Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Flugvélasæti plöstuð fyrir flutning farþega af Hondiusi

Read Full Article →

Flogið var með 94 farþega af skemmtiferðaskipinu Hondiusi frá Tenerife í gær. Skipinu varpaði akkerum nokkuð frá landi og farþegarnir voru fluttir í land á bátum. Þaðan fóru þeir í rútur og var flogið með þá á brott. Alls voru um 150 manns í skipinu, farþegar og áhöfn. Tvær flugferðir með farþega, til Ástralíu og Hollands, eru á dagskrá í dag. Spænskir farþegar voru fluttir til Madrídar í gær og varnarmálaráðuneytið birti myndband sem sýndi viðbúnaðinn. Sæti vélarinnar voru þakin plasti og gólfið líka. Þá mátti sjá stóra hitakassa í vélinni. Mikill viðbúnaður hefur verið á Tenerife þar sem skemmtiferðaskipið Hondius kom að landi í gær. Hitakassar voru í flugvél sem flutti spænska farþega skipsins til Madrídar og gólf og sæti voru þakin plasti. Tveir farþegar af skemmtiferðaskipinu hafa greinst með hantaveiruna eftir að þeir komu til síns heima. Þetta eru farþegar frá Bandaríkjunum og Frakklandi. Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum segja að einn farþegi til viðbótar sé með einkenni smits. Fyllsta varúð hafi verið sýnd við flutning þeirra. Heilbrigðisráðherra Frakklands segir að franski ríkisborgarinn sé í einangrun í París og að heilsa hans fari versnandi. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur að fyrsti farþeginn hafi smitast í Argentínu áður en skipið lagði úr höfn þar 1. apríl. Líkur á útbreiðslu faraldurs séu litlar. Stofnunin mælir með 45 daga einangrun farþega skipsins.

Share this article