- What: Cyclone Gezani struck Toamasina, Madagascar, causing significant damage and casualties.
- Impact: At least 38 people died, six are missing, and 374 are injured, with 12,000 people displaced and over 18,000 homes destroyed.
Að minnsta kosti 38 fórust, sex manns er saknað og 374 eru slasaðir eftir að hvirfilbylurinn Gezani fór yfir borgina Toamasina á Madagaskar á þriðjudaginn. 12.000 manns misstu heimili sín og eru á vergangi en hvirfilbylurinn olli gríðarlega mikilli eyðileggingu. Yfir 18.000 heimili eru gjöreyðilögð, auk þess sem tugir þúsunda heimila eru skemmd eða fóru undir vatn þegar sjór gekk á land. Stjórnvöld gáfu út viðvaranir áður en óveðrið skall á eyjunni og náðu þúsundir íbúa að koma sér í öruggt skjól áður en óveðrið skall á. Toamasina er önnur stærsta borg Madagaskar með um 400.000 íbúa. Mikil flóð hafa verið á eyjunni á regntímabilinu undanfarið og um 140 manns hafa farist síðan í október.