- What: Construction of a new multi-use building at Þeistareykir
- Impact: Local development project
Innlent | Morgunblaðið | 9.5.2026 | 20:10 Fjölnota bygging á Þeistareykjum Grafið fyrir grunni fjölnýtingarhúss sem rís norðan við skiljustöðina. Á myndinni sjást stofnlagnir gufuveitu og Bæjarfjall er í bakgrunni. Ljósmynd: Landsvirkjun/Gasa Kenny Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Framkvæmdir hófust nýlega við byggingu nýs fjölnýtingarhúss við Þeistareyki, norðan Mývatns. Hluti lóðar milli skiljustöðvar og aflstöðvar Landsvirkjunar er svokölluð fjölnýtingarlóð þar sem Landsvirkjun vonast til að geta stutt við ýmis nýsköpunarfyrirtæki þegar fram líða stundir, að því er fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins. Fyrsta húsið á lóðinni verður 126 fermetrar og er það leigt til fyrirtækisins GeoSilica í Reykjanesbæ. Samningar þar að lútandi voru undirritaðir í maí í fyrra. Vonir standa til að starfsemi geti hafist sumarið 2026, en framkvæmdir við lóðina hófust í lok apríl. Samið var við byggingarverktakann Rein um byggingu hússins. Vinnuvélar Eyþórs sjá um jarðvegsvinnu. Jarðvarminn nýttur Í húsinu verður framleiðslusvæði og rannsóknarstofa til efnagreininga, ásamt skrifstofu og góðri gestamóttöku, þaðan sem hægt verður að horfa yfir framleiðsluna. „Framleiðslan er á fæðubótarefni eins og fyrirtækið er nú þegar að framleiða, en einnig rannsóknir til að skala upp framleiðsluna til frekari hagnýtingar í vinnslurás jarðvarmavirkjana á heimsvísu og vöruþróunar. Það innifelur m.a. framleiðslu á jarðhitakísíl til hagnýtingar í áburðarframleiðslu sem byggist á evrópsku samstarfsverkefni,“ segir Ragnhildur Sverrisdóttir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar. GeoSilica var fyrst fyrirtækja til að tryggja sér húsnæði á fjölnýtingarlóðinni. Önnur fyrirtæki og frumkvöðlar hafa sýnt lóðinni mikinn áhuga og verið er að skoða ýmsa möguleika, segir Ragnhildur. Þá kemur einnig fram á heimasíðu Landsvirkjunar að jafnframt hafi verið samið við GeoSilica um afhendingu auðlindastrauma á Þeistareykjum og samstarf til næstu ára. „Með auðlindastraumi er átt við hverja þá auðlind sem hægt er að nýta á svæðinu, t.d. jarðhitavatnið sjálft, varma þess eða uppleyst efni,“ segir Ragnhildur til útskýringar. Í þessu tilviki kemur jarðhitakísill upp með jarðhitavökvanum og GeoSilica einangrar kísilinn úr vökvanum áður en honum er skilað aftur niður í jarðhitakerfið. Jarðhitakísill getur valdið útfellingum þegar hann kemur upp um borholur og ferðast um vinnslurás jarðvarmastöðva. Öll orkufyrirtæki sem virkja jarðvarma hafa þurft að grípa til fjölbreyttra lausna við hönnun og rekstur aflstöðva sinna til að reyna að koma í veg fyrir að útfellingar kísils valdi vanda. „Við höfum hingað til ekki tekið kíslinum fagnandi en hann kann að reynast auðlind sem skapar raunveruleg verðmæti og atvinnu. Þar kemur til kasta GeoSilica,“ segir Ragnhildur að lokum. Þeistareykjastöð var gangsett 17. nóvember árið 2017, þegar fyrri 45 megavatta vélasamstæðan var ræst. Sú síðari fór í rekstur í febrúar árið 2018. Uppsett afl stöðvarinnar er 90 megavött og getur hún unnið 740 gígavattstundir á ári. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Grindavík - Tindastóll, staðan er 61:60 Fjölnota bygging á Þeistareykjum Brottför Casemiro gæti reynst dýr Rennblautur eftir dularfullan leka í flugi Tveir unnu 520 þúsund krónur Umræðan Snúum Reykjavík við Játningar frjálslynda málfræðingsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Seðlabankans að mæta áhrifum Sex færslur rangt merktar Vilja fá hagsmunagæslu fyrir Laugalandsmálið Naumur eyðslutími Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Óboðlegur sveigjanleiki Táraðist við að hringja bjöllunni Flugi aflýst í annað sinn í vikunni Sex færslur rangt merktar „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál“ Samkomulag Vals og borgarinnar alls ekki í höfn Einkunnirnar ekki til hjá borginni Uppbygging á Nónhæð er hafin á ný Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Miðflokksmenn verja myndbandið Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Húsnæðislán á 47 sekúndum Nýjast á mbl.is » Grindavík - Tindastóll, staðan er 61:60 Fjölnota bygging á Þeistareykjum Brottför Casemiro gæti reynst dýr Rennblautur eftir dularfullan leka í flugi Tveir unnu 520 þúsund krónur Umræðan Snúum Reykjavík við Játningar frjálslynda málfræðingsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Staðan er eins góð og nokkurn tímann“ Engin úrræði og engin ábyrgð Samræmd próf eina leiðin Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Óboðlegur sveigjanleiki Táraðist við að hringja bjöllunni Flugi aflýst í annað sinn í vikunni Sex færslur rangt merktar „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál“ Samkomulag Vals og borgarinnar alls ekki í höfn Einkunnirnar ekki til hjá borginni Uppbygging á Nónhæð er hafin á ný Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Miðflokksmenn verja myndbandið Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Húsnæðislán á 47 sekúndum Loka