Fjórir leikir voru á dagskrá Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld þegar þriðja umferð kláraðist. Nýliðar ÍBV héldu áfram góðri siglingu. Nýliðar ÍBV hafa byrjað tímabilið af krafti með tveimur sigrum gegn Fram og Víkingi. Þær byrjuðu leik dagsins gegn Val líka af krafti því Allison Clark kom þeim yfir á 9. mínútu. Ágústa María Valtýsdóttir jafnaði metin fyrir Val rétt fyrir hálfleik og í upphafi seinni hálfleiks kom Arnfríður Auður Arnarsdóttir þeim yfir. 2-1 stóð þar til á 71. mínútu þegar Allison Lowrey jafnaði fyrir Eyjakonur og skömmu síðar skoraði Viktorija Zaicikova það sem reyndist sigurmarkið, lokatölur 3-2. Fjögur mörk hjá meisturunum Íslandsmeistararnir í Breiðablik höfðu líka unnið leiki sína til þessa og fóru í heimsókn til Víkinga í kvöld. Agla María Albertsdóttir kom Blikum yfir á þriðju mínútu og 1-0 stóð í hálfleik. Síðari hálfleikur var öllu fjörugari. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir og Barbára Sól Gísladóttur komu Blikum í 3-0 áður en Dagný Rún Pétursdóttir minnkaði muninn fyrir Víkinga með þeirra fyrsta marki. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir skoraði fjórða mark Breiðabliks mínútu síðar en Freyja Stefánsdóttir skoraði svo sárabótamark fyrir Víking og lokatölur 4-2. Bæði Breiðablik og ÍBV eru því með fullt hús stiga á toppi deildarinnar. FH sótti sinn fyrsta sigur FH-ingar tóku á móti nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur í Kaplakrika og komust yfir með marki frá Niu Christopher. Danai Kaldaridou jafnaði metin skömmu fyrir hálfleik og jafnt var í hálfleik. Sigurmark FH kom svo á 64. mínútu en það skoraði Ingibjörg Magnúsdóttir. Í fjórða leik kvöldsins mættust svo Þór/KA og Stjarnan. Andrea Mist Pálsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna í fyrri hálfleik en Amalía Árnadóttir og Margrét Árnadóttir skoruðu tvö mörk fyrir Þór/KA í seinni hálfleik. Niðurstaðan var því 2-2 jafntefli.