- What: Political controversy over a film about Greenland
- Impact: Not relevant to cybersecurity
Innlent | Spursmál | mbl | 7.5.2026 | 23:30 Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland Myndina átti að sýna í Norræna húsinu. mbl.is/Ómar Óskarsson Setja bókamerki Tengdar fréttir Grænland Grænlendingum boðið fé til að skrifa undir lista Framtíð einu farþegaferju landsins æ óvissari Fluttu blóð og sprengiefni til Grænlands Slíta sig frá landsstjórn Grænlands Ísland ekki undanþegið hærri framlögum » Fleiri tengdar fréttir Sendiherra Danmerkur á Íslandi og framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar beittu sér fyrir því að hætt yrði við sýningu á umdeildri heimildamynd um Grænland í Norræna húsinu. Myndina átti að sýna 22. mars á síðasta ári en nokkrum dögum áður var sýningunni aflýst. Fagblað danska blaðamannasambandsins Journalisten greinir frá en miðillinn segir forstjóra Norræna hússins á Íslandi, Sabinu Westerholm, hafa fengið símtöl bæði frá sendiherra Danmerkur á Íslandi og framkvæmdastjóra Norrænu nefndarinnar. Journalisten hefur tölvupóstsamskipti á milli Westerholm og sendiherrans undir höndum. Ritstjóri rekinn eftir sýningu Sólveig Ásta Sigurðardóttir, nýdoktor við Háskóla Íslands í nýlendufræðum, og Bryndís Björnsdóttir, doktorsnemi hennar, stóðu að sýningunni. „Ég á enn erfitt með að skilja að danski sendiherrann og framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar myndu eyða tíma sínum í að grípa inn í sýningu á heimildarmynd sem byggir á röddum Grænlendinga,“ segir Sólveig Ásta við Journalisten. Myndin, Hvíta gull Grænlands, hefur sætt gagnrýni. Hún var frumsýnd á danska ríkisútvarpinu í febrúar og nokkrum dögum síðar var aðalritstjóri DR Nyheder rekinn og myndin tekin úr birtingu. Helsta gagnrýnin á myndina er framsetning talna og að það hafi verið látið líta út eins og Danmörk hefði grætt milljónir á krýólítnámi á Grænlandi. Þeir sem taka upp hanskann fyrir myndina telja að hún sýni hlutverk Danmerkur sem nýlenduveldis og afleiðingar þess fyrir Grænland. Alvarlegt að vald sé gefið eftir Sólveig Ásta segir alvarlegt að forstjóri Norræna hússins skuli gefa eftir framkvæmda- og listavald sitt vegna pólitísks þrýstings. Forstjóri Norræna hússins í Reykjavík skrifaði til danska sendiherrans að sýningu myndarinnar yrði frestað þar sem ekki gæfist tími til að hafa pallborðsumræður þar sem myndin yrði til umræðu. Westerholm segir við Journalisten að Norræna húsið hafi í samstarfi við Norrænu ráðherranefndina ákveðið að setja þyrfti myndina í stærra samhengi og fylgja henni eftir með umræðu. „Það var ekki hægt vegna skamms frests og því ákváðum við að fresta sýningunni,“ skrifar hún. Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins. Morgunblaðið/Eyþór Brugðust við áhyggjum Bryndís og Sólveig segja þessa skýringu ekki halda vatni en þær segjast hafa fengið símtal frá Norræna húsinu þremur dögum fyrir áætlaðan sýningardag þar sem forsvarsmenn sögðu að myndin yrði aðeins sýnd ef önnur stofnun myndi sýna hana og efnt yrði til pallborðsumræðna með fulltrúum frá Danmörku og Grænlandi. Sólveig Ásta brást við áhyggjum Norræna hússins og fékk rannsakendur, kvikmyndagerðarmenn, hagfræðinga og doktorsnema frá Danmörku, Grænlandi og Íslandi til að mæta í pallborð. Norræna húsið taldi sig ekki geta samþykkt þá sem voru boðaðir í pallborðið að sögn Bryndísar og Sólveigar. Myndin var að lokum sýnd í Háskóla Íslands og kom Norræna húsið ekki að skipulagningunni. Bryndís og Sólveig telja að listrænt frelsi hafi orðið undir pólitísku valdi. „Að lokum forgangsröðuðu þau sjónarhorni pólitísks valds fram yfir samfélagið sem myndin fjallar um og það eru mikil vonbrigði. Við þurfum að gæta þess hvaða raddir eru taldar trúverðugar og hver hefur rétt til að setja rétt samhengi fyrir flókið samtal,“ segir Sólveig. Tengdar fréttir Grænland Grænlendingum boðið fé til að skrifa undir lista Framtíð einu farþegaferju landsins æ óvissari Fluttu blóð og sprengiefni til Grænlands Slíta sig frá landsstjórn Grænlands Ísland ekki undanþegið hærri framlögum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Áttum nánast að bakka yfir deildina“ Askja frumsýnir nýjan Mercedes-Benz Fundu 30 tonn af kókaíni við Kanaríeyjar Tengdi ristil konu við leggöngin Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Samfylkingin tryggir uppbyggingu fyrir alla Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tengdi ristil konu við leggöngin Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Fór strax að ræða aðildarviðræður Ársæll: „Ráðherrar hafa bara alræðisvald“ Mest lesið Í gær Í vikunni Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Meirihluti þolenda eru karlmenn Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allt hefur verið afbókað“ Nýjast á mbl.is » „Áttum nánast að bakka yfir deildina“ Askja frumsýnir nýjan Mercedes-Benz Fundu 30 tonn af kókaíni við Kanaríeyjar Tengdi ristil konu við leggöngin Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Samfylkingin tryggir uppbyggingu fyrir alla Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Um 1.500 skip föst í Persaflóa Tengdi ristil konu við leggöngin Ef rusl er flokkað fer það á réttan stað 30 farþegar yfirgáfu skipið á Sankti Helenu Mest lesið Í gær Í vikunni Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Meirihluti þolenda eru karlmenn Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allt hefur verið afbókað“