Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fimm ára stúlku minnst um alla Ástralíu

This article does not describe a technical vulnerability, threat, or security incident; it is a news report about a criminal investigation into the murder of a child in Australia. Therefore, none of the requested technical details—such as attack vectors, CVSS scores, affected versions, patches, or workarounds—are applicable or present in the source material.
Read Full Article →

Reiði og sorg ríkir um alla Ástralíu vegna fimm ára stúlkubarns sem fannst látið í lok apríl. Hundruð komu saman og minntust hennar í dag. Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir morð. Snemma morguns sunnudaginn 26. apríl tilkynnti móðir stúlkunnar að hún væri horfin. Við tók fimm daga umfangsmikil leit, bæði á landi og úr lofti. Um þrjú hundruð sjálfboðaliðar tóku þátt í leitinni. Fimmtudaginn 30. apríl fannst hún látin í um fimm kílómetra fjarlægð frá staðnum sem hún sást síðast á. Hundruð komu saman um alla Ástralíu til minnast fimm ára stúlku sem fannst látin í lok apríl. Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir morð. Stúlkan, sem nú er kölluð Kumanjayi Little Baby af menningarlegum ástæðum, er af Warlpiri-ættbálki frumbyggja. Hið eiginlega nafn stúlkunnar er ekki notað af ótta við að raska ró sálu hennar. 47 ára karlmaður með langa sakaskrá var handtekinn og síðan ákærður fyrir morðið. Stúlkan bjó í Alice Springs, sem er nánast í miðri Ástralíu. Skilaboð frá móður hennar voru lesin upp í athöfnini í Alice Springs. Hún segir hjarta sitt í milljón molum. Hún hafi verið lítil prinsessa sem elskaði bleikan, Blæju og K-Pop Deamon Hunters. Málið hefur vakið upp spurningar um aðbúnað fólks af frumbyggjaættum. Ættingjar stúlkunnar hafa beðið um frið og að andlát hennar verði ekki notað í pólitískum tilgangi.

Share this article