Innlent | mbl | 6.5.2026 | 14:56 | Uppfært 15:22 Engin rök fyrir frestun þjóðaratkvæðagreiðslunnar Pawel Bartoszek formaður utanríkismálanefndar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Fá að sjá upplýsingar „í læstu leyniherbergi“ „Fyrst og fremst gert fyrir þjóðina“ ESB-ferlið hófst strax 2025 Engin gögn til um samning við ESB » Fleiri tengdar fréttir „Það var ekki farið sérstaklega yfir umsagnirnar á fundinum í morgun en ég reikna með því að við afgreiðum þetta mál fljótlega eftir sveitarstjórnarkosningar,“ segir Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar. Nefndinni hafa borist tvær tillögur um breytt orðalag á spurningunni sem verður lögð fyrir þjóðina 29. ágúst. Tvær umsagnir frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafa nú borist utanríkismálanefnd, önnur frá meirihluta nefndarinnar og hin frá minnihluta, þar sem lagt er til að orðalagi spurningarinnar verði breytt. Leggur meirihlutinn til að orðalagið „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ verði notað á meðan minnihlutinn leggur til að „Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið?“ verði notað. Frétt af mbl.is „Fyrst og fremst gert fyrir þjóðina“ Gott veganesti „Ég vil bara lýsa því yfir að ég er ánægður með þá vinnu sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur unnið. Ég hef verið í samskiptum við alla þrjá formenn nefndarinnar á þessu tímabili; Vilhjálm Árnason, Jón Gnarr og Bryndísi Haralds og mér finnst þau öll hafa staðið sig vel,“ segir Pawel í samtali við mbl.is. „Nefndin bara sinnti sinni skyldu og vinnu vel og gefur utanríkismálanefnd gott veganesti til þess að klára málið.“ Frétt af mbl.is Landskjörstjórn fellst á nýtt orðalag spurningarinnar Afgreitt fljótlega eftir sveitarstjórnarkosningar Aðspurður segir Pawel að ekki hafa verið farið sérstaklega yfir umsagnir stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á fundi utanríkismálanefndar í morgun en segist hann reikna með því að utanríkismálanefnd muni afgreiða málið úr nefnd fljótlega eftir sveitarstjórnarkosningar. „Þingið þarf að afgreiða þetta mál 29. maí til þess að dagsetningin 29. ágúst geti haldið. Þá liggur í augum uppi að það þarf að skrifa nefndarálit og afgreiða málið úr nefndinni.“ Eins og fyrr segir voru lögð til tvö orðalög, eitt frá meirihluta og annað frá minnihluta. Aðspurður segir Pawel að líklegra verði að orðalag meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fyrir valinu og bætir við að það sé sömuleiðis það orðalag sem Arnar Þór Stefánsson hæstaréttarlögmaður hafi stungið upp á er hann var boðinn á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Frétt af mbl.is Orðalagið „að halda áfram“ umdeilt Engin rök sem hníga að frestun kosningarinnar Í umsögn minnihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar var einnig lagt til að atkvæðagreiðslunni yrði frestað fram í október, en bendir Pawel á að komið hafi fram í umsögn landskjörstjórnar, þegar eftir henni var leitað, að hún treysti sér til þess að halda kosningarnar í lok ágúst, þó að vissulega gætu komið upp áskoranir vegna skamms tíma. Í sömu umsögn landskjörstjórnar kemur fram að vinna sé þegar hafin við undirbúning þar sem búið sé að semja við Lagastofnun Háskóla Íslands um að vinna kynningarefni fyrir kosningarnar. „Það er ljóst að mati landskjörstjórnar að það sé ekkert því til fyrirstöðu að kosning geti farið fram 29. ágúst og þá finnst mér engin rök hníga að því að fresta málinu.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Fá að sjá upplýsingar „í læstu leyniherbergi“ „Fyrst og fremst gert fyrir þjóðina“ ESB-ferlið hófst strax 2025 Engin gögn til um samning við ESB » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gourmand-verðlaunin: Tvær íslenskar matreiðslubækur tilnefndar Íslenski skálinn opnaður: „Ég er pínu meyr“ Xavi á leið í ensku úrvalsdeildina? Erfiðara að ala upp stelpur en stráka? Circus and salsa come to the Pool Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu Þrír sjúklingar fluttir á brott: Læknar á leiðinni Eldur í mannlausri rútu Mest lesið Í gær Í vikunni Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Byrja að flytja vindmyllur í kvöld Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Nýjast á mbl.is » Gourmand-verðlaunin: Tvær íslenskar matreiðslubækur tilnefndar Íslenski skálinn opnaður: „Ég er pínu meyr“ Xavi á leið í ensku úrvalsdeildina? Erfiðara að ala upp stelpur en stráka? Circus and salsa come to the Pool Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óháð úttekt á fréttamennsku RÚV Vorið lætur bíða eftir sér Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þrír sjúklingar fluttir á brott: Læknar á leiðinni Mest lesið Í gær Í vikunni Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Byrja að flytja vindmyllur í kvöld Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda