Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 27 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Eldur í ruslageymslu Brynja Dögg Friðriksdóttir Sigrún Björk Hjartardóttir Eldur kom upp í ruslageymslu í fjölbýlishúsi í Kópavogi í kvöld. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningar um reyk frá ruslageymslu skömmu fyrir miðnætti, samkvæmt varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Um minniháttar eld var að ræða. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og aðgerðum er lokið á vettvangi. Fyrir 54 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dalabyggð Dalamenn velja á milli fimm hundruð nafna í kjörklefanum Dalamenn geta valið milli yfir fimm hundruð nafna, þegar þeir kjósa nýja fulltrúa í sveitarstjórn. Það er stærsta sveitarfélagið þar sem fara fram óbundnar kosningar. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bretland Tuttugu ár frá einum frægustu mistökum í sögu BBC Tuttugu ár eru síðan Guy Goma rataði óvart í beina útsendingu breska ríkisútvarpsins BBC. Hann hafði ætlað sér í atvinnuviðtal í tæknideild fyrirtækisins. Atvikið er meðal eftirminnilegustu mistaka í sögu beinna útsendinga. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Sex staðfest smit af hantaveirunni Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Sex hantaveirusmit hafa verið staðfest af átta grunuðum frá því að veiran kom upp í skemmtiferðaskipinu Hondius. Þetta staðfestir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir almenningi stafa lítil hætta af veirunni. Í tilkynningu segir að stofnunin muni „halda áfram að fylgjast með faraldsfræðilegu ástandi og uppfæra áhættumatið“. Skemmtiferðaskipið Hondiusi, þar sem hantaveira greindist. AP / Misper Apawu Áhættan fyrir farþega og áhöfn skipsins er talin í meðallagi. Að mati WHO er hættan á að Hondus-hópsmitið verði að heimsfaraldri mjög lítil. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Tveggja flokka kerfið liðið undir lok Tveggja flokka kerfið í breskum stjórnmálum er sennilega úr sögunni, ef marka má stjórnmálaskýrendur. Bogi Ágústsson telur ólíklegt að Starmer verði leiðtogi Verkamannaflokksins í næstu kosningum. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Njarðvík vann fyrsta leikinn gegn Haukum Einar Örn Jónsson Úrslitaeinvígi Bónusdeildar kvenna í körfubolta hófst í kvöld. Haukar tóku á móti Njarðvík á Ásvöllum og höfðu gestirnir betur. Njarðvík skoraði fyrstu sex stig leiksins og gaf þar tóninn. Munurinn var svo 19 stig í leikhléi, 52-33, en Haukar minnkuðu muninn í eitt stig í þriðja leikhlutanum. Njarðvík náði þá aftur undirtökunum og vann með 12 stiga mun, 92-80. Liðin mætast næst í Njarðvík á mánudag og svo er þriðji leikurinn á Ásvöllum á fimmtudaginn kemur. Brittany Dinkins RÚV / Mummi Lú Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Troels Lund Poulsen með stjórnarmyndunarumboð Friðrik Danakonungur fól Troels Lund Poulsen, leiðtoga hægriflokksins Venstre, að mynda ríkisstjórn eftir fundi með leiðtogum allra flokka sem eiga sæti á danska þinginu. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti KR heldur toppsætinu eftir endurkomu í Garðabænum KR er áfram efst í Bestu deild karla og áfram með fullt hús stiga. Sigur þeirra á Stjörnunni í kvöld var þó torsóttur. Fjórir leikir voru í kvöld og einn fyrr í dag og urðu mörkin 26 í leikjunum fimm. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Björgunarskip kom aflvana fiskibáti til hjálpar Fiskibátur með fjóra um borð þurfti aðstöð björgunarbáts til að komast til hafnar í dag eftir að bilun kom upp í gír skipsins. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Nokkrir Bakkakotsmannanna hafa reynt að stytta sér aldur Nokkrir mannanna sem voru vistaðir sem börn í Bakkakoti hafa reynt sjálfsvíg á síðustu mánuðum. Uppgjör þeirra við fortíðina er mjög erfitt, segir lögmaður þeirra. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Náttúra „Dýrin eru stjörnurnar, ekki ég“ Ein áhrifamesta manneskja samtímans, sjónvarpsmaðurinn og umhverfissinninn, David Attenborough, er hundrað ára í dag. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Fjöldi athugasemda um notkun borgarstjóra á innkaupakorti sýni fram á góða stjórnsýslu Borgarstjóri fagnar athugasemdum við notkun hennar á innkaupakorti borgarinnar og segir þær gott dæmi um góða stjórnsýslu og gott eftirlit með útgjöldum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Rangárþing ytra „Ekki eitt einasta barn bíður“ Ekkert barn bíður eftir meðferð, segir mennta- og barnamálaráðherra. Nýtt meðferðarheimili fyrir drengi í vímuefnavanda var opnað á Rangárvöllum í dag. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Stórsigur Víkings á nýliðunum Einar Örn Jónsson Íslandsmeistarar Víkings fóru illa með Þór Akureyri í Bestu deild karla síðdegis. Víkingur skoraði þrjú mörk í hvorum hálfleik og vann því 6-0. Víkingur fór í efsta sætið, í bili hið minnsta, en Þórsarar, sem eru nýliðar í deildinni, eru í 7. sæti. Mörk leiksins: 1-0 Valdimar Þór Ingimundarson 10' 2-0 Elías Már Ómarsson 25' 3-0 Óskar Borgþórsson 28' 4-0 Karl Friðleifur Gunnarsson 50' 5-0 Óskar Borgþórsson 61' 6-0 Elías Már Ómarsson 72' Karl Friðleifur Gunnarsson skoraði eitt marka Víkings gegn Þór. RÚV / Mummi Lú Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddvitaumræður í Ölfusi Oddvitar framboða í Sveitarfélaginu Ölfusi mættust í oddvitaumræðunum á RÚV fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Tveir listar eru í framboði. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Á þriðja hundrað manns syngja á heiðurstónleikum á Selfossi 250 tónlistarmenn á Suðurlandi koma fram á tónleikum á Selfossi um helgina. Með tónleikunum er verið að heiðra Björgvin Þ. Valdimarsson, tónskáld og kórstjóra, sem varð nýlega 70 ára. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Heilbrigðiseftirlitin skoða öryggi barna í líkamsræktarstöðvum Heilbrigðiseftirlitin ætla að leggja áherslu á eftirlit með öryggi barna í líkamsræktarstöðvum eftir að Umboðsmaður barna sendi þeim erindi þess efnis. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddvitaumræður í Múlaþingi Oddvitar framboða í Múlaþingi mættust í oddvitaumræðunum á RÚV fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Fimm listar eru í framboði. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Knappur tími til að flytja fólk úr Hondiusi vegna veðurs Skemmtiferðaskipið Hondius, þar sem hantaveira hefur greinst, er væntanlegt til Tenerife á sunnudagsmorgunn. Það kemur ekki til hafnar og fólk verður flutt í land á litlum bátum. Veðurspáin er slæm og aðgerðirnar mega því ekki taka of langan tíma. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Leiðtogar allra flokka á fund Danakonungs í kvöld Dagný Hulda Erlendsdóttir Friðrik Danakonungur hefur boðað leiðtoga allra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á þingi landsins á sinn fund í kvöld, einn í einu. 44 dagar eru frá þingkosningum og aldrei áður hefur tekið jafn langan tíma að mynda stjórn. Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna, fékk stjórnarmyndunarumboðið eftir kosningar en hefur ekki tekist að mynda stjórn. Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi miðjuflokksins Moderaterne, sleit viðræðunum í dag og stakk upp á því að Troels Lund Poulsen, leiðtogi hægriflokksins Venstre, fái stjórnarmyndunarumboð. Hann segir þurfa að breyta um stefnu í viðræðunum en útilokar ekki að Frederiksen verði áfram forsætisráðherra. EPA / Emil Nicolai Helms Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Motzfeld gengin í Demokratiit Vivian Motzfeldt hefur gengið til liðs við stjórnmálaflokkinn Demokratiit. Hún gegndi stöðu utanríkisráðherra Grænlands þar til flokkur hennar sagði skilið við landstjórnina fyrr á árinu. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Hátíðahöld á sigurdeginum lágstemmdari en áður af ótta við árásir Hátíðahöld í Moskvu á morgun, þegar sigri á nasistum í seinni heimsstyrjöld er fagnað, verða lágstemmdari en áður. Ástæðan er ótti við drónaárásir Úkraínumanna sem hafa sótt fram að undanförnu. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Leita að lóð fyrir Heilsuvernd Heilsuvernd og Akureyrarbær eiga í virku samtali um hentuga lóð fyrir uppbyggingu heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða á Akureyri. Þörfin er orðin afar brýn, að mati forseta bæjarstjórnar, og ljóst að bæta þurfi stöðuna verulega á næstu árum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Bretland Dorrit segir að Farage muni gera Bretland „frábært á ný“ Fyrrverandi forsetafrú Íslands óskar leiðtoga Umbótaflokksins til hamingju með kosningasigurinn í sveitarstjórnarkosningum og spáir því að hann verði næsti forsætisráðherra Bretlands. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Skoðuðu hvernig mætti varðveita David Attenborough Forstjóri Fenris Creations kom að könnun á möguleikum þess að varðveita aðgerðasinnann David Attenborough með stafrænum hætti. Hann segir fólk til sem ætli sér að lifa að eilífu með því að hala sér niður í tölvur. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Bretland Bonnie Tyler haldið sofandi eftir bráðaaðgerð Söngkonunni Bonnie Tyler er haldið sofandi á sjúkrahúsi í Faro í Portúgal. Hún gekkst undir bráðaaðgerð á þörmum í vikunni. Tyler er 74 ára. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Áttavilltur tjaldur í Grafarvogi Tjaldur hefur gert sig heimakominn fyrir utan rafiðnaðarverslunina Reykjafell á Blikastaðavegi í Grafarvogi. Starfsmenn hafa leitað aðstoðar fuglaverndar. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Samkomulag við Landsnet í höfn og Blöndulína 3 fer af stað Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á dögunum samning við Landsnet um lagningu og útfærslu á Blöndulínu 3 í gegnum bæjarlandið. Línan verður að endingu lögð sem jarðstrengur. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Endurgreiddi tvo reikninga eftir fyrirspurn fjölmiðla um kortanotkun Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir ekkert athugavert við notkun hennar á innkaupakorti sem hún hefur til umráða í störfum sínum, þrátt fyrir fjölda athugasemda. Hún endurgreiddi tvo reikninga í vikunni. 8. maí 2026 kl. 14:49INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tveir í gæsluvarðhaldi til 20.maí Ekki sér fyrir endann á rannsókn lögreglu á alvarlegri líkamsárás í bílakjallara við Höfðatorg í mars. Tveir sitja í gæsluvarðh