Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hlutur þolenda verði réttur með bótum

  • What: A lawyer is urging the Prime Minister of Iceland to provide compensation from the national treasury to individuals who were placed in Reykjavík nurseries between 1949 and 1979.
  • Impact: The request is based on two reports about the nurseries' operations during that period.
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 13.2.2026 | 11:28 Hlutur þolenda verði réttur með bótum Önnur skýrslan af tveimur sem unnar voru á vegum Reykjavíkurborgar um starfsemi vöggustofa í borginni á tímabilinu frá 1949 til 1979. mbl.is/Eggert Lögmaður hefur fyrir hönd nokkurra einstaklinga, sem í æsku voru vistaðir á Vöggustofunni Hlíðarenda og/eða Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins í Reykjavík í lengri eða skemmri tíma, sent Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra bréf þar sem hún er hvött til að eiga frumkvæði að því að réttur verði hlutur þeirra sem vistaðir voru á vöggustofunum með sanngirnisbótum úr ríkissjóði. Lögmaðurinn, Davíð Þór Björgvinsson, vísar í bréfinu til tveggja skýrslna, sem unnar voru á vegum Reykjavíkurborgar um fyrrgreindar vöggustofur. Önnur var um starfsemi vöggustofanna 1949-1973 og kom út 2023 og hin um starfsemi Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins 1974-1979 og kom út nú í janúar. Segir Davíð Þór að samkvæmt báðum skýrslunum hafi, eftir því sem næst verði komist, verið vistuð á þessum vöggustofum samtals 1.558 börn. Sú tala sé há í ljósi þess að mannfjöldi á Íslandi var um 138.000 árið 1949, þar af ríflega 50.000 í Reykjavík. Á árinu 1979 voru um 224.000 íbúar á Íslandi, þar af í Reykjavík ríflega 80.000. „Vitna þessar tölur ótvírætt um umfang starfsemi vöggustofanna í íslensku samfélagi, einkum í Reykjavík, á þeim tíma er þær störfuðu. Ekki er dregið í efa hér að ýmsum þeim sem áttu frumkvæði að þessari starfsemi hafi gengið gott til. Þó sýna gögn frá þessum tíma að yfirvöldum var ljóst nánast frá upphafi hversu skaðlegir starfshættir á vöggustofunum voru. Þá sýna fyrrnefndar skýrslur að afleiðingar þessarar starfsemi hafa síðar á ævinni reynst mjög alvarlegar fyrir þá fjölmörgu einstaklinga sem vistaðir voru á vöggustofunum,“ segir Davíð Þór í bréfinu. Kerfisbundin vanræksla Í báðum skýrslunum sé fjallað um afdrif þeirra barna sem þarna dvöldu. Tölurnar í þeim sýni meðal annars að hlutfall þeirra sem síðar hafa fengið örorkumat eða endurhæfingarlífeyri sé mun hærra þegar um sé að ræða einstaklinga sem dvöldu á vöggustofunum í einn mánuð eða lengur en eigi við um jafnaldra úr hópi allra Íslendinga og sé munurinn mjög mikill í seinni skýrslunni. „Hér má einnig nefna hátt hlutfall ótímabærra dauðsfalla fyrrum vöggustofubarna miðað við jafnaldra. Margir þessara einstaklinga hafa einnig átt við margvísleg geðræn vandamál að stríða á lífsleiðinni. Af upplýsingum þeim sem fram koma í skýrslunum um þetta má glögglega ráða að starfsemi vöggustofanna hafi falið í sér alvarlega og kerfisbundna tilfinningalega vanrækslu sem valdið hefur þeim einstaklingum sem þar voru vistaðir stórkostlegu tjóni og á það við með sama hætti um allt tímabilið. Gefa þessar tölur mjög sterkar vísbendingar um margháttuð neikvæð og alvarleg áhrif dvalar á vöggustofunum á lífsafkomu og líkamlega og andlega heilsu þeirra einstaklinga sem dvöldu á vöggustofunum,“ segir síðan í bréfinu. Engin lög í gildi Lög um sanngirnisbætur til þeirra sem dvöldu á vist- og meðferðarheimilum voru sett árið 2010 og þeim breytt árið 2020 en þau féllu úr gildi í lok ársins 2023. Davíð Þór segir í bréfinu að síðan hafi ekki verið í gildi neinar lagareglur um meðferð umsókna um slíkar bætur eða greiðslu þeirra. Til að jafnræðis sé gætt sé brýnt að bæta úr þessu með það að markmiði að tryggja þeim sem dvöldu á vöggustofunum sanngirnisbætur á sambærilegum grunni og að þeir sæti að minnsta kosti ekki lakari meðferð en leiddi af lögunum sem nú hafi fallið úr gildi. Vöggustofur Athygli vakin með bréfinu „Tilgangur bréfsins er fyrst og fremst að vekja athygli á þessu máli og því að lítið hafi gerst varðandi sanngirnisbætur til þessa hóps og koma á framfæri þeim sérstöku sjónarmiðum sem eiga við þá sem dvöldu á vöggustofunum í æsku,“ segir Davíð Þór Björgvinsson, sem hefur ásamt Guðfinnu Jóh. Guðmundsdóttur lögmanni nýlega hafið rekstur lögmannstofu undir heitinu Thales lögfræðiþjónusta. Ekki séu á þessu stigi gerðar sértækar kröfur fyrir einstaka þolendur. Davíð Þór segir seinni vöggustofuskýrsluna og nýjar upplýsingar um drengi vistaða í Bakkakoti gefa tilefni til þess að vekja athygli forsætisráðherra á því að setja þurfi lög sem tryggi þolendum sanngjarnar bætur á jafnræðisgrundvelli og hvetja hana til að eiga frumkvæði að því. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Löng hrina undir Tenerife í gærkvöldi og nótt Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Viðreisn býður fram undir eigin nafni í Múlaþingi Ólympíumeistari trúlofaði sig í endamarkinu Rifjar upp betri tíma innan fjölskyldunnar Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Vonast eftir öðru tækifæri frá Íslendingum Valhöll verður afhent í sumar Fjaran hopað 300 metra síðan 1970 Eldur í bústað við Elliðavatn Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Þar sem enginn vill halda sín jól Bústaðurinn brann til kaldra kola Grunur um salmonellu í kjúklingalærum Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Brunagaddur á nokkrum stöðum Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot Valhöll verður afhent í sumar Ríkisfjármálaleg tímasprengja Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Löng hrina undir Tenerife í gærkvöldi og nótt Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Viðreisn býður fram undir eigin nafni í Múlaþingi Ólympíumeistari trúlofaði sig í endamarkinu Rifjar upp betri tíma innan fjölskyldunnar Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert Pílustaður ekki íþróttamannvirki Þar sem enginn vill halda sín jól Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot Framsókn kýs nýjan formann Eldur í bústað við Elliðavatn Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Þar sem enginn vill halda sín jól Bústaðurinn brann til kaldra kola Grunur um salmonellu í kjúklingalærum Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Brunagaddur á nokkrum stöðum Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot Valhöll verður afhent í sumar Ríkisfjármálaleg tímasprengja Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum

Share this article