Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bláa lónið reisir gesta­stofu og Fjalla­böð í Þjórsár­dal

Read Full Article →

Bláa lónið hefur skrifað undir samninga við ís­lenska ríkið um upp­byggingu og rekstur þjónustumiðstöðvar og ferðaþjónustu í Þjórsár­dal. Fyrsti hluti starf­seminnar á að opna sumarið 2027 og gert er ráð fyrir að verk­efnið verði að fullu komið í rekstur vorið 2028. Samningarnir, sem undir­ritaðir voru í dag, eru sér­leyfis- og lóða­leigu­samningar milli ríkisins og Bláa lónsins. Þeir marka fyrsta skrefið í upp­byggingu gesta­stofu í mynni Þjórsár­dals, þar sem boðið verður upp á fjöl­breytta þjónustu fyrir ferða­menn. Í til­kynningu Bláa lónsins segir að Þjórsár­dalur sé eitt merkasta náttúru- og sögu­svæði Ís­lands. Upp­byggingin er hluti af stærra verk­efni Bláa lónsins í Þjórsár­dal. Auk gesta­stofunnar vinnur félagið að upp­byggingu hágæða­hótels í Rauðukömbum, Mountain Retreat, og Fjalla­baðanna. Í til­kynningunni segir að verk­efnið í heild sé stærsta fjár­festingin í ís­lenskri ferðaþjónustu um þessar mundir. Fram­kvæmdir eru þegar hafnar og eru sagðar í fullum gangi. Stefnt er að því að opna fyrsta hluta starf­seminnar sumarið 2027 og að öll starf­semin verði komin í rekstur vorið 2028. Daði Már Kristó­fers­son fjár­mála- og efna­hags­ráðherra segir í til­kynningunni að ís­lensk ferðaþjónusta sé í hópi mikilvægustu út­flutnings­greina landsins og skapi tekjur og störf víða um landið. „Íslensk ferðaþjónusta er í hópi mikilvægustu útflutningsgreina landsins og skapar tekjur og störf víða um landið. Öflug ferðaþjónusta stuðlar auk þess að fjölbreyttu mannlífi, afþreyingu og þjónustu sem allir geta notið. Það er þess vegna alltaf ánægjulegt þegar einkafjárfestar ráðast í miklar fjárfestingar sem gera Ísland enn áhugaverðara og fjölbreyttara í augum ferðamanna. Uppbyggingin í Þjórsárdal er metnaðarfullt og gott dæmi um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda í víðum skilningi á þessu merkilega náttúru og sögusvæði“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. Sigríður Margrét Odds­dóttir, for­stjóri Bláa lónsins, segir tækifæri Ís­lands fram á veginn liggja í upp­lifunar- og vellíðunar­ferða­mennsku. „Ísland býr yfir mikilli sérstöðu og tækifærin fram á veginn liggja í upplifunar- og vellíðunarferðamennsku, við eigum fullt erindi á heimssviðið um þessar mundir. Hjá Bláa Lóninu starfar einstakur hópur starfsfólks við hönnun, vísindi og upplifun og þetta uppbyggingarverkefni er gott dæmi um þá hæfni, þá langtímasýn og það hugrekki sem einkennt hefur Bláa Lónið frá stofnun þess. Gestastofan og Fjallaböðin í Þjórsárdal munu til lengri tíma verða einn áhugaverðasti áfangastaðurinn í ferðaþjónustu á Íslandi “ Segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins. Sjá einnig Bláa lónið hagnast um tæpan milljarð

Share this article