Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

12 drepnir í árásum í Líbanon

  • What: Airstrikes in Lebanon killed at least 12 people
  • Impact: Civilian casualties reported
Read Full Article →

Að minnsta kosti 12 voru drepnir, þar af tvö börn og einn sjúkraflutningamaður, í loftárásum ísraelska hersins á Líbanon í gær samkvæmt líbanska heilbrigðisráðuneytinu. Forsætisráðherra Ísraels Benjamin Netanyahu segir Ísraela bera ábyrgð á því að hafa drepið háttsettan liðsforingja í Hezbollah í árásum á miðvikudaginn. Hann sagði að enginn hryðjuverkamaður væri óhultur fyrir árásum Ísraela. Stjórnvöld í Ísrael og Líbanon ætla að senda fulltrúa til viðræðna í Bandaríkjunum í næstu viku, samkvæmt heimildum Al Jazeera. Ísraelsher heldur áfram að skipa íbúum í suðurhluta Líbanon að yfirgefa heimili sín og sakar Hezbollah um brot á vopnahléi sem var samþykkt um miðjan apríl. Stjórnvöld í Líbanon segja Ísraelsher hafa drepið 2.700 manns frá því í byrjun mars. Ísraelski herinn segir að 17 ísraelskir hermenn og einn verktaki hafi verið drepnir í átökum milli Ísraela og Hezbollah.

Share this article