Innlent | mbl | 11.5.2026 | 15:44 Vill segja bless við bókstafina strax í sumar „Þetta sýnir hversu ofboðslega óljóst þetta bókstafakerfi er,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Eggert Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Einkunnirnar ekki til hjá borginni Samræmd próf eina leiðin Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík » Fleiri tengdar fréttir Mennta- og barnamálaráðherra stefnir á að börn í grunnskólum landsins fái einkunnir í tölustöfum næsta skólavetur. Hún segist þegar hafa hafið vinnu við að breyta einkunnakerfinu og kveðst vonast til að það gangi hratt og örugglega. Greint var frá því í Morgunblaðinu á föstudag að dreifing einkunna á unglingastigi í Garðaskóla í Garðabæ sýndi umtalsvert betri einkunnir nemenda í 10. bekk en í 9. og 8. bekk. Borgaryfirvöld hafa hafnað beiðni um samsvarandi gögn úr grunnskólum Reykjavíkur, á grundvelli þess að þau séu ekki til staðar. Frétt af mbl.is Einkunnirnar ekki til hjá borginni Gjörólík niðurstaða, sama einkunn Blaðið ræddi einnig við móður stúlku sem var með 32 af 34 réttum atriðum á íslenskuprófi og fékk B. Samnemandi stúlkunnar fékk 22 af 34 atriðum rétt á sama prófi og fékk sömu einkunn. Hún var með 94% rétta prófúrlausn en hann 65%. Vakti frásögnin mikla athygli, einnig fyrir þær sakir að samnemandinn fékk að þreyta prófið aftur til að fá hærri einkunn, en stúlkan ekki. Frétt af mbl.is Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Krefst breytingar á aðalnámskrá Spurð út í þessa umfjöllun Morgunblaðsins og mbl.is segir Inga Sæland ráðherra þetta sýna hversu óljóst bókstafakerfið er. Því vill hún breyta. „Þetta sýnir hversu ofboðslega óljóst þetta bókstafakerfi er. Mjög svo óljóst. Þetta í rauninni styður þær aðgerðir sem ég er að ráðast í núna, að það verði tekið upp tölustafakerfi í öllum grunnskólum landsins,“ segir Inga. „Mínar björtustu vonir stefna í þá átt að þessu geti verið lokið næsta vetur.“ Þannig að næsta skólaár verða einkunnir gefnar í tölustöfum? „Ég er að vona það,“ svarar Inga og bætir við að það sé háð því hversu vel gangi að ná breytingunum í gegn. Hún segir vinnu hafna innan ráðuneytisins en þessi breyting krefjist þess að aðalnámskrá grunnskóla verði breytt. Frétt af mbl.is Nemendum með A stórfjölgar milli ára Brugðust illa við Kennarar á fulltrúaþingi Kennarasambands Íslands brugðust margir illa við þegar Inga boðaði breytingar á menntakerfinu í ræðu sinni á þinginu. Sagðist hún þar meðal annars vilja sjá bókstafi víkja fyrir tölustöfum. Yfirgáfu sumir þingið en viðbrögðin voru af ýmsum toga eins og fjallað hefur verið um. Frétt af mbl.is Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Frétt af mbl.is Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Biður kennara að horfast í augu við öfugþróunina Spurð hvernig Inga hyggist breyta einkunnakerfinu á meðan kennaraforystan virðist ekki styðja slíkar breytingar segir hún: „Það er bara þannig. Ég er sú sem kem til með að breyta þessu og ber ábyrgð á því að gera hlutina betur. Við sjáum hvernig þeir hafa þróast. Hátt í helmingur barnanna okkar er að útskrifast á hrottalega vondum stað eftir tíu ára grunnskólagöngu,“ segir Inga. „Ég mun gera hvað sem er til að breyta því og bið þau bara að vera frekar með heldur en að berjast á móti. Ég bið þau að horfast í augu við þá öfugþróun sem hefur átt sér stað á undanförnum árum.“ Inga segir fleira benda til þess að breytinga sé þörf í menntakerfinu, til dæmis vill hún endurskoða skóla án aðgreiningar. „Við eigum ekki að ætlast til þess að börn séu öll steypt í sama mót því þau eru svo sannarlega ekki eins,“ segir hún og bætir við að það eigi að mæta börnum þar sem þau eru. Frétt af mbl.is Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu Eiga nú erfiðara uppdráttar eftir grunnskólann Grunnhæfni íslenskra nemenda til náms hefur hrakað mjög undanfarna áratugi. Lesskilningi barna hefur hrakað hraðar en barna annarra OECD-ríkja og hafa nemendur færst til baka um u.þ.b. tvö ár miðað við jafnaldra sína erlendis hvað varðar lesskilning. Inga segist hafa rætt við skólameistara framhaldsskóla sem lýsa því að nemendur eigi erfiðara til uppdráttar nú, þegar í framhaldsskólann er komið, miðað við fyrir nokkrum árum. Spurð hvað hún ætli að gera til að snúa þessari þróun við segir Inga að hún vilji bæta lesskilning barna. „Kennararnir eru mjög svo tilbúnir til þess að taka utan um þetta og gera allt sem í þeirra valdi stendur,“ segir Inga. Þá nefnir hún aðgerðir eins og símafrí í skólum og endurskoðun á samfélagsmiðlanotkun barna. Þá vill Inga einnig að nemendur grunnskóla geti tekið próf heim svo foreldrar geti séð hvar skórinn kreppir og brugðist við. Frétt af mbl.is Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Einkunnirnar ekki til hjá borginni Samræmd próf eina leiðin Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Ég neyðist því til að hætta“ Neitar að hafa reynt að myrða Trump Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Talið í Breiðholti vegna tónleika Herra Hnetusmjörs Evrópumeistararnir blanda sér í baráttuna Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Viðurkennum vandann Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt gert til að bregðast við útbreiðslu veirunnar Sorphirðan er dýrust í Reykjavík Jörð skelfur við Ok Hildur segir meirihlutann hafa brugðist Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er búið að eyðileggja“ Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Þórdís Ólöf bar sigur úr býtum í Bakgarðshlaupinu Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Þungt högg og fjárfestingar í hættu Lífshættuleg stigmögnun í ofbeldissamböndum Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Goðsögn í fótbolta kenndi honum að tefla Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Nýjast á mbl.is » „Ég neyðist því til að hætta“ Neitar að hafa reynt að myrða Trump Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Talið í Breiðholti vegna tónleika Herra Hnetusmjörs Evrópumeistararnir blanda sér í baráttuna Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Viðurkennum vandann Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sorphirðan er dýrust í Reykjavík Rúmeninn keypti bíl og stakk af með Norrænu Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er búið að eyðileggja“ Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Þórdís Ólöf bar sigur úr býtum í Bakgarðshlaupinu Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Þungt högg og fjárfestingar í hættu Lífshættuleg stigmögnun í ofbeldissamböndum Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Goðsögn í fótbolta kenndi honum að tefla Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið