Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tvö Íslendingalið í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta

The provided text is not a security article; it is a sports news article about Icelandic handball teams advancing in a European championship. No technical security information regarding vulnerabilities, CVSS scores, affected versions, patches, or workarounds is present.
Read Full Article →

Íslendingaliðin Magdeburg og Pick Szeged börðust um síðasta lausa sætið í úrslitahelgi Meistaradeildarinnar í handbolta í dag. Magdeburg var í góðri stöðu fyrir leikinn eftir að hafa unnið fyrri leik liðanna með sjö mörkum. Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Elvar Örn Jónsson spila með Magdeburg og tóku á móti Janusi Daða Smárasyni og félögum í ungverska liðinu Pick Szeged í kvöld. Magdeburg byrjaði leikinn í dag svo af krafti og komst þremur mörkum yfir í stöðunni 5-2. Szeged var þá komið í eltingarleik og í hálfleik var staðan 23-19, Magdeburg í vil. Szeged minnkaði muninn í upphafi seinni hálfleiks en svo kom áhlaup frá Magdeburg sem vann að lokum örugglega, 45-37. Ómar Ingi var markahæstur á vellinum með átta mörk, Janus Daði skoraði sjö, Gísli Þorgeir fimm og Elvar Örn tvö. Það verða því tvö Íslendingalið á úrslitahelginni í Köln í júní en Viktor Gísli Hallgrímsson og lið hans Barcelona hafði betur gegn Nantes 8-liða úrslitunum í gær. Álaborg og Fuchse Berlin eru hin liðin tvö en þau slógu út Íslendingaliðin Veszprém og Sporting sem Bjarki Már Elísson og Orri Freyr Þorkelsson leika með.

Share this article