- What: A cyberattack disrupts the Canvas learning platform at the University of Iceland
- Impact: Affects students during final exams
Innlent | mbl | 8.5.2026 | 20:15 Stúdentum greitt högg á ögurstundu Gamla aðalbyggingin á sínum stað, helsta kennileiti Háskóla Íslands frá stofnun hans. Stúdentar bera margir kvíðboga fyrir áhrifum netárásar á námsáfangakerfið Canvas sem á sér 30 milljónir virkra notenda í skólum um allan heim. Árásin kemur á versta tíma, í miðjum vorprófum. mbl.is/Ómar Óskarsson Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta er virkilega óþægileg tímasetning sem hittir á í miðri prófatíð,“ segir Katla Ólafsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, við mbl.is um netárásina í gærkvöldi á Canvas-þjónustuna sem skólinn nýtir sér til margs konar upplýsingagjafar, spjalls stúdenta og kennara, dreifingu glæra og fyrirlestra og margs fleira. Eins og fram kom í frétt hér á vefnum um hádegisbil í dag er ekki hægt að útiloka að önnur árás vofi yfir en þar greinir einnig frá því að skólinn standi þó betur að vígi en margir aðrir skólar víða um heim sem nýta sér þjónustu Canvas. Þjónusta Canvas lá niðri í nokkrar klukkustundir í gærkvöldi vegna netárásarinnar en fyrr í vikunni hafði önnur árás átt sér stað. Frétt af mbl.is „Mjög streituvaldandi og vond tilfinning“ „Þetta eykur álag á miklum álagspunkti auk þess sem sú tilhugsun að þetta sé yfirleitt hægt er bara óþægileg, við viljum auðvitað geta treyst á innri kerfi,“ heldur Katla áfram og segir það til happs að viðkvæmar upplýsingar séu vistaðar í öðru kerfi Háskólans. Hins vegar sé staða mála ekki að fullu ljós, til dæmis sé það ekki algjörlega vitað hvaða gögnum hafi verið lekið og hvers eðlis þau séu. Katla Ólafsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir árásina koma á versta tíma og enn óhugnanlegra sé að slíkt sé yfirleitt mögulegt í lokuðu kerfi. Hún bendir á að áhyggjufullir stúdentar eigi sér hauk í horni sem sé Stúdentaráð þar sem þeim standi öll ráðgjöf og stuðningur til boða. Ljósmynd/Aðsend 30 milljónir notenda „Talað var um að einhverjum skilaboðum af spjallinu á Canvas hefði verið lekið. Það er misjafnt hve mikið kennarar og nemendur nota þetta spjall,“ segir formaðurinn en til fyllingar má geta þess að Canvas er kerfi í eigu bandaríska hugbúnaðarfyrirtækisins Instructure með rúmlega 30 milljónir virkra notenda og 8.000 stofnanir sem viðskiptavini. Háskóli Íslands notar kerfið til að halda utan um námsefni og atburðarás hvers námskeiðs og Canvas nýtur vinsælda víðar, bandaríska sjónvarpsstöðin CNN greinir frá því að mörg þúsund skólar í Bandaríkjunum hafi orðið fyrir óþægindum af völdum netárásar á ögurstundu – í miðjum prófum, þessum seigfljótandi kvíðablöndnu vikum sem nemendur um gervallan heiminn þreyja almennt tvisvar á ári og best eru geymdar að baki. Frétt af mbl.is Árás á versta mögulega tíma: Verulega neikvæð áhrif Katla segir nemendur meðal annars skila verkefnum í Canvas og margir þeirra noti spjallið til samstarfs við hópverkefni. „Kennarar geta líka sent póst gegnum Canvas og þar koma ýmsar upplýsingar fram. Eins og okkur var greint frá þessu var nöfnum nemenda og netföngum þeirra lekið og svo hugsanlegu einhverju úr spjallinu. Einkunnir, kennitölur og slíkar upplýsingar eru hins vegar í Uglunni,“ segir hún og á þar við eldra kennsluupplýsingakerfi Háskólans. Hafi samband við Stúdentaráð „Því hefur verið miðlað til nemenda að vista það sem þarf fyrir komandi próf, þó nokkur próf voru haldin í morgun sem þessi árás í gær gæti haft áhrif á,“ segir Katla enn fremur og bendir á ljósglætu í óvissumyrkrinu. „Fólk getur haft samband við Stúdentaráð, þar er fólk í vinnu sem stúdentar geta talað við ef þeir hafa einhverjar áhyggjur eða spurningar. Eins eru allar upplýsingar um réttindi fólks á prófatíð á vefsíðu Stúdentaráðs, student.is,“ segir hún. „Þetta kemur á versta tíma og skapar mikla óvissu fyrir fólk, bætir í raun gráu ofan á svart. Það er óþægilegt að vita til þess að námsgögn vegna prófa séu hugsanlega ekki á sínum stað og eins að upplýsingar séu mögulega í höndum einhvers annars,“ segir Katla Ólafsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, að lokum um netárás óprúttinna aðila á versta tíma. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Haukar - Njarðvík, staðan er 9:10 Greina mikilvæga innviði á Reykjanesskaga Segja RÚV skerða aðgengi heyrnarlausra Fer ekki að flýja eftir þrjá leiki Besta deildin: Stjarnan 2:0 KR – FH minnkar muninn Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Þingvellir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Yfir 3.000 árásir gerðar á heilbrigðiskerfið Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Forvitnaðist um greiðslu styrkja Mest lesið Í gær Í vikunni Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Nýjast á mbl.is » Haukar - Njarðvík, staðan er 9:10 Greina mikilvæga innviði á Reykjanesskaga Segja RÚV skerða aðgengi heyrnarlausra Fer ekki að flýja eftir þrjá leiki Besta deildin: Stjarnan 2:0 KR – FH minnkar muninn Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Þingvellir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Stúdentum greitt högg á ögurstundu Segjast engan mun sjá þrátt fyrir einkunnaverðbólgu Íslenski skálinn tekur ekki þátt í verkfallinu Mest lesið Í gær Í vikunni Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Loka