Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Icelandair telur flug­menn vera í óform­legum að­gerðum

Read Full Article →

Icelandair hefur sent frá sér tilkynningu vegna seinkana og aflýsinga á flugferðum félagsins að undanförnu vegna áhafnaskorts. Félagið segir margt benda til þess að um óformlegar aðgerðir af hálfu starfsmanna. „Þótt Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) fullyrði að engar aðgerðir séu hafnar er tengjast kjaraviðræðum, er margt sem bendir til þess eftir nánari skoðun félagsins á ástæðum þessara tilteknu raskana á flugi, að um óformlegar aðgerðir sé að ræða. Þær varða ákveðinn sveigjanleika sem er nauðsynlegur frá degi til dags í flugrekstri,“ segir í tilkynningu Icelandair. Flugfélagið segir óvenjulegt að ekki náist að manna flug þegar um forföll er að ræða. Þá séu vísbendingar um samantekin ráð og þrýsting að sýna ekki sveigjanleika í þessum aðstæðum. Sjá einnig Kjara­viðræðum vísað til ríkissátta­semjara „Það er mikilvægt að allir aðilar sýni ábyrgð í þessari stöðu og það er óásættanlegt ef rétt reynist að verið sé að valda félaginu tjóni og farþegum óþægindum vegna óformlegra aðgerða,“ segir Bogi Nils Bogason , forstjóri Icelandair. „Staðan er krefjandi í flugrekstri um þessar mundir vegna óvissu í alþjóðaumhverfinu og hefur eldsneytisverð til að mynda tvöfaldast, en það er einn stærsti kostnaðarliður félagsins. Á sama tíma er um að ræða stétt sem nýtur framúrskarandi starfskjara, einna bestu kjara sem flugmönnum á Norðurlöndum bjóðast. Kjaraviðræðurnar eru nú á forræði Ríkissáttasemjara og hafa sinn gang þar. Það er brýnt að við náum skynsamlegum samningum sem allra fyrst.“

Share this article