- What: The police are searching for a missing 14-year-old girl named Hekla Agnarsdóttir.
- Impact: The police are asking for the public's help in locating her.
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 19 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögreglan lýsir eftir Heklu Rebekka Líf Ingadóttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Heklu Agnarsdóttur, 14 ára, sem sást síðast í dag kl.13:30 við Áshamar í Hafnarfirði, nálægt hrauninu þar fyrir aftan, í átt að Hvaleyrarvatni. Hekla var klædd í gráa hettupeysu og gráar joggingbuxur og bleika strigaskó. Hekla er 172cm á hæð, með sítt skollitað hár. Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Heklu eru beðin um að hafa strax samband við lögregluna í síma 112. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Fyrir 1 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Leggja til 12,6 milljarða arðgreiðslu Stjórn Íslandsbanka mun leggja til 12,6 milljarða króna arðgreiðslu við aðalfund bankans í mars. Hagnaður af rekstri bankans árið 2025 nam 25,2 milljörðum króna og var arðsemi eiginfjár 11,2 prósent. Fyrir 13 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Vill sjá NATO 3.0 Aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir tímabært að breyta Atlantshafsbandalaginu og að Evrópa æxli ábyrgð á eigin vörnum þótt Bandaríkin haldi áfram kjarnorkuvopnum í álfunni. Fyrir 36 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Ljóst hverjum Ísland mætir í Þjóðadeild Í dag var dregið í Þjóðadeild Evrópu í fótbolta en karlalandsliðið leikur í C-deild. Ísland mætir Búlgaríu, Eistland og annað hvort Lúxemborg eða Möltu. Fyrir 38 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál „Þetta er svo galið ástand“ Formaður Félags hjúkrunarfræðinga segir fólk liggja upp undir tíu daga á bráðamóttökunni. Hún lýsir ástandinu sem gölnu. Hjúkrunarfræðingur sem vinnur á bráðamóttökunni segir viðbragðið þar ekki í lagi eins og staðan er í dag. Fyrir 47 mínútumÍÞRÓTTIR Íþróttir Áfengið velkomið á leikvöngum Reykjavíkur Reglur um sölu áfengis á íþróttaviðburðum hafa verið rýmkaðar í Reykjavík. Nú má selja áfengi að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Fyrir 52 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Fólkið í Epstein-skjölunum sem hefur stigið til hliðar Birting Epstein-skjalanna hefur haft meiri áhrif í Evrópu en Bandaríkjunum. Hverjir hafa stigið til hliðar eftir að hafa birst í skjölunum? Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Sauð upp úr í yfirheyrslu um Epstein-skjölin Hækkaður rómur og fúkyrði á víxl einkenndu yfirheyrslu dómsmálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á Pam Bondi dómsmálaráðherra í gær. Þingmenn spurðu Bondi út í meðferð dómsmálaráðuneytisins á Epstein-skjölunum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Rektor Bifrastar keypti hús af skólanum Þrír starfsmenn Háskólans á Bifröst, þar á meðal rektor, keyptu fasteignir í eigu Kiðár ehf., dótturfélags skólans, árið 2024. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, sem sat í stjórn félagsins þegar húsin voru seld, segir viðskiptin hafa verið eðlileg. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Samþykktu hækkun skráningargjalda í 100.000 krónur Háskólaráð samþykkti hækkun skráningargjalda fyrir Háskóla Íslands á fundi í dag. Nemendur mótmæltu áformum um hækkunina við upphaf fundarins. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturland Starfsmenn í hættu vegna hraðaksturs á vinnusvæði Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Einungis 30 ökumenn virtu hámarkshraða þegar Lögreglan á Vesturlandi var við hraðamælingar á vinnusvæði Vegagerðarinnar í Norðurárdal við Bjarnadalsá í gær. 46 ökumenn voru á svo miklum hraða að það kallaði á ökuleyfissviptingu á staðnum. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar. Hámarkshraðinn á vinnusvæðinu var minnkaður úr 90 km/klst niður í 30 km/klst. Lögreglan mældi 295 bifreiðar með hraðamyndavélabíl. 265 óku yfir hámarkshraða, 169 voru yfir sektarmörkum og sá sem hraðast ók mældist á 116 kílómetra hraða. Lögreglan segir starfsmenn Vegagerðarinnar hafa verið í hættu vegna hraðakstursins. „Starfsmenn Vegagerðarinnar voru sannarlega í hættu vegna hraða margra ökumanna sem óku um vinnusvæðið,“ segir í færslu lögreglunnar á Vesturlandi á Facebook. RÚV / Alexander Kristjánsson Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Zelensky tjáir sig um hjálmamálið: „Íþróttir þýða ekki minnisleysi“ Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, tjáði sig um bann íþróttakappans Vladyslav Heraskevych á Vetrarólympíuleikunum. Zelensky segir að íþróttir ættu ekki að þýða minnisleysi og að ólympíuhreyfingin ætti að stöðva stríð fremur en hið andstæða. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Fullar endurbætur á Fjarðarheiði gætu kostað tæpa tíu milljarða Vegagerðin telur að það gæti kostað allt að 9,5 milljarða að endurbæta veginn um Fjarðarheiði þannig að hann uppfylli kröfur. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tyrkland Handalögmál á tyrkneska þinginu Tyrkneskir þingmenn slógust í gær eftir umdeilda skipun ráðherra. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjallabyggð Rafmagnslaust á Siglufirði Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Rafmagn fór af á Siglufirði skömmu fyrir klukkan þrjú. Bilanaleit stendur yfir, segir í tilkynningu frá Rarik. Rarik óskar eftir upplýsingum sem gætu hjálpað við bilanaleit og er fólk beðið að hafa samband í síma 528 9000. Rarik Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Íslendingar setja milljarð í vopnakaup fyrir Úkraínu Íslensk stjórnvöld ætla að verja átta milljónum bandaríkjadala, um milljarði króna, í vopnakaup fyrir Úkraínu í gegnum sérstakt verkefni á vegum NATO. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Undiraldan er fjölbreytt og frískandi Það var komið víða við í Undiröldunni þessa vikuna og ný íslensk lög sett á fóninn frá Kristmundi Axel og Bubba Morthens, Inspector Spacetime og fleirum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Giséle Pelicot í viðtali: „Þetta er ekki ég“ „Þetta er ekki ég,“ sagði Giséle Pelicot þegar hún sá fyrst myndir sem eiginmaður hennar hafði tekið af henni þegar hún var meðvitundarlaus. Hann var dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að nauðga henni og fengið tugi manna til að gera hið sama. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tilkynna endalok stóraðgerða ICE í Minnesota Tom Homan kveðst hafa fengið samþykki Trumps fyrir að ljúka stóraðgerðum innflytjendastofnunarinnar ICE í Minnesota. Íbúar ríkisins hafa mótmælt aðgerðum ICE harkalega og tveir bandarískir ríkisborgarar verið drepnir í aðgerðum ICE í ríkinu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Ríkisstofnanir hafa afskrifað um 2,3 milljarða af skuldum Háskólans á Bifröst Deilurnar í Háskólanum á Bifröst halda áfram þrátt fyrir starfslok rektors. Þrír kennarar sem voru kærðir til siðanefndar hóta að stefna skólanum. Bifröst hefur staðið í ströngu á liðnum árum vegna erfiðrar skuldastöðu. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Kristrún dæmd úr leik — „Svo eyðileggur maður allt því maður nær ekki að taka rétta beygju“ Kristrún Guðnadóttir var dæmd úr leik í 10 kílómetra skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum fyrir að sleppa brekku. Þetta var seinni grein Kristrúnar á leikunum og hún hefur nú lokið keppni. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Vill að atvinnuveganefnd ræði veiðiráðgjöf Brynjólfur Þór Guðmundsson Fulltrúi Flokks fólksins í atvinnuveganefnd Alþingis vill að nefndin taki ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um loðnuveiði til umræðu. Sigurjón Þórðarson þingmaður segir að ef veiðiheimildir væru miðaðar alfarið við stofnstærðarmælingu loðnu í janúar og minni mælingu i haust sleppt væru veiðiheimildirnar líklegast 100 þúsund krónum meiri en nú er. Þetta segir hann að gæti skilað 23 milljörðum miðað við þær 230 krónur sem fást nú á kílóið í Færeyjum. Sigurjón Þórðarson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Stuðningur við Úkraínu aðalmálið á fundi utanríkisráðherra NATO-ríkjanna Bresk stjórnvöld ætla að verja hálfum milljarði punda í loftvarnir í Úkraínu og fleiri ríki tilkynna um stuðning sinn í dag. Staðan í Úkraínu er aðalumræðuefnið á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins í Brussel í dag. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Gamla bandaríska sendiráðið verði rifið að hluta og breytt í íbúðarhúsnæði Til stendur að rífa viðbyggingar gamla sendiráðs Bandaríkjanna í Þingholtunum og byggja þar upp íbúðahúsnæði. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Nemendur mótmæltu hækkun skráningargjalda Háskólaráð fjallar í dag um tillögu um að hækka skrásetningargjald úr 75 þúsund krónum í 100 þúsund krónur. Hópur nemenda mætti og mótmælti hækkuninni. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Golf Frostið setur golfvelli á óþægilegan stað Eftir mildan vetur á höfuðborgarsvæðinu er kuldaboli mættur til að hrella vallarstjóra á golfvöllum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Æskilegt að koma daglegri hreyfingu inn í skólastarf Æskilegt væri að koma daglegri hreyfingu inn í skólastarf, að mati lektors við íþróttadeild Háskólans í Reykjavík. Í framtíðarsýn stjórnvalda er eitt markmið að offita meðal barna verði ekki algengust á Íslandi af ríkjum Norðurlandanna. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Handbolti Veit að gagnrýnin kemur frá góðum stað en öllu má ofgera Björgvin Páll markvörður segir gagnrýnina aldrei hafa verið jafn mikla og á nýliðnu Evrópumeistaramóti. Þó hann nýti gagnrýnina til góðs taki aðrir leikmenn misvel í hörð orð. Nú er hann í nýju hlutverki sem getur verið krefjandi. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heimsglugginn Søreide tekur við af Solberg Erna Solberg hættir sem formaður norska íhaldsflokksins Høyre eftir 22 ár og Ine Eriksen Søreide tekur við. Þá var mikilvægi samvinnu rætt í Heimsglugganum í tilefni af eldheitri hvatningu Bertels Haarders til að efla norræna varnarsamvinnu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál SA lagði VR í félagsdómi Samtök atvinnulífsins höfðu betur gegn VR í deilu félaganna um kauptaxtaauka. VR var ósátt við túlkun SA á kjarasamningi og fékk Alþýðusambandið til að höfða mál fyrir félagsdómi fyrir sína hönd. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland „Þið skuluð ekki senda peninga til Úkraínu“ Forsætisráðherra Ungverjalands sagði að Evrópuríki ættu að sleppa því að senda fjármuni til stuðnings Úkraínu ef þau vildu bæta eigin hag. Fyrir 6 tímu