Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ekki tilefni til að endurskoða atkvæðagreiðslu utan kjörfundar

This article describes an administrative dispute regarding the accessibility of early voting locations for municipal elections in Iceland's capital region, not a software vulnerability or technical security threat. The county commissioner has decided to maintain a single early voting location in Kópavogur, citing a lack of available suitable venues elsewhere, despite criticism from the Reykjavík city council that this restricts voter access. The commissioner states there is no reason to review the decision, as voter turnout for early voting has not decreased and no operational issues have been reported at the current site.
Read Full Article →

Utankjörfundaraðsókn á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki dregist saman þrátt fyrir að kosið sé í Kópavogi. Sýslumaður svarar gagnrýni borgarráðs og segir það ekki hafa áhrif að einungis sé hægt að greiða atkvæði á einum stað. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir sveitarstjórnarkosningar hófst 17. apríl og íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta greitt atkvæði í Hlíðarsmára 1 í Kópavogi. Borgarráð hefur gert athugasemdir við ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að Reykvíkingar geti einungis greitt utankjörfundaratkvæði á einum stað og að sá staður sé ekki í Reykjavík. „Við síðustu sveitarstjórnarkosningar hefur verið lögð áhersla á að kjósendur í Reykjavík geti greitt atkvæði utan kjörfundar í sveitarfélaginu sjálfu en nú verður það ekki í boði,“ segir meðal annars í bréfi skrifstofu borgarstjórnar. Segir ákvörðunina ekki skerða aðgengi Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu, segir að í undanförnum kosningum hafi sýslumaðurinn boðið upp á utankjörfundaratkvæðagreiðslu á einum stað á höfuðborgarsvæðinu. Því sé engin breyting þar á. „Við fundum ekkert húsnæði laust á höfuðborgarsvæðinu annað en þetta. Við höfum verið í undanförnum kosningum frá 2022 þá höfum við verið í Holtagörðum. Það var ekkert laust þar. Við leituðum einnig til Reykjavíkurborgar hvort þeir væru með húsnæði sem gæti hentað. Það var því miður ekki og ekki heldur hjá Ríkiseignum eða hjá fasteignafélögunum sem eru að reka leiguhúsnæði hér á höfuðborgarsvæðinu.“ Að mati borgarráðs skerðir ákvörðunin aðgengi kjósenda á tímum þar sem kjörsókn hefur dregist saman. Sigríður segir aðgengi og samgöngur góðar í Hlíðarsmára. „Þetta er alveg afmarkað rými, stórt og fínt á jarðhæð hússins. Það er gengið inn fyrir neðan húsið og þar eru sérmerkt bílastæði fyrir kjósendur utan kjörfundar.“ Sigríður segir biðraðir ekki hafa myndast fram til þessa og engin vandræði komið upp. Hún bætir því við að kjörsókn hafi heldur ekki dregist saman – þvert á móti hafi fleiri atkvæði verið greidd utan kjörfundar í aðdraganda kosninganna í ár og jafn mörgum dögum fyrir kosningar árið 2022. Í dag hafa um 4.300 atkvæði verið greidd utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu. Greidd atkvæði utan kjörfundar í heild eru um sjö þúsund og tvö hundruð. „Við teljum ekki ástæðu til þess að endurskoða það eða færa okkur til fram að kosningum. Teljum að þetta muni ganga vel hér hjá okkur í Hlíðarsmára 1.“

Share this article