Matvöruverslunin Fjarðarkaup í Hafnarfirði hagnaðist um 126 milljónir króna í fyrra, samanborið við 40 milljónir árið áður. Í ársreikningi segir að aðgerðir stjórnenda í samstarfi við mikilvægustu birgja og þéttara aðhald í rekstrinum hafi skilað jákvæðri rekstrarafkomu í fyrsta skipti í nokkur ár. Tekjur drógust lítillega saman milli ára en á árinu 2026 er búist við álíka þrýstingi á vöruverð og kostnaðarliði með takmarkaðri aukningu í veltu á milli ára. Lykiltölur / Fjarðarkaup ehf. 2025 2024 Tekjur 3.839 3.862 Eigið fé 390 263 Eignir 888 978 Afkoma 126 40 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .