Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tuttugu ár frá einum frægustu mistökum í sögu BBC

  • What: A 2006 BBC broadcasting mistake where a job candidate was mistakenly introduced as a tech expert
  • Impact: The incident became a notable mistake in BBC history
Read Full Article →

Tuttugu ár eru liðin frá því breski fjölmiðillinn BBC gerðist uppvís að einum umtöluðustu mistökum í sögu beinna útsendinga. Þá kom þangað maður sem var á leið í atvinnuviðtal, en hann endaði á því að rata óvart í beina útsendingu fréttatíma þar sem hann var ranglega kynntur sem sérfræðingur í tæknimálum. Þann 8. maí árið 2006 lagði viðskiptafræðingurinn Guy Goma leið sína í höfuðstöðvar breska ríkisútvarpsins BBC þar sem honum hafði boðist atvinnuviðtal. Hann sóttist þá eftir starfi í upplýsingatæknideild fyrirtækisins. Þegar þangað var komið ruglaði starfsmaður stöðvarinnar Goma saman við fjölmiðlamanninn Guy Kewney sem sérhæfði sig í fréttum sem snerust um tækni og var ætlað að ræða nýfallinn dóm í máli sem tengdist Apple í fréttatíma kvöldsins. Goma var því leiddur inn í sjónvarpssal og bein útsending hafin áður en nokkur gerði sér grein fyrir mistökunum sem höfðu átt sér stað. Þrátt fyrir að vera með öllu óundirbúinn svaraði Goma spurningum þáttastjórnanda af yfirvegun og hélt ró sinni. Viðtalið fór fljótt í dreifingu og vakti athygli um allan heim. Tuttugu árum og fjölda umfjallana síðar hefur myndbandið farið í dreifingu á ný. Þá hefur Goma ásamt fyrrverandi framleiðanda BBC gefið út bók um atvikið sem nefnist Rangi maðurinn (e. The Wrong Guy).

Share this article