Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Málsókn vegna ólöglegra ættleiðinga

This article describes a historical legal and human rights issue concerning illegal intercountry adoptions from South Korea to Denmark, not a technical software vulnerability or IT security threat. The core allegation is that thousands of children were wrongfully taken from their parents and adopted under falsified documentation. As this is a legal case against state authorities and not a technical exploit, concepts such as CVSS scores, affected software versions, patches, or technical workarounds are not applicable.
Read Full Article →

Þúsundir barna sem voru ættleidd til Danmerkur frá Suður-Kóreu fyrir síðustu aldamót voru tekin með ólöglegum hætti af foreldrum sínum. Átta þeirra hafa höfðað mál gegn danska ríkinu fyrir brot á mannréttindum. Alls voru um níu þúsund börn ættleidd á þennan hátt á 8., 9. og 10. áratug síðustu aldar. Átt hafði verið við ættleiðingarskjöl margra þeirra og börnin ranglega skráð týnd eða yfirgefin, þegar þau höfðu í reynd verið tekin frá foreldrum sínum. Ættleiðingum milli landanna hefur verið hætt, og stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa beðist afsökunar. Það hafa stjórnvöld í Danmörku ekki gert, og í nóvember 2024 hafnaði félagsmálaráðuneytið bótakröfu þar sem málið væri fyrnt. Síðan þá hefur málsókn verið í undirbúningi fyrir mannréttindabrot danskra stjórnvalda.

Share this article