlutina ekki alvarlega​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​,“ segir Inga. Einmitt vegna þessa sé hún menntamálaráðherra í dag. „Ég tók verkefnið að mér af því að ég ætla að breyta þessu, með góðum vilja ríkisstjórnar og mínum einbeitta vilja til að snúa þessu við og snúa bátnum aftur heim í höfn. Ég er með alveg stórkostlega hæfa starfsmenn inni í ráðuneytinu sem allir keppast við að vinna að þeim markmiðum sem að er stefnt,“ heldur hún áfram. Erum að snúa við í brekkunni Þetta taki þó sinn tíma og gerist ekki á einni nóttu. „Það þurfa allar hendur að koma upp á dekk,“ segir Inga. ​​​​​​​ „Ég þarf foreldrana, ég þarf kennarana og í raun þarf samfélagið allt í heild sinni að taka utan um málaflokkinn og vera ekki að koma upp á dekk og skammast yfir því þegar það á að breyta til, því einhverju verður að breyta ef við ætlum ekki að halda áfram að horfa á okkur endalaust fara niður brekkuna. Við erum að snúa við, við erum að labba upp brekkuna, við viljum komast á tindinn og við viljum skara fram úr,“ segir hún. Eins og fram hefur komið horfir hún mikið til verkefnisins sem hófst í Vestmannaeyjum og kallast Kveikjum neistann, en jafnframt til hinnar gagnreyndu lestrarkennsluaðferðar PALS, sem gjarnan er útfærð á íslensku sem „pör að læra saman“. „Ég er búin að taka í hendur fræðasamfélagsins sem hefur verið að agnúast út í Kveikjum neistann þrátt fyrir þann góða sýnilega árangur sem hefur komið í ljós, bæði í Vestmannaeyjum þar sem þessi aðferð hefur verið nýtt og líka í Lindaskóla í Kópavogi. Svo sáum við náttúrlega í fréttum Ríkissjónvarpsins á dögunum heimsókn í Rimaskóla þar sem börnunum var kennt samkvæmt PALS-aðferðinni og þau voru bara að innritast í haust, sex ára gömul, og voru öll farin að lesa.“ Frétt af mbl.is Börnin kunna jafnvel enga bókstafi PALS kraftaverki líkast Inga segir kraftaverk felast í PALS-aðferðinni og vonast til þess að með því að taka þá aðferð inn í Kveikjum neistann-verkefnið fái hún fræðasamfélagið með sér. Hún kveðst þakklát fyrir grein Sigríðar Ólafsdóttur læsisfræðings, Auðar Pálsdóttur íslenskufræðings og Ármanns Jakobssonar um hrakandi læsi íslenskra nemenda. Slík skrif ásamt umfjöllun fjölmiðla séu til þess fallin að vekja athygli á stöðunni. „Ég get ekki verið nógsamlega þakklát fyrir umræðuna. Því meira sem við tölum um þetta, því fleiri sem styðja við þetta og viðurkenna að við verðum að gera eitthvað til að snúa þessari öfugþróun við, því betra fyrir okkur, því betra fyrir framtíðina og börnin okkar í heild sinni.“ Frétt af mbl.is Skólayfirvöld axli ábyrgð Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. mbl.is/Eggert Johannesson Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Einkunnaverðbólga enn vandamál: Fá ekki rétt mat Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Versnar með hverju ári að óbreyttu Skólayfirvöld axli ábyrgð Börn á Íslandi tveimur árum á eftir » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Áfram él norðan- og austanlands ESB-ferlið hófst strax 2025 Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Fannar Sveins: Týndi efninu í mikilli þynnku Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ökumaðurinn glímdi við geðræn vandamál Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Versnar með hverju ári að óbreyttu Mest lesið Í gær Í vikunni Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Myndir: Fjórtándu fjáröfluninni hleypt af stað Auglýsa Pizza 67 til sölu Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi Heiðursborgarinn er á bensínstöðinni Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Kona á sjötugsaldri í bráðaaðgerð eftir smygl Kaffihúsum Kaffitárs lokað: „Það eru breyttir tímar“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Nýjast á mbl.is » Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Áfram él norðan- og austanlands ESB-ferlið hófst strax 2025 Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Fannar Sveins: Týndi efninu í mikilli þynnku Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt stefnir í skelfileg úrslit Kaffihúsum Kaffitárs lokað: „Það eru breyttir tímar“ Einkunnaverðbólga enn vandamál: Fá ekki rétt mat „Villandi og rangt“ orðalag í frumvarpi Mest lesið Í gær Í vikunni Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Myndir: Fjórtándu fjáröfluninni hleypt af stað Auglýsa Pizza 67 til sölu Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi Heiðursborgarinn er á bensínstöðinni Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Kona á sjötugsaldri í bráðaaðgerð eftir smygl Kaffihúsum Kaffitárs lokað: „Það eru breyttir tímar“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda

Share this article