Innlent | mbl | 7.5.2026 | 20:45 Þróar frumlyf gegn alvarlegum fylgikvillum krabbameinsmeðferðar Sérstakur gestur fundarins var Dr. Markus Gerhard, læknir og prófessor við Tækniháskólann í München í Þýskalandi. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Íslenska lyfjaþróunarfyrirtækið Akthelia Pharmaceutical þróar frumlyf gegn alvarlegum fylgikvillum krabbameinsmeðferðar en mikil þörf er á að bæta lífsgæði þeirra sem eru í krabbameinsmeðferð. Akthelia vinnur nú að undirbúningi fyrstu klínísku rannsókna á lyfi sem gengur undir nafninu AKT-011. Lyfinu er ætlað að verja slímhúð í meltingarvegi gegn skemmdum sem geta orðið í krabbameinsmeðferð og eru mjög algengir fylgikvillar meðferða. Slíkar meðferðir ráðast á frumur sem fjölga sér hratt, ekki aðeins krabbameinsfrumur heldur einnig heilbrigðar frumur, meðal annars í maga, meltingarvegi og þörmum. Afleiðingarnar geta verið þær að slímhúðin veikist og hætta eykst á bólgum, sýkingum og öðrum alvarlegum fylgikvillum, að því er fyrirtækið greinir frá í tilkynningu. Dragi úr skaða Fram kemur að rannsóknir bendi til þess að lyfjalausnin AKT-011 dragi verulega úr þessum skaða og styðji betur við varnir líkamans meðan á krabbameinsmeðferð stendur. Um fimmtungur allra sjúklinga glímir við slíka fylgikvilla og því er þörfin fyrir nýjar lausnir afar mikil. Samkvæmt því sem fram kom á fundinum gæti AKT-011 orðið fyrsta lyfið sem beinist sérstaklega að þessum vanda, segir enn fremur. Frá kynningarfundinum sem fór fram á Hilton Reykjavík Nordica. Ljósmynd/Aðsend Styrkja eigin varnarkerfi líkamans Þá kemur fram að samhliða þróun AKT-011 vinni Akthelia einnig að öðrum verkefnum. Þar megi nefna IN-ARMOR sem miði að þróun nýrra meðferða sem efla náttúrulegar varnir líkamans gegn sýkingum. Markmiðið sé að styrkja eigin varnarkerfi líkamans fremur en að reiða sig eingöngu á hefðbundin sýklalyf og þannig bregðast við einni stærstu áskorun læknavísinda í dag, sýklalyfjaónæmi. „Verkefnið hefur hlotið 900 milljóna króna styrk frá Evrópusambandinu og Akthelia og Háskóli Íslands eru stærstu aðilarnir að þeim styrk en um er að ræða samstarf sextán háskóla, stofnana og fyrirtækja,“ segir í tilkynningunni. Frétt af mbl.is Nærri 900 milljón króna styrkur til lyfjaþróunar Egill Másson, framkvæmdastjóri Akthelia, fór yfir stöðu félagsins, helstu verkefni og næstu áfanga á fundinum. Ljósmynd/Aðsend Mikil þörf fyrir nýjar lausnir Akthelia hélt í vikunni kynningarfund þar sem m.a. var fjallað um leiðina í klínískum rannsóknum. Sérstakur gestur fundarins var Dr. Markus Gerhard, læknir og prófessor við Tækniháskólann í München í Þýskalandi. Hann á jafnframt sæti í vísindaráði Akthelia. Hann fór yfir stöðu rannsókna hjá Akthelia og næstu skref sem færa AKT-011 nær klínískri notkun. „Það er mikil þörf í læknisfræðinni fyrir nýjar lausnir sem geta dregið úr alvarlegum fylgikvillum krabbameinsmeðferðar. Það sem er sérstaklega áhugavert við AKT-011 er að lausnin byggir á annarri nálgun en hefur verið farin hingað til,“ er haft eftir Gerhard í tilkynningunni. Hann segir AKT-011 lofa mjög góðu. Valur Ragnarsson, stjórnarformaður félagsins, var einnig með erindi. Ljósmynd/Aðsend Undirbúa næstu skref í átt að rannsóknum á mönnum Egill Másson, framkvæmdastjóri Akthelia, fór yfir stöðu félagsins, helstu verkefni og næstu áfanga á fundinum. Í máli hans kom fram að Akthelia hefði á síðustu misserum unnið markvisst að því að marka klíníska leið félagsins og undirbúa næstu skref í átt að rannsóknum á mönnum. Í þeirri vinnu hefðu niðurstöður úr forrannsóknum og áframhaldandi undirbúningsrannsóknum skipt miklu máli. „Fyrsti skilgreindi sjúklingahópurinn er sjúklingar með mergæxli sem fara í háskammta lyfjameðferð fyrir stofnfrumuígræðslu. Sá hópur þykir hentugur til fyrstu rannsókna þar sem fylgikvillar í meltingarvegi eru mjög algengir og alvarlegir og þörfin fyrir nýjar lausnir því mikil,“ segir í tilkynningunni. Egill fór enn fremur yfir fjármögnun næsta þróunarfasa á fundinum. Fram kemur að Akthelia vinni nú að fjármögnun sem ætlað er að styðja við lokaundirbúning fyrir umsóknir og fyrstu rannsóknir á mönnum, þar á meðal framleiðslu, öryggisrannsóknir og aðra lykilþætti sem þarf til að hefja klínískar rannsóknir. „Markmiðið er að skapa forsendur fyrir því að félagið geti farið í sinn fyrsta klíníska áfanga á næstu mánuðum, gangi áætlanir eftir,“ segir í tilkynningunni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Aðlögunarhæfni er lykilatriði Selkópur í fjöru á Akureyri Valur meistari eftir rosalegan spennuleik Flestir vilja Hildi sem borgarstjóra Crystal Palace leikur til úrslita Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Höfnum vinstristjórn í Hafnarfirði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Fór strax að ræða aðildarviðræður Hantaveiran er ekki eins og Covid X26 - Borgarafundur Akureyri Mest lesið Í gær Í vikunni Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Stakk dóttur sína í hjartað Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi ESB upplýst en þjóðin ekki 85 þúsund fengu 250 milljarða Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Meirihluti þolenda eru karlmenn Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allt hefur verið afbókað“ Nýjast á mbl.is » Aðlögunarhæfni er lykilatriði Selkópur í fjöru á Akureyri Valur meistari eftir rosalegan spennuleik Flestir vilja Hildi sem borgarstjóra Crystal Palace leikur til úrslita Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Höfnum vinstristjórn í Hafnarfirði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 234 dómar fyrnst vegna skorts á plássi Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Selkópur í fjöru á Akureyri ESB-ferlið hófst strax 2025 Mest lesið Í gær Í vikunni Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Stakk dóttur sína í hjartað Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi ESB upplýst en þjóðin ekki 85 þúsund fengu 250 milljarða Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Meirihluti þolenda eru karlmenn Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allt hefur verið afbókað“
This article describes a medical research development, not a software vulnerability or IT security threat. The Icelandic pharmaceutical company Akthelia is developing a drug, AKT-011, aimed at mitigating severe gastrointestinal side effects caused by chemotherapy, which damages rapidly dividing cells in the digestive tract. No technical security details, CVSS scores, or software version information are applicable or provided.