Bókunarvél Herjólfs liggur niðri vegna elds í hollensku gagnaveri sem eigandi vélarinnar hýsir kerfi sitt í. Eldur kviknaði í verinu, sem staðsett er í Amsterdam, í morgun og unnið er að því að slökkva hann. Í tilkynningu á Facebook-síðu Herjólfs segir að öll fjarskipti til svæðisins liggi niðri í augnablikinu. „Herjólfur stefnir á að sigla til Landeyjahafnar næstu daga, við komum til með að gefa frá okkur tilkynningu vegna siglinga um leið og starfsmenn okkar komast inn í bókunarkerfið.“ Siglingar Herjólfs hafa verið nokkrum vandkvæðum bundnar það sem af er ári. Ferjan hefur ekki getað siglt til Landeyjahafnar mestallt þetta ár vegna sandburðar. Þá bilaði annar rafmótor Herjólfs í síðasta mánuði og er nú í viðgerð í Hollandi. Á þriðjudag tókst að hefja siglingar á ný til Landeyjahafnar.
The article describes an operational disruption caused by a physical fire at a data center in Amsterdam, impacting the booking and communication systems for a ferry service. No software vulnerability, CVSS score, or affected software versions are discussed. The incident highlights the risk of service outages due to physical infrastructure failures at third-party hosting providers.