Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Starfs­menn OpenAI seldu fyrir 800 milljarða

Read Full Article →

Yfir 600 starfsmenn OpenAI, sem þróar spjallmennið ChatGPT, seldu hlutabréf í gervigreindarfyrirtækinu fyrir samtals 6,6 milljarða dala eða rúmlega 800 milljarða króna. Þar af fengu um 75 starfsmenn 30 milljónir dala, eða rúmlega 3,6 milljarða króna, hver í sinn hlut, samkvæmt heimildum The Wall Street Journal. OpenAI heimilaði starfsmönnum sínu að selja hlutabréf í félaginu fyrir allt að 30 milljónir dala í nýlegri fjármögnunarlotu. Yfir 600 starfsmenn seldu hluti í félaginu og þar af nýttu 75 heimild sína að fullu. Hluti af starfsmönnum fyrirtækisins ákvað að gefa eftirstandandi hlut sinn til góðgerðasjóða en umrætt framlag gera þeim kleift að fá skattfrádrátt á sama ári. OpenAI fór fram á að starfsmenn myndu bíða í tvö ár áður en þeir gætu selt hlutabréf sín í félaginu. Ofangreind sala hlutabréfa var í því í fyrsta sinn sem margir af þeim sem gengu til liðs við fyrirtækið eftir að ChatGPT gefið út gátu innleyst hagnað sinn. Í umfjöllun WSJ segir að engin önnur tæknibylting í sögunni eins og gervigreindarbyltingin hafi fært jafn stórum auð til jafn stórs hóps starfsmanna áður en stórt fyrirtæki á sínu sviði er skráð á hlutabréfamarkað. Í tilviki netbólunnar hafi starfsmenn í mörgum tilfellum þurft að bíða lengi eftir að innleysa hagnað af hlutabréfaréttindum sínum, jafnvel eftir að fyrirtæki þeirra fóru á markað. Í sumum tilfellum hafði hlutabréfaverð fyrirtækjanna sem þeir störfuðu fyrir verið búið að lækka umtalsvert áður en þeim gafst tækifæri til að selja.

Share this article