Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stærsti jarðskjálfti sem mælst hefur við Húsafell í fimm ár

Read Full Article →

Jarðskjálfti, 3 að stæðr, mældist um 15 kílómetrum frá Húsafelli klukkan 14:24 í dag. Skjálftinn er sá stærsti sem mælst hefur á svæðinu frá því í janúar 2021. Ingibjörg Andrea Bergþórsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir skjálftavirknina tengjast Vesturgosbeltinu. „Hluti af því er Langjökull og Borgarfjörðurinn, en það er ekki hægt að segja að þetta sé tengt sérstakri eldstöð. Þarna hafa verið nokkrir skjálftar og einn aðeins stærri. Það er ekkert meira að gerast í augnablikinu,“ segir Ingibjörg. Að sögn Ingibjargar má líklega rekja upptök skjálftans til spennulosunar í jarðskorpunni eða til flekahreyfinga. Hún segir um þrettán jarðskjálfta hafa átt sér stað á svæðinu síðasta sólarhringinn sem sé eðlilegt.

Share this article